Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 6
Fylgist þú með fréttum af
Baugsmálinu?
Hefur þú tekið strætó á árinu?
Hvorugt leikverkið sem
nú er á kvöldsýningum á Stóra
sviði Þjóðleikhússins laðar að sér
mikla áhorfendaskara og renna
þau því sitt skeið á enda á næstu
vikum.
Frá því Stórfengleg var frum-
sýnd í lok október hafa 4.511
áhorfendur séð gamanleikritið á
samtals fimmtán sýningum. Og
1.742 hafa séð gríski harmleikinn
Bakkynjur á sjö sýningum frá því
verkið var frumsýnt á annan í
jólum. Boðsgestir eru taldir með í
áhorfendatölum.
„Ég neita því ekki að við vonuð-
umst eftir betri
tekjum af Stór-
fengleg en við
þurfum bara að
bíta í það súra
epli og reyna að
jafna það út
annars staðar,“
segir Tinna
Gunnlaugsdótt-
ir þjóðleikhús-
stjóri aðspurð
hvort þessi dræma aðsókn sé fjár-
hagslegt högg fyrir leikhúsið.
Tinna segir upphaflegar áætl-
anir um að sýna Bakkynjur í sex
vikur hafa staðist. Um sé að ræða
grískan harmleik sem hafi ekki
breiða skírskotun en nauðsynlegt
hafi verið að kynna verkið fyrir
íslenskum áhorfendum fyrr eða
síðar enda um að ræða hluta af
sameiginlegum leiklistararfi
heimsins:
„Vissulega var þetta dýr og
stór sýning en hún helst innan
fjárhagsáætlana. Það hefði verið
gaman ef það hefðu fleiri lagt í að
flykkjast í leikhúsið en við lítum
svo á að aðsókn hafi verið með
ágætum, miðað við að þetta er
aftan úr öldum,“ segir Tinna.
Frá því sýningum á Bakkynjum
og Stórfenglegri lýkur í byrjun
febrúar verður aðeins barna- og
fjölskylduleikritið Sitji guðs englar
á Stóra sviðinu. Að sögn Tinnu verð-
ur þá hins vegar bætt við tveimur
kvöldsýningum af því verki.
Í byrjun mars verður frum-
sýndur nýr söngleikur eftir Hug-
leik Dagsson. „Við leggjum mikið
upp úr því að hann lukkist,“ segir
þjóðleikhússtjóri.
Ekki fæst upplýstur heildar-
kostnaður við Bakkynjur og Stór-
fenglega. Leikhúsið greinir aðeins
frá kostnaði við leikmyndir, leik-
muni, búninga, gervi og þess hátt-
ar. Fyrir Stórfenglega nam sá
kostnaður tæpum 4,4 milljónum
króna og fyrir Bakkynjur ríflega
17,6 milljónum. Bæði leikstjóri og
leikmynda- og búningahönnuður í
Bakkynjum eru grískir.
„Bakkynjur var dýr sýning í
uppsetningu miðað við almennar
sýningar á Stóra sviðinu og það
var vitað fyrirfram, þegar hug-
myndir leikmynda-, gerva- og bún-
ingahönnuðar voru samþykktar,“
segir Páll Ásgeir Ásgeirsson,
kynningarstjóri Þjóðleikhússins,
um gríska harmleikinn sem senn
tekur enda.
Harmleikur og grín
hverfur af fjölunum
Sýningum á tveimur aðalverkum Þjóðleikhússins verður hætt á næstu vikum.
Aðeins 1.742 áhorfendur hafa séð gríska harmleikinn Bakkynjur og 4.511 gam-
anleikritið Stórfenglega sem þjóðleikhússtjóri vonaðist eftir betri tekjum af.
„Ég heyri ekki betur
en að menn séu almennt á þeirri
skoðun að hafa 2+2 veg,“ segir
Guðmundur Hallvarðsson Sjálf-
stæðisflokki, formaður sam-
göngunefndar Alþingis.
Málefni Suðurlandsvegar voru
rædd á fundi nefndarinnar í gær
og nýir kostnaðarútreikningar
kynntir. Kom fram að tvöföldun
vegarins (2+2) kostaði um eða yfir
þrettán milljarða króna en svo-
nefndur 2+1 vegur í kringum
fimm milljarða. Það eru hærri
fjárhæðir en áður hafa verið
nefndar, sem helgast af því að
byggingavísitala hefur hækkað
um tíu til tólf prósent á rúmu ári.
Við útreikningana er miðað við
að framkvæmdir nái frá ystu
byggð Reykjavíkur að Selfossi.
Guðmundur Hallvarðsson
segir að tvöföldun Suðurlands-
vegar taki lengri tíma en gerð
2+1 vegar. „Bæði er Vegagerðin
komin lengra á veg með undir-
búning 2+1 vegar og eins kallar
2+2 vegur á mun fleiri mislæg
gatnamót sem tekur sinn tíma að
byggja.“
Anna Kristín Gunnarsdóttir
Samfylkingunni vill að málin verði
skoðuð betur áður en ákvörðun
verði tekin. „Það er víða margt
ógert í vegamálum og víðar hætt-
ur en þarna. Verðmunurinn á leið-
unum er mikill og ég vil skoða
betur í hverju hann felst,“ segir
Anna Kristín.
Kostar rúma þrettán milljarða
MND-félagið sendi
í gær mikið af hjálpartækjum og
öndunarvélum til Ulaanbaatar,
höfuðborgar Mongólíu. Það var
Guðjón Sigurðsson sem var hvata-
maður að söfnuninni en eftir að
hann hafði fregnir af aðstæðum
þar í landi hóf hann að athuga
hvort til væru hjálpartæki á
Íslandi sem ekki væru í notkun.
