Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 81
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Þ.J. -FBL
Mynd eftir Óskarsverðlaunahafann Clint Eastwood.
GEGGJUÐ GRÍNMYND
BS. FBL
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
KVIKMYNDIR.IS
FRÁ FRAMLEIÐENDUM WEDDING CRASHERS
HUGHJACKMAN CHRISTIANBALE
SCARLETTJOHANSSON MICHAELCAINE
EKKI MISSA
AF ÞESSARI! FRÁBÆRLEGA FYNDIN OG SNIÐUG GAMANMYND...
A.Ó. SIRKUS
FRÁ LEIKSTJÓRA BATMAN BEGINS OG MEMENTO
MÖGNUÐ OG TÖFRANDI SPENNA SEM HELDUR ÞÉR Í HELJARGREIPUM
Háskólabíó
KÖLD SLÓÐ kl. 5:50 - 8 B.i. 16
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12
THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16
THE PRESTIGE kl. 6 - 9 - 10:20 B.i.12
THE CHILDREN OF MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16
THE HOLIDAY kl. 5:30 - 8 B.i. 7
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 - 8 B.i. 16
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
THE CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 3:20 - 5:40 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 3:20 Leyfð
SKOLAÐ Í BURTU Ísl tal. kl. 3:20 Leyfð
THE PRESTIGE kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12
THE PRESTIGE VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40
EMPLOYEE OF THE MONTH kl.5:40 - 8 - 10:20
STRANGER THAN FICTION kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:40 B.i.16
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12
STRANGER THAN FICTION kl. 8:10 - 10:30 Leyfð
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 5:50 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 5:50 - 8:10 Leyfð
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i.12
THE PRESTIGE kl. 8 - 10:30 B.i. 12
EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 8 B.i. 12
STRANGER THAN FICTION kl. 10:10 B.i. 7
HAPPY FEET kl. 6 Leyfð
THE PRESTIGE kl 8 - 10:20 B.i. 12
FLAGS OF OUR FATHERS kl 5:40 B.i. 16
THE CHILDREN OF MEN kl 8 - 10:20 B.i. 16
MÖRGÆSAÆÐIÐ
ER HAFIÐ!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
BAGGALUTUR.IS
„Við unum þessari niðurstöðu
mjög vel,“ segir Viðar Þorsteins-
son, útgáfustjóri Nýhil, en Neyt-
endastofa hefur úrskurðað að
Edda útgáfa hafi gerst brotleg við
lög um óréttmæta viðskiptahætti
þegar hún auglýsti að ævisagan
Ljósið í djúpinu væri mest selda
ævisaga landsins. Nýhil taldi að
þar hefði Edda útgáfa farið með
rangt mál því Hannes - Nóttin er
blá, mamma eftir Óttar Martin
Norðfjörð væri mest seld í þeim
flokki. Neytendastofa beinir því
enn fremur til Eddu útgáfu að hún
sýni meiri nákvæmni í auglýs-
ingum sínum en Edda ákvað
að svara hvorki bréfi né
ítrekun frá Neytenda-
stofa vegna málsins.
Viðar segir að vissu-
lega megi líta á málið sem
brandara en hann telur þó
að bókaútgáfubransinn
hafi tilhneigingu til að ofmeta
metsölulista. „Þetta grín
gerir hins vegar ekk-
ert lítið úr sölu-
listum,“ segir Viðar, sem
bendir jafnframt á að engin
hafi tapað peningum vegna
þessa og að allur ágóði af
sölu bókar Óttars hafi runn-
ið til Mæðrastyrksnefndar.
„Auðvitað snýst þetta ekki
um neitt annað en hégómann
sem felst í því að vera
númer eitt,“ segir
Viðar. Sigurður
Svavarsson,
útgáfustjóri
Eddu, vildi ekki
tjá sig um
málið þegar
Fréttablaðið
hafði uppi á
honum.
Unum
niðurstöðunni Sigurmynd Þorsteins Ás-
geirssonar í ljósmyndakeppni
Stöðvar 2 er ekki fölsuð eins
og þráfaldlega hefur verið
haldið fram á netinu.
