Fréttablaðið - 17.01.2007, Qupperneq 52
MARKAÐURINN
A U R A S Á L I N
17. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR16
F Y R I R T Æ K I
Fyrirtækið Hafmynd hf. var
stofnað árið 1999 í þeim tilgangi
að þróa öfluga lausn til að safna
upplýsingum á hafsbotni fyrir
margvíslegar rannsóknir, land-
mælingar, eftirlit með leiðslum og
annað slíkt. Á síðari árum hefur
Gavia-kafbáturinn vakið vaxandi
athygli vegna notkunarmögu-
leika sem tengjast öryggi
ríkja, sprengju-
leit og eftirliti
neðansjávar,
meðal ann-
ars í höfn-
um og á
s i g l i n g a -
leiðum.
Í byrjun
þessa árs var
enda lokið við og til-
kynnt um sölu á tveimur kaf-
bátum til vinveittra þjóða fyrir
tæpar hundrað milljónir króna.
Annan bátinn keypti ástralski
flotinn. Hinn segir Hafmynd að
hafi keypt sjóher Evrópuríkis.
Fyrirtækið gerir sér vonir um
að selja nokkra kafbáta á þessu
ári. Áður hafa Bandaríkjafloti,
Háskóli Bresku Kólumbíu og
Rannsóknarráð Kanada fest kaup
á Gavia kafbátum.
Nýlega fékk fyrirtækið líka
alþjóðleg verðlaun fyrir bylt-
ingarkennda lausn í öryggismál-
um ríkja, svokölluð Disruptive
Solution in Homeland Security
Award á 2006 Excellence in
Aerospace & Defense Awards.
Þar var Hafmynd í flokki með
mörgum af stærstu fyrirtækjum
heims á sviði hátækni- og her-
gagnaiðnaðar. Verðlaunin veitti
Frost & Sullivan, eitt virtasta
rannsóknarfyrirtæki heims.
BYRJAÐ MEÐ HAFRÓ OG HÍ
Torfi Þórhallsson, framkvæmda-
stjóri Hafmyndar, segir sögu
fyrirtækisins hins vegar teygja
sig aðeins aftur fyrir stofnunar-
dagsetninguna og rekur hana til
ársins 1996. „Verkefnið spinnst
út úr öðru fyrirtæki að nafni
Hugrún, en það framleiddi orku-
grönn mælitæki og seldi út um
allan heim. Þetta verkefni byrj-
ar sem sjálfvirk bauja þar sem
hugsunin var að koma þessu
mælitæki lengra á haf út og átti
meðal annars að sitja fyrir fiski-
göngum. En þótt þetta hafi byrj-
að sem bauja endaði það sem kaf-
bátur,“ segir hann. Fyrsta frum-
gerð bátsins var svo tilbúin árið
1997 og var í prófunum árið 1998.
„Fyrirtækið var svo stofnað árið
1999 og Rannís styrkti það, en á
sínum tíma var þetta unnið í sam-
vinnu við Hafrannsóknastofnun
og Háskóla Íslands,“ bætir Torfi
við og leggur áherslu á að þótt
ræturnar liggi í rannsóknum hafi
frá upphafi verið stefnt að því
að búa til fyrirtæki sem starfaði
í samkeppnisumhverfi með
afurð sem yrði fram-
leidd og seld.
Hernaðar-
not Gavia-
kafbáts ins
voru þannig
ekki inni í
myndinni til
að byrja með,
en áhugi á þeirri
virkni vaknaði þegar
tekið var að kynna bátinn erlend-
is árið 2002. „Þá, í kjölfar ellefta
september, er strax mikill áhugi
tengdur þessu hafnaeftirliti og
sprengjuleit. Við fáum svo samn-
ing við bandaríska flotann árið
2004 og afhendum bát ári síðar.“
Torfi segir Hafmynd leggja
áherslu á þrjá sérmarkaði;
hafnaeftirlit og sprengjuleit,
sjómælingar í tengslum við
neðansjávarframkvæmdir og svo
umhverfisrannsóknir, en undir
þær flokkast hafrannsóknir í víð-
ustum skilningi. Torfi hlær við
þegar því er haldið fram að ekki
þurfi að horfa lengi á þessi svið
til að sjá hvar hagnaðarvonin
sé mest. „Ég skal ekki segja.
