Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Engin ákvörðun hefur verið tekin
í þeim efnum,“ segir Steingrímur
Sævarr Ólafsson -- eitthvert
þekktasta nafnið í bloggheimum
aðspurður hvort hann hyggist nú
færa sig til á netinu.
„Ég er sáttur þar sem ég er
núna. Moggabloggið er betra en
það format sem er á Vísi. En ef
menn halda rétt á spilum og breyt-
ingarnar á Vísi gera það að verk-
um að betra verður að blogga þar
þá er heimilisfangið á Mbl ekki
heilagt.“
Þórir Guðmundsson, ritstjóri
Vísis, setti sig í samband við Stein-
grím og réði hann sér til ráðgjafar.
„Eins og menn hafa séð er verið að
taka Vísi í gegn og heppnast vel.
En betur sjá augu en auga.
Þórir óskaði eftir því við mig
að ég kæmi með mína sýn á
vefmál yfir höfuð. Og er það
ekki bundið við einn einstak-
an þátt Vísis heldur vefmál
Vísis almennt. Hvernig
gerum við góðan
fréttavef betri?“
segir Steingrím-
ur og vísar til reynslu sinnar úr
fréttamennsku, bæði af útvarpi,
dagblöðum og sjónvarpi... og ekki
síst reynslu af netskrifum. Stein-
grímur rak sjálfur um hríð eftir-
tektarverða síðu sem hét frettir.
com en að undanförnu hefur hann
skrifað á Moggabloggið þannig að
eftir hefur verið tekið.
Mbl.is hefur boðið netverjum
upp á blogg-viðmót og hefur
dágóður hópur manna nýtt sér
það. Mbl.is hefur þá tengt fréttir
sínar blogginu með góðum árangri.
Vísismenn hljóta ekki síst að líta
til þess með því að kaupa þjónustu
Steingríms, sem hefur verið í
fararbroddi Moggabloggara.
Moggabloggarinn Steingrímur til Vísis
Logi Bergmann Eiðsson hefur nú
svo gott sem gengið frá þeim 16
manna hópi sem mun taka þátt í
spurningakeppninni Meistaranum
– 2. þáttaröð á Stöð tvö. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins mun
varaformaður Vinstri grænna,
Katrín Jakobsdóttir, vera meðal
þátttakenda. en hún hefur hingað
til verið þekktari fyrir
störf sín sem stiga-
vörður í spurningakeppnum. Aðrir
nafntogaðir keppendur eru blaða-
maðurinn Svanborg Sigmarsdóttir
og sjálfur Sigurður G. Tómasson
útvarpsmaður. Sigurður hefur á
sér orð fyrir að vera fjöl-
fróður mjög, nánast
alvís, og er spenna
meðal Meistara-
manna um hvernig
hann muni spjara
sig.
Flestir þátttak-
enda koma að
Meistaranum
eftir sér-
stök próf
sem
haldin
voru.
Einn þeirra sem þreyttu prófið
aftur var Helgi Árnason skóla-
stjóri, faðir Jónasar sem sigraði í
Meistaranum á síðasta ári. Helgi
tapaði í fyrra í fyrstu umferð fyrir
manni sem sonur hans sigraði síðar
í keppninni. Meðal ann-
arra sem mæta og taka
þátt öðru sinni eru
Björn Guðbrandur
Jónsson umhverfis-
verkfræðingur og
Erlingur Sigurðsson.
Fyrsti þáttur Meistarans fer í
loftið 1. febrúar. Þáttaröðin hefst
með tveimur þáttum, svokölluðum
góðgerðarþáttum, þar sem þekktir
einstaklingar koma fram og keppa
tveir og tveir saman. Fréttablaðið
hefur fyrir því heimildir að feðgin-
in Lára og Ómar Ragnars-
son muni skipa eitt liðið
en ekki hefur verið
gengið frá öðrum
liðum.
Katrín Jakobsdóttir í Meistaranum
...fær fyrrum Idolstjarnan
Gísli Hvanndal Jakobsson, sem
hefur misst heil sjötíu kíló á
síðastliðnum tíu mánuðum.
„Nei, ég veit ekki til þess að svona
hafi verið gert áður,” segir Baltas-
ar Kormákur leikstjóri.
Í gær kom saman leikhópur á
vegum Baltasars sem ætlar sér að
æfa leikritið Ívanoff eftir Anton
Tjekov með það fyrir augum að
setja á svið Þjóðleikhússins til sýn-
inga á haustmánuðum. En jafn-
framt ætlar þessi sami hópur að
leika í kvikmynd Baltasars sem
byggir á þessu sama verki. Er þar
um að ræða staðfærslu og nútíma-
uppsetningu meðan sviðsuppfærsl-
an verður hefðbundnari og stað-
sett á tímum Tjekovs. Stefnt er að
því að sýna leikritið samhliða því
sem kvikmyndin verður í sölum
kvikmyndahúsa. Miðað er við að
hvort verk um sig geti staðið alger-
lega sjálfstætt en samt kallast á
með þessum hætti að fólk geti farið
í bíó og í leikhús og borið saman.
Þetta þýðir að kvikmyndin verður
tekin upp í sumar og þá verði hafð-
ar hraðar hendur við eftirvinnslu,
hljóðsetningu og klippingu.
Kvikmyndin verður framleidd
af Sögn, fyrirtæki Baltasars og
Ingibjargar Pálmadóttur, í sam-
vinnu við Þjóðleikhúsið. Kostnaðar-
áætlun myndarinnar er 100 millj-
ónir en Baltasar segir hana ekki
mega vera of dýra. Við það að fjár-
mögnun verði of þung missi hann
ákveðið frelsi.
„En ég vona að þetta verði
myndarlegasta kvikmynd. En hug-
myndin mín, og hana hef ég haft
lengi, er sú að nota sömu vinnuað-
ferðir og ég hef stuðst við í leik-
húsi til að búa til betra bíó. Ég hef
unnið mikið í þessum miðlum og
draumur að geta látið þá renna
saman með þessum hætti. Oft hafa
kvikmyndir verið unnar upp úr vel
heppnuðum leiksýningum. Og ég
hef íhugað það en orðið fráhverfur
því þegar búið er að afgreiða verk
á svið. Þetta verður öðru vísi. Að
vinna þetta í raun sem eitt kons-
ept,” segir Baltasar.
Óhætt er að segja leikhópinn
einstaklega sterkan en hann skipa
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmir
Snær Guðnason, Ilmur Kristjáns-
dóttir, Jóhann Sigurðarson, Þröst-
ur Leó Gunnarsson, Ólafur Darri
Ólafsson, Ólafur Egilsson, Mar-
grét Vilhjálmsdóttir og Laufey
Elíasdóttir. Lísa Kristjánsdóttir er
aðstoðarleikstjóri, Grétar Reynis-
son annast leikmynd og Helga
Stefánsdóttir er með búningana.
Þá verður notast við nýja þýðingu
eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur.
Að sögn Baltasars er um mann-
lega kómedíu að ræða en verkið
fjallar um Ívanoff, sem Hilmir Snær
mun leika, sem á við tilvistarkrísu á
miðjum aldri að etja.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A