„Ég get staðfest að myndin er ekki
fölsuð,“ segir Ólafur Haraldsson
myndvinnslumaður en eins og
greint var frá í Fréttablaðinu fyrir
skömmu blossuðu upp miklar deil-
ur meðal áhugaljósmyndara um
hvort sigurmynd Þorsteins
Ásgeirssonar af Jökulsárlóni væri
fölsuð eða ekki. „Myndin hans
Þorsteins er ekta.“
Ólafur vann myndina sjálfur og
segist hafa fjarlægt græna liti úr
vatninu sem hafi orðið til þess að
skuggamyndirnar létu myndina
líta út fyrir að
hún væri tekin
að degi til.
Þessi lita-
samsetning
sem og fjall
í bak-
grunni
urðu til þess að tölvupóstur gekk
manna á milli með þeim yfirlýs-
ingum að myndin væri augljóslega
fölsuð. „Það er af og frá að hún sé
óekta og svona óhróður skaðar orð-
spor mitt,“ segir Ólafur en hann
stundar nám við hönnunarskóla í
Kolding í Danmörku.
Ólafur furðar sig á þeirri múg-
æsingu sem hafi átt sér stað á
spjallvefnum ljosmyndakeppni.is
en þaðan eru þessar ásakanir
sprottnar. „Ég var sagður vera í
felum vegna málsins og þaðan af
verra,“ segir Ólafur og er feginn
að málið sé til lykta leitt.
Sigurði Þ. Ragnarssyni, yfir-
manni Veðurstofu Stöðvar 2, var
létt þegar hann heyrði þessar frétt-
ir enda bárust tíu þúsund ljós-
myndir í keppnina. „Sérstaklega
gagnvart Þorsteini sem hefur mátt
sitja undir þessum ásökunum en
hann stóð í þessu af mestu heilind-
um,“ segir Sigurður og lætur þess
getið að Þorsteinn hafi sent inn
fimmtán myndir sem hafi verið
hver annarri fegurri. „Auðvitað
var mér brugðið þegar ég heyrði af
þessu,“ útskýrir Sigurður og viður-
kennir að honum hafi ekki staðið á
sama þegar þetta komst í umræð-
una. „En nú þegar þetta er loksins
komið á hreint er alveg ljóst að
þessi keppni verður haldin aftur að
ári.“
Miðasala á tónleika tenórsins Garð-
ars Thórs Cortes í Barbican Centre
í London hefst á föstudag. Þetta
verða fyrstu einsöngstónleikar
Garðars Thórs í Bretlandi og er
þeirra beðið með mikilli eftirvænt-
ingu.
Ný plata með Garðari er vænt-
anleg í Bretlandi í næsta mánuði. Á
henni verða lög af fyrstu plötu hans
sem kom aðeins út hér á landi auk
nýrra laga á borð við Hunting High
and Low eftir norsku sveitina A-ha.
Miðasala á tónleikana hinn 2.
mars fer m.a. fram á ticketmaster.
co.uk og á gigsandtour.com.
Miðasala á föstudag
Jennifer Aniston mun fara með
gestahlutverk í nýjum sjónvarps-
þætti vinkonu sinnar Courteney
Cox, Dirt. Þetta verður í fyrsta
sinn sem þær leika saman síðan
þær fóru á kostum í Friends.
Aniston mun leika ritstjórann
ráðríka Tinu Harrod sem á í deil-
um við Lucy Spiller, sem Cox leik-
ur. Cox, sem er einnig framleið-
andi þáttarins, segist lengi hafa
leitað að hlutverki fyrir Aniston.
„Við vorum alltaf að tala um það,
t.d. hvernig persónu hún myndi
leika. Við spáðum í það hvort hún
ætti að leika sjálfa sig eða hvort
við ættum að semja eitthvað frá-
bært fyrir hana,“ sagði Cox.
Þátturinn með Aniston verður
sá síðasti í fyrstu þáttaröð Dirt.
Verður hann sýndur í Bandaríkj-
unum í mars.
Sameinaðar á ný
Góða skemmtun
Þeir sem greiða með VISA kreditkorti fá tvo miða á verði
eins í SAMbíóin og Háskólabíó á miðvikudögum í janúar
Munið VISA tilboðið á miðvikudögum í janúar
GILDIR EKKI MEÐ ÖÐRUM TILBOÐUM, EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG EKKI Í VIP
Kynnið
ykkur
myndir
sýningar
tíma
og fleira á
SAMbio.is
*
*