Allir þessir markaðir eru vax-
andi, en eftirlitsmarkaðurinn er
að því leyti öðruvísi að söluferlið
í honum er tiltölulega langt. Við
er að eiga ríkisbatterí þar sem
svona kaup þurfa að fara í gegn-
um fjárlög og langt útboðsferli.
Þess vegna er kostur að hafa hina
markaðina líka.“ Hafmynd gekk í
gegnum töluvert tímabil án þess
að selja bát áður en sölurnar
gengu í gegn núna um áramótin.
Torfi segir að menn hafi samt
ekkert verið farnir að örvænta.
„Sölur af þessu tagi hafa mjög
langan aðdraganda þannig að við
vissum í nokkurn tíma að þeirra
væri von. Síðan erum við með
aðrar sölur á mismunandi stig-
um. En gríðarlegt úthald þarf
náttúrlega í svona verkefni.“
Í SJÓNUM ER EKKI GPS
Einhverjum kann að þykja sér-
stakt að íslenskt sjávarrann-
sóknafyrirtæki sé komið með
starfsemi á sviði hergagna,
enda löngum nokkuð úr því gert
að landið væri herlaust og þar
fram eftir götunum. „En það
sýnir kannski að ekki skiptir
öllu máli hvaðan tæknin kemur,“
segir Torfi og kveður í raun hafa
komið á óvart að aðkoman að
þeim markaði skuli ekki hafa
verið erfiðari. Hann segir fyrir-
tækinu hafa gengið vel að fóta
sig í því umhverfi.
„Helst er að reyni á tíma-
lengd og þolinmæði. Svo geta
samningar líka verið heldur
umfangsmeiri en á hinum svið-
unum.“ Hann segir hins vegar
erfitt að spá fyrir um á hvaða
sviði umfangið verði mest hjá
Hafmynd þegar fram líða stund-
ir. „Í raun er ekki augljóst að
það verði á einu þessara sviða.
Sjómælingar í tengslum við
neðansjávarframkvæmdir eru til
dæmis mjög stórt svið,“ segir
hann og bendir á að neðansjávar
sé GPS ekki fyrir hendi og því
ekki hægt að beita sömu tækni
við mælingar og á landi. Hann
segir hins vegar að enn hafi ekki
verið leitað til Hafmyndar vegna
lagningar nýs Farice-sæstrengs
sem nú er í burðarliðnum. „En
við höfum komið að verkefnum
með Orkuveitu Reykjavíkur við
val á lagnastæðum fyrir útrás-
ir. Þá höfum við unnið verkefni
fyrir BP-olíufélagið í Kaspíahafi
í tengslum við lögn á olíuleiðslu
og einnig mælingar á innsiglingu
hafnar þar sem skip hafði ítrekað
tekið niðri.“
Torfi segir Hafmynd njóta sér-
stöðu í því að vera eina evrópska
fyrirtækið með kafbáta af þess-
ari stærð. „Að auki erum við með
eina smáa kafbátinn sem getur
sinnt sjómælingaverkefnum og
höfum þar sérstöðu umfram alla
aðra keppinauta.“ Keppinautana
segir Torfi hins vegar ekki vera
marga. „Framleiðendur smárra
kafbáta sem hægt er að flytja
auðveldlega með sér hvert á land
sem er eru kannski fjórir og
bara einn sem veitir verulega
samkeppni. En hana er líka hollt
að hafa. Það þýðir líka að ekki
þarf að vinna alla vinnuna við
að vinna þessari tækni braut.“
Aðspurður um hvað taki nú við
hjá Hafmynd segir Torfi ljóst
að þessir hlutir taki tíma. „En
markaðurinn er augljóslega vax-
andi og því ekki annað hægt að
segja en að bjart sé framund-
an. Tímasetningin er góð og þar
nýtur Hafmynd forskots að hafa
byrjað svona snemma.“
Fóru úr bauju í kafbát
Hafmynd leggur áherslu á þrjá sérmarkaði fyrir Gavia-kafbátinn; hafnaeftirlit og sprengjuleit, sjómælingar
í tengslum við neðansjávarframkvæmdir og svo umhverfisrannsóknir. Óli Kristján Ármannsson ræddi við
Torfa Þórhallsson, framkvæmdastjóra Hafmyndar, um sögu fyrirtækisins og framtíð. Hann segir fyrir-
tækið njóta nokkurs forskots í samkeppni og því sé bjart fram undan á ört vaxandi mörkuðum.Senn líður að jólum. Eftir
nokkrar vikur koma þeir allir
saman til byggða gróðasvein-
arnir úr bönkunum. Það eru
Vaxtapínir, Þjónustugjaldasníkir,
Víxlakrókur, Yfirdráttargaur og
Láglaunaskefill. Þeir koma allir
glaðhlakkalegir til byggða sama
daginn og tilkynna þjóðinni að
þeir séu jafnvel ennþá feitari og
ríkari í ár en þeir voru í fyrra.
