Fréttablaðið - 17.02.2007, Side 6
Fjalakötturinn Hagnaður íslensku bankanna; Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, vegna vaxta- og þjónustugjalda jókst um fjórtán-
hundruð prósent á milli áranna
2002 og 2006. Árið 2002 var saman-
lagður hagnaður bankanna þriggja
vegna vaxta- og þjónustugjalda
tæpir ellefu milljarðar en tæpir
165 milljarðar árið 2006. Vaxta-
tekjurnar hækkuðu úr rúmum 24
milljörðum upp í tæpa 131, eða um
435 prósent, og þjónustutekjurnar
hækkuðu úr rúmum þrettán millj-
örðum króna upp í rúma 92, eða
um 594 prósent. Þetta kemur fram
í gögnum sem upplýsingasvið
Alþingis vann fyrir Jóhönnu Sig-
urðardóttur, þingmann Samfylk-
ingarinnar.
Jóhanna segir að þessar tölur
staðfesti bankaokrið sem hafi við-
gengist hér á landi frá því bank-
arnir voru einkavæddir. „Bank-
arnir hafa svigrúm til þess að
lækka vexti og ég vil að neytendur
fái líka að njóta þess sem einka-
væðingin hefur skilað en ekki bara
bankakóngarnir,“ segir Jóhanna.
Hún telur að Jón Sigurðsson hafi
ekki brugðist við tilmælum frá
Samkeppniseftirlitinu í ágúst árið
2006 um að bregðast við þeirri
fákeppni á bankamarkaði sem
væri hér á landi og skaðaði neyt-
endur. Þingmaðurinn vill að Jón
Sigurðsson láti fara fram rann-
sókn á háum bankakostnaði og
meintu samráði bankanna.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings,
segir að bankarnir fylgi stýrivöxt-
um Seðlabanka Íslands og að allir
vextir bankanna komi ofan á þá,
þess vegna sé hið háa vaxtastig í
landinu ekki bönkunum að kenna.
„Bankarnir stjórna því ekki hverj-
ir vextirnir eru í hagkerfinu,“
segir Ásgeir. Hann segir að aukin
umsvif skýri aukinn hagnað bank-
anna, en að hann sé ekki tilkominn
vegna viðskipta þeirra við almenn-
ing í landinu. „Í sumum greinum
viðskipta bankanna, til dæmis á
fasteignamarkaði, er ábati lítill
sem enginn miðað við núverandi
raunvaxtastig í landinu,“ segir
Ásgeir og bætir því við að umræð-
an um meint okur bankanna sýni
fram á hversu mikil áhrif háir
stýrivextir Seðlabankans séu farn-
ir að hafa í landinu.
Hagnaðurinn jókst
um 1.400 prósent
Bankarnir græddu tæpa 165 milljarða á vaxta- og þjónustutekjum árið 2006.
Þjónustutekjurnar jukust um tæp sex hundruð prósent. Forstöðumaður grein-
ingardeildar Kaupþings segir íslensku bankana ekki okra á almenningi.
Sjöunda konan hefur
kært Guðmund Jónsson, fyrrver-
andi forstöðumann Byrgisins.
Þetta staðfesti Ólafur Helgi Kjart-
ansson, sýslumaður á Selfossi.
Konurnar sjö sem lagt hafa
fram kæru á hendur Guðmundi
kæra hann allar fyrir meinta kyn-
ferðislega misneytingu meðan
þær dvöldu í Byrginu. Sýslumað-
ur kvaðst ekki gefa frekari upp-
lýsingar um gang málsins, meðal
annars vegna þess að það væri
engum til framdráttar að reka það
í fjölmiðlum.
Það var eftir upplýsingar sem
komu fram í fréttaskýringaþætt-
inum Kompási á Stöð 2 sem farið
var að athuga rekstur Byrgisins. Í
ljós komu miklar brotalamir, bæði
hvað varðaði fjárhagslega hlið
rekstrarins og meinta misnotkun
forstöðumannsins fyrrverandi á
konum sem þar höfðu dvalið. Þá
varð uppvíst um að fangar sem
höfðu verið þar á reynslulausn
voru ekki látnir fara að reglum
Fangelsismálastofnunar hvað
varðaði viðveru og fleira.
Nú er unnið af fullum krafti að
rannsókn málsins. Skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um fjármál
Byrgisins hefur verið vísað til
ríkissaksóknara og sýslumanns-
embættið á Selfossi rannsakar
meint brot gegn fólki sem dvalið
hefur í Byrginu. Þeir sem dvalið
hafa í Byrginu og þurfa á aðstoð
fagaðila að halda geta hringt í
síma 543 4074 á Landspítala virka
daga milli klukkan 9 og 16 fyrir
31. mars.
Byrgiskærurnar orðnar sjö
Björn Árdal, barna-
læknir og sérfræðingur í ofnæm-
is- og ónæmissjúkdómum, segir
að svifryksmengun geti verið ert-
andi fyrir lungnapípur og lungna-
vefi og geti valdið lungnaskaða.
Það sé þekkt að utan. Sérstaklega
sé þetta slæmt fyrir börn, sem
eiga fyrir höndum margra áratuga
ævi. Mengunin geti veiklað lungu
þeirra verulega.
„Það er þekkt að ef skaði verður
á lungum þá getur hann magnast í
gegnum árin. Vafalaust má tengja
mengun ertanleika í lungum, astma
og þvíumlíku. Krakkar sem eru
útsettir fyrir svona mengun í
bernsku geta orðið langtíma lungna-
veikir því lengur sem þetta
mengunarástand varir,“ segir hann.
Mælingar sýna að veruleg svif-
ryksmengun getur myndast í
borginni. Björn segir að sé mikil
svifryksmengun við leikskóla sé
hugsanlega verið að búa í þannig í
haginn að börnin verði með við-
kvæmar og lélegar lungnapípur
og lungnavef til frambúðar. Það
geti leitt til krónískra lungnasjúk-
dóma á fullorðinsárum, lungna-
þembu eða langvinnrar berkju-
bólgu.
„Það segir sig sjálft að þar sem
svifryk er í miklu magni gerir það
skaða hér á landi eins og annars
staðar en við höfum sem betur fer
rigningu og rok til að hreinsa loft-
ið,“ segir Björn. Hann telur ástæðu
til að hafa hættu á svifryksmeng-
un í huga þegar staðsetning á skól-
um og leikskólum er valin. Svo sé
ástæða til þess að draga úr notkun
nagladekkja eftir megni.
Getur valdið lungnaskaða
Elsti sonur og nafni
Fidels Castro sagði á fimmtudag
að faðir sinn hefði tekið viðun-
andi framförum eftir aðgerðina
sem hann gekkst undir og að hann
gæti að endingu náð sér að fullu.
Bróðir Kúbuleiðtogans, Raúl
Castro, hefur verið starfandi
forseti síðan hinn áttræði bróðir
hans dró sig í hlé fyrir meira en
hálfu ári.
Raúl greindi frá því í síðustu
viku að Fidel stundaði æfingar og
notaði símann mikið.
Stjórnvöld á Kúbu hafa
staðfastlega neitað getgátum um
að Castro sé með krabbamein.
Segir að Castro
sé að braggast
Ætlar þú að halda konudaginn
hátíðlegan?
Finnst þér að banna eigi
klámráðstefnuna sem halda á í
Reykavík í næsta mánuði?