Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 54
MARKAÐURINN 17. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR18
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Á þessum degi árið 1949 var
sápuóperan The Goldbergs send
út á bandarísku sjónvarpsstöð-
inni CBS í fyrsta sinn. Þáttaröðin
fjallaði um líf gyðingafjölskyldu
í New York í Bandaríkjunum og
var sú fyrsta sinnar tegundar
sem sýnd var í sjónvarpi.
Það er hins vegar fjarri að
sápuóperan hafi verið ný af nál-
inni því útsendingar á henni hóf-
ust á bandarísku útvarpsstöðinni
NBC árið 1929 undir heitinu The
Rise of the Goldbergs. Um var
að ræða fimmtán mínútna langa
leikþætti sem útvarpað var á
hverjum degi næstu þrjú árin eða
fram til ársins 1931 þegar stjórn-
endur tóku sér fimm ára hlé.
Rykið var svo dustað af daglegu
amstri Goldberg-fjölskyldunn-
ar árið 1936 á nýrri útvarpsstöð
CBS. Heiti sápuóperunnar var
jafnframt stytt í The Goldbergs.
Sápuópera þessi var sögu-
leg fyrir mun fleiri sakir en að
vera fyrsta sápuóperan sem
sýnd var í sjónvarpi. Höfundur
hennar, leikkonan Gertrude
Berg, sem fædd var í borginni
og lék jafnframt aðalhlutverk-
ið allt frá fyrstu dögum, var
fyrsta konan til að skrifa leik-
þætti sem þessa. Hún byggði
sápuóperuna að hluta á eigin lífi
og tengdu margir af þeim sökum
örlög fjölskyldunnar við höf-
undinn. Þættirnir snertu streng
í hjörtum margra útvarpshlust-
enda og síðar sjónvarpsáhorf-
enda því margir af þeim fjór-
um milljónum Bandaríkjamanna
sem fylgdust með þáttunum á
hverjum degi fundu tengingu
við raunir fjölskyldunnar og hið
daglega amstur, ekki síst þeir
sem voru af gyðingaættum og
stóðu oftar en ekki frammi fyrir
svipuðum þröskuldum í lífsbar-
áttunni og persónur þáttanna. Þá
jókst tengingin ekki síður eftir
að fjölskyldan fluttist búferlum
frá stórborginni til Connecticut
í Bandaríkjunum líkt og marg-
ir gyðingar vestra, sem komið
höfðu undir sig fótunum á lífs-
leiðinni.
Aðdáendabréfum rigndi inn
til stjórnenda og leikenda þátt-
araðarinnar, ekki síst þegar Berg
þurfti að taka sér hlé frá leik í
þáttunum vegna veikinda.
Gertrude, sem skrifaði alla
þættina sjálf – rúma fimm þús-
und talsins – átti stærstan þátt
í því að Goldberg-fjölskyldan
komst á sjónvarpsskjáinn hjá
CBS árið 1949. Þar voru þætt-
irnir sýndir við góðan orðstír
og hlaut Gertrude Berg Emmy-
verðlaunin fyrir leik sinn í þátt-
unum.
Tveimur árum síðar steyttu
þeir hins vegar á steini þegar
aðalkarlleikarinn, Philip Loeb,
sem lék höfuð fjölskyldunnar á
móti Gertrude, var sakaður um
andbandarísk viðhorf og tengsl
við kommúnista. Berg neitaði að
segja Loeb upp störfum líkt og
oft gerðist í Bandaríkjunum og
ákvað CBS því að taka þættina
af dagskrá.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
tók Goldberg-fjölskylduna upp á
sína arma tæpu hálfu ári síðar og
sýndi þættina milli áranna 1952
og 1953. Þeir breyttust nokkuð í
kjölfarið og runnu á enda á lítilli
sjónvarpsstöð í talsvert breyttri
mynd. Sýningum var endan-
lega hætt árið 1955. Sama ár
féll Philip Loeb, sem leikið hafði
heimilisföðurinn í áraraðir, fyrir
eigin hendi eftir þunglyndi.
Gertrude Berg, sem hlaut fjöl-
mörg verðlaun fyrir verk sín,
lést sjálf á sjúkrahúsi í heima-
borg sinni New York árið 1966,
67 ára að aldri.
Fyrsta
sápuóperan
fer í loftið
S Ö G U H O R N I Ð
Listasafn Reykjavíkur og
Straumur–Burðarás fjár-
festingarbanki boðuðu til
blaðamannafundar í
Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi á föstudag í
síðustu viku í tilefni af
undirskrift samnings sem
Listasafnið og Straumur-
Burðarás hafa efnt til
vegna hönnunarsýningar-
innar Kviku, yfirgrips-
mikillar sýningar á
íslenskri samtímahönn-
un, sem verður opnuð á
Kjarvalsstöðum á Listahátíð í
Reykjavík 19. maí næstkomandi.
Hönnunarsýningin Kvika mun vera ein
viðamesta sýning sem sett hefur verið upp á íslenskri samtímahönnun
en svið hennar spannar ótal víddir hönnunar, svo sem húsgögn, fatnað,
ljós, skartgripi, byggingarlist, vefnað, tækninýjungar og matargerð.
Sýningunni verður fylgt úr hlaði með vandaðri bók um íslenska sam-
tímahönnun svo eitthvað sé nefnt.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra, Hafþór Yngvason, safnstjóri
Listasafnsins, Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðarinnar í Reykjavík, og Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka, héldu erindi á fundinum af
þessu tilefni auk þess sem Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönnuður,
sem meðal annars vann til Sjónlistaverðlaunanna í flokki hönnunar í
fyrra, er jafnframt sýningarstjóri Kviku. - jab
Kvika kynnt í
Listasafninu