Og eins og venjulega munu þeir
halda því blákalt fram að eina
ástæðan fyrir góðærinu í fjár-
málafjallinu sé að Útrásargrýlan
hafi verið svo afkastamikil.
Ekki hafi þeir stolið auði sínum
af sauðsvörtum íslenskum
almúganum – nei, ó, nei – langt
í frá. Í raun sjá gróðasveinarnir
slíkar aumur á þjóð sinni að hér
reka þeir alla sína starfsemi
á núlli og fórna því ómældum
gróða í þau góðverk.
Já – nú liður að ársuppgjörum
banka og fjármálafyrirtækja.
Bráðum koma bankajólin.
Bónusabörnin hlakka til
Allir fá þá eitthvað fallegt.
Í það minnsta milljarð til.
Hvað það verður vita allir.
Enginn vandi um að spá.
Það er jú víst að allir græða
ótrúlega mikið þá.
En ekki mun Aurasálin fagna
þessum jólum nema með því að
líma út í glugga yfirdráttarnót-
urnar, víxlana og sannanir um
vaxtaberandi skuldir í íslensk-
um krónum sem gera þessum
ósvífnu bönkum og Hannesum
Smárasonum kleift að vaða yfir
okkur verðmætaskapandi lista-
og handverksmenn þessarar
þjóðar með vaxtaokri sínu og
þjónustugjöldum.
Það er hins vegar huggun harmi
gegn að hér á landi sé enn starf-
andi einn heiðarlegur banki
sem ekki okrar á almenningi í
landinu en berst fyrir lítilmagn-
ann gegn auðvaldinu. Þetta er
Seðlabankinn sem aðeins rukkar
14,5 prósenta vexti á meðan
íslensku bankarnir eru að taka
21 prósent. Aurasálin hefur
þegar óskað eftir að færa við-
skipti sín yfir í Seðlabankann.
Raunar er það svo að samkvæmt
skilningi Aurasálarinnar hefur
Seðlabankinn heimildir í lögum
til þess að taka yfir stjórn við-
skiptabankanna ef þeir valda
ekki hlutverki sínu. Þarf frek-
ari sannanna við en ofsagróða
síðustu ára á baki íslenskrar
alþýðu? Er ekki nóg komið? Er
vilji þjóðarinnar ekki skýr?
Davíð og Seðlabankinn verða
að taka málin í sínar hendur.
Seðlabankavæðum bankana.
Höldum landinu hreinu frá
útlenskum þenslugjaldmiðlum.
Seðlabankinn er síðasti varnar-
múr íslenskrar menningar. Upp
með fánann og fallbyssurnar í
Seðlabankanum!
Eini góði
bankinn
Hafmynd
Eigendur: Össur Kristinsson,
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, starfsmenn
Hafmyndar og aðrir fjárfestar.
Fjöldi starfsmanna: 13 (og 2 verktakar)
Starfsemi: Fyrirtækið var stofnað til að þróa öfluga
lausn til að safna upplýsingum á hafsbotni.
Staðsetning: Fiskislóð 71, 101 Reykjavík.
Stofnár: 1999
Hafmynd gekk í gegnum töluvert tímabil án þess að selja bát áður en sölurnar gengu í gegn núna um ára-
mótin. ... „Sölur af þessu tagi hafa mjög langan aðdraganda þannig að við vissum í nokkurn tíma að þeirra
væri von. Síðan erum við með aðrar sölur á mismunandi stigum. En gríðarlegt úthald þarf náttúrlega í
svona verkefni.“
AUGL†SINGASÍMI
550 5000