Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 14
Heildarraforkukostn- aður meðalheimilis hefur hækkað um þrjú til fjögur prósent milli ára hjá flestum raforkufyrirtækjum en lækkað um fjögur prósent hjá viðskiptavinum Norðurorku. Kostnaður hjá viðskiptavinum Orkubús Vestfjarða og Orkuveitu Húsavíkur stendur í stað milli ára. Þetta kemur fram í úttekt sem Alþýðusambandið hefur látið gera og birt er á vef ASÍ. Heildarkostnaður fyrir dreif- ingu, flutning og raforku til almennra heimilisnota hjá meðal- heimili í þéttbýli, sem notar fjögur þúsund kílóvattstundir af rafmagni á ári, er hæstur hjá viðskiptavin- um á svæði Orkuveitu Húsavíkur, eða rúmlega 42.000 krónur á ári. Viðskiptavinir Norðurorku greiða lægsta verðið, rúmlega 39.000 krónur. Munurinn er kr. 2.900 krón- ur á ári, eða 7,4 prósent. Heildarkostnaður meðalheimil- is í dreifbýli er umtalsvert hærri en í þéttbýlinu. Meðalheimilið í dreifbýli á svæði Orkubús Vest- fjarða greiðir ríflega kr. 51.500 á ári fyrir raforku til almennra heim- ilisnota, en á dreifbýlissvæði Rarik er kostnaðurinn ríflega kr. 47.000 á ári. Gert er ráð fyrir því að við- skiptavinir kaupi af fyrirtæki með einkaleyfi á viðkomandi lands- svæði og eigi aðeins viðskipti við eitt raforkufyrirtæki. Norðurorka lækkar ein raforkuverðið Fídel Castro Kúbuleið- togi er við dauðans dyr eftir þrjár skurðaðgerðir og alvarlega iðra- sýkingu. Þetta hafði fréttavefur spænska dagblaðsins El País í gær eftir ónafngreindum samstarfs- mönnum spænsks skurðlæknis sem fór til Kúbu í desember til að hlynna að hinum áttræða Castro. Kúbverskur stjórnarerindreki sagði fréttina vera „helberan upp- spuna“. Hinir ónafngreindu heimildar- menn blaðsins starfa á Gregorio Maranon-sjúkrahúsinu í Madríd, þar sem skurðlæknirinn Jose Luis Garcia Sabrido er yfirlæknir. Sabrado sjálfur lét ritara sinn skila því til fjölmiðla að hann hygðist ekki tjá sig um málið opin- berlega. Í frétt El País segir að „alvar- leg garnasýking, að minnsta kosti þrjár misheppnaðar skurðaðgerð- ir og margvíslegar hliðarverkanir hafi leitt kúbverska einræðisherr- ann, Fídel Castro, að dauðans dyrum.“ Þegar Sabrado hitti Castro í desember hafi hann haft stórt sár í meltingarveginum, sem um hálfur lítri af vökva lak út um á dag, sem olli „alvarlegum nær- ingarefnamissi“. Því væri Castro gefin næring í æð. Erindreki í kúbverska sendi- ráðinu í Madríd sagði fréttina vera upplogna. „Þetta er enn ein lygin og við ætlum ekki að ræða hana. Ef einhver þarf að tala um veik- indi Castros eru það ráðamenn í Havana,“ sagði hann. „Þessi frétt er helber uppspuni.“ Ráðamenn í Havana hafa gefið mjög lítið upp um mein Castros frá því hann lagðist inn á sjúkra- hús í júlí og lét völdin tímabundið í hendur bróður síns, Raúls. Sagður vera við dauðans dyr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.