Með tækjunum fer fólk frá
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
til þess að kenna heilbrigðis-
starfsfólki á tækin. MND-félagið
hefur notið aðstoðar fjölmargra
við verkefnið en lyfjafyrirtækið
Actavis er aðalstuðningsaðili
þess. Siv Friðleifsdóttir heilbrigð-
isráðherra lokaði gámnum í gær
og var hann þá tilbúinn fyrir
ferðalagið langa.
MND er banvænn sjúkdómur
sem herjar á hreyfitaugar líkam-
ans.
Styrkur til fólks
í Mongólíu
Barack Obama
sagðist í gær formlega hafa tekið
fyrsta skrefið í áttina að forseta-
framboði fyrir Demókrataflokk-
inn í Bandaríkjunum með því að
sækja um að
stofnuð yrði
svonefnd könn-
unarnefnd, sem
hefði það hlut-
verk að ganga
úr skugga um
hvort hann ætti
erindi í forseta-
framboð.
Obama
skýrði frá þessu
á vefsíðu sinni og sagðist enn
fremur ætla að gera frekari grein
fyrir áformum sínum í næsta mán-
uði.
Obama er fæddur á Hawaii árið
1961. Nái hann kjöri í forsetakosn-
ingunum, sem haldnar verða í
nóvember árið 2008, verður hann
fyrsti blökkumaðurinn í því
embætti.
Hillary Rodham Clinton, eigin-
kona Bills Clinton, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, þykir einnig
líkleg til að verða forsetafram-
bjóðandi Demókrataflokksins og
yrði þá fyrsta konan sem sæti á
forsetastóli næði hún kjöri.
Skellir sér í
forsetaslaginn
Viðræður um
skiptingu norsk-íslenska síldar-
stofnsins héldu áfram í gær og
stóðu fram á nótt. Bitbeinið er það
sama og undanfarin ár; Íslending-
ar og Færeyingar standa gegn
kröfum Norðmanna um stóraukna
hlutdeild í veiðiheimildum.
Síldarstofninn er í örum vexti
og kvóti komandi árs er talinn
verða tæplega 1,3 milljónir lesta.
Norðmenn vilja veiða um 800.000
lestir með þeim rökstuðningi að
síldin sé aðallega innan lögsögu
þeirra. Íslendingar munu sætta
sig við 15,5 prósent kvótans í
samræmi við fyrri samning um
veiðarnar.
Reyna átti til
þrautar í nótt
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar, segir að völdum og áhrifum í
samfélaginu sé misskipt milli karla og kvenna. Það sé
ein undirrót fækkunar íbúa víða á landsbyggðinni.
Ingibjörg Sólrún var frummælandi á opnum fundi
Samfylkingarinnar í Borgarnesi í gærkvöldi, sem
bar yfirskriftina „Sókn fyrir Ísland allt – jöfn tæki-
færi“. Hún gerði þann lýðræðishalla, sem hún segir
felast í ójöfnum tækifærum kynjanna, að umtalsefni,
og benti á að á landsbyggðinni væru konur um 2.500
færri en karlar.
Öflugar samgöngur, menntatækifæri og háhraða-
tengingar eru forsendur þess að þróuninni verði
snúið við að mati Ingibjargar.
Þá sagði hún mikilvægt að stjórnvöld beittu sér
fyrir því að skilgreina störf sem óháð staðsetningu.
Slíkt myndi auka á möguleika kvenna til að finna sér
störf við hæfi í heimahögunum út um land.
Ingibjörg Sólrún sagði einnig að auka þyrfti
atvinnufrelsi í landbúnaði og að athuga bæri hvort
gerlegt væri að endurgreiða hluta flutningskostnað-
ar.
Á fundinum sýndi hún jafnframt þróun fjárfram-
laga til samgöngumála undangengin ár og benti á hve
áberandi þau hækkuðu á kosningaárum. Gat hún þess
þó að ekki væri þar með sagt að loforð um útgjöld
væru efnd.
„Við stefnum enn sem
fyrr að því að ná niðurstöðu í
þessari viku,“ segir Ólafur
Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, sem ásamt
viðræðunefnd átti fund með
launanefnd sveitarfélaga
síðdegis í gær. Fundurinn stóð í
þrjá klukkutíma. Grunnskóla-
kennarar hafa samning til loka
þessa árs en telja að grípa þurfi
til aðgerða vegna ákvæðis
samningsins um leiðréttingu á
launum vegna verðlagsþróunar.
„Það ber enn talsvert á milli
hugmynda okkar um til hvaða
lausna þarf að grípa. En við
ákváðum að hætta þessu ekki og
á meðan við erum enn að ræða
saman er von,“ segir Ólafur.
Enn von um
samkomulag
Sérsveit lögreglunn-
ar á Akureyri var kölluð að húsi á
Dalvík um sjöleytið í gærkvöldi
þar sem vopnaður maður hafði í
hótunum. Eftir nokkurra tíma
umsátur leystist málið án átaka
og var maðurinn leiddur á brott
af lögreglu.
Íbúar í nálægum húsum voru
varaðir við að fara úr húsi á
meðan lögregla reyndi að ræða
við manninn.
„Ég fékk símtal þar sem mér
var sagt að læsa öllum hurðum og
vera inni, það væri maður með
hníf í nálægu húsi,“ segir íbúi í
götunni þar sem umsátrið fór
fram. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins var maðurinn
nýlega fluttur í bæinn.
Sérsveit handtók
vopnaðan mann