Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 44
4
Flestir upplifa blankheit um ævina og stundum veit fólk ekki hvernig
það á að greiða fyrir hlutina. Besta leiðin til að koma í veg fyrir slíkt
er að spara reglulega, ekki bara einu sinni í mánuði heldur á hverjum
degi.
1. Forðastu skyndikaup með því að hugsa áður en þú kaupir. Oft er
um helmingur innkaupa óþarfi.
2. Haltu bókhald yfir eyðslu þína, og þá sérðu í hvað peningarnir eru
að fara.
3. Taktu nesti með í vinnuna í stað þess að fara út á veitinga-
staði í hádeginu. Ef þú ferð á veitingastað, leitaðu þá eftir stað með
hádegistilboðum.
4. Ekki kaupa þér gos og sælgæti í sjálfsalanum í vinnunni, komdu
heldur með nasl að heiman.
5. Gerðu innkaupalista áður en
þú ferð út í búð, þá kemurðu í
veg fyrir að kaupa eitthvað sem
þú þarft ekki.
6. Hafðu augun opin fyrir tilboð-
um í verslunum og gerðu magn-
innkaup þegar eitthvað sem þú
kaupir oft er á tilboði.
7. Kauptu í matinn í lággjalda-
verslunum.
8. Drekktu vatn úr krananum í
stað þess að kaupa þér sódavatn
á flösku.
9. Ekki versla inn þegar þú ert
þreytt(ur) eða með börnin með þér.
10. Kauptu rúmföt, eldhúsáhöld,
húsgögn, handklæði o.fl. á útsöl-
um.
12. Leggðu frá pening mánað-
arlega í gjafasjóð sem nýtist vel
þegar afmælisveislur, brúðkaup eða
útskriftir koma upp.
Græddur er geymdur eyrir
Hér fara nokkur góð sparnaðarráð sem allir geta nýtt
sér. Eins og að gera innkaupalista og kaupa rúmföt á
útsölum.
Frá aldamótum hafa skuldir heim-
ilanna við lánakerfið nálægt því
tvöfaldast. Samkvæmt tölum Seðla-
banka Íslands námu heildarskuldir
íslenskra heimila tæpum 686 millj-
örðum króna á þriðja ársfjórðungi
2001, en á þriðja ársfjórðungi
nýliðins árs var talan komin í tæpa
1.270 milljarða króna. Aukningin
nemur 85 prósentum.
Með heildarskuldum heimilanna
er átt við skuldir heimilanna við
bankakerfið, ýmis lánafyrirtæki,
lífeyrissjóði, tryggingafélög og við
Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Töluverður munur er hins vegar á
því hver breytingin er innan hvers
flokks. Þannig hafa skuldir heim-
ilanna við tryggingafélög dregist
saman um 50 prósent á tímabilinu
á meðan skuldirnar við bankakerfið
hafa aukist um 278 prósent.
Aukin hlutdeild bankanna skýr-
ist svo náttúrlega af miklum breyt-
ingum sem gerðar voru hér með
einkavæðingu bankanna og breyt-
inga á fyrirkomulagi húsnæðislána
og þeirri endurfjármögnun og sam-
keppni sem þá fór í gang á íbúða-
lánamarkaði. Þar leggur líka vog
sitt á lóðarskálina hækkun á verði
fasteigna, sem jú gerir að verkum
að fólk þarf að taka hærri lán.
Skuldir fólks við lífeyrissjóðina
aukast líka, um 53 prósent, en vega
ekki mjög þungt í heildarmyndinni,
því skuldir við þá eru ekki nema um
8,5 prósent af heildarskuldunum.
Þá aukast einnig skuldir við Lána-
sjóð íslenskra námsmanna um 51
prósent frá þriðja ársfjórðungi 2001
til þriðja ársfjórðungs 2006.
Líklegt má þó vera að lokið sé
að sinni mikilli endurfjármögnun
heimilanna og vísbendingar eru
um að tekið sé að um hægjast á
fasteignamarkaði. Þannig höfðu
sérfræðingar af því áhyggjur síð-
asta haust að markaðurinn væri að
staðna vegna þess hve lítil við-
skipti voru með fasteignir og
jafnvel var farið að spá lækk-
un á húsnæðisverði á höfuð-
borgarsvæðinu. Markaðurinn
tók hins vegar aðeins við sér
aftur og hafa greiningardeild-
ir nú uppfært spár sínar í
þá átt að hægi á verð-
hækkunum fasteigna.
Þannig segir í
nýlegri úttekt grein-
ingardeildar Lands-
banka Íslands að
tólf mánaða
hækkun hús-
næð i sve rð s
sé nú komin
niður í 5 pró-
sent. Í janúar í
fyrra hafi árs-
hækkunin hins vegar verið 31 pró-
sent og vísað til mælinga Hagstofu
Íslands á fasteignaverði. „Eftir langt
tímabil hækkana á milli mánaða
hefur húsnæðisverð lækkað í tvo
mánuði í röð. Hratt hefur því dregið
úr hækkun húsnæðisverðs, en mest
fór árshækkunin í 33 prósent í sept-
ember, október og nóvember 2005,“
segir greiningardeildin og bendir á
að í janúar hafi árshækkunin verið
minnst í fjölbýli á höfuðborgar-
svæðinu, eða 4 prósent, en mest
utan höfuðborgarsvæðisins,
eða 7 prósent. „Þróun-
in hefur því snúist við
þar sem húsnæðisverð
á höfuðborgarsvæð-
inu hækkaði meira en
á landsbyggðinni á
fyrri hluta ársins
2006.“
Skuldir heimilanna hafa
tvöfaldast frá aldamótum
Stórfelldar breytingar á húsnæðislánamarkaði og endurfjármögnun heimilanna hefur
gjörbreytt samsetningu skulda í lánakerfinu. Þannig hefur hlutur bankanna margfald-
ast á meðan hlutur tryggingafélaga dregst saman. Viðskipti með húsnæði hafa verið
drifkrafturinn í breytingum og aukinni skuldsetningu, en síðustu mánuði hefur heldur
hægst um á fasteignamarkaði og dregið úr verðhækkunum.
{ fjármál heimilanna }