Fréttablaðið - 17.02.2007, Side 16
Lýðheilsuvísindi eru vísinda-
grein sem gegnir stöðugt
mikilvægara hlutverki í
nútímasamfélagi. Innan
hennar leita menn svara við
mikilvægum spurningum
svo sem: Hvernig er heils-
an? Af hverju líður okkur
svona? Hvernig getur okkur
liðið betur? Í gær hleypti
Háskóli Íslands af stokkun-
um sérstakri miðstöð í lýð-
heilsuvísindum sem býður
upp á nám og rannsóknir á
þessu sviði.
Forstöðumaður og dósent við hina
nýju miðstöð í lýðheilsuvísindum
er dr. Unnur A. Valdimarsdóttir og
að hennar sögn verður þar boðið
upp á þverfræðilegt meistara- og
doktorsnám frá og með næsta
hausti. „Markmið er að nemendur
í lýðheilsuvísindum við Háskóla
Íslands fái tækifæri til að vinna að
rannsóknum á heimsmælikvarða
og geti birt niðurstöður sínar í
virtustu rannsóknartímaritum
heims á þessu sviði.“
Gert er ráð fyrir að um tuttugu
meistaraprófsnemar stundi nám
og rannsóknir við miðstöðina
árlega og þar verði jafnframt
fimm til sex doktorsnemar að
staðaldri.
Unnur segir að með markvissum
rannsóknaraðferðum geti lýð-
heilsuvísindin fundið áhrifavalda
heilbrigðis og þannig skapað þekk-
ingargrunn sem nauðsynlegur sé
til stefnumótunar forvarna og
heilsueflingar. „Hugtakið lýð-
heilsuvísindi felur í raun í sér vís-
indastarf, stjórnmál og forvarnir,“
segir hún.
Með því á hún við að sjálft
námið og þær rannsóknir sem
nemar vinna að snúist um að skapa
þekkingu um lýðheilsu og hvað
hefur áhrif á almennt heilsufar
fólks. „Stjórnmálamenn og aðrir
sem vinna að stefnumótun heilsu-
verndar taka síðan ákvarðanir í
ljósi þessarar þekkingar um
hugsanlegar forvarnir.“
Sem dæmi um slíkt ferli nefnir
Unnur að rannsóknaraðferðir lýð-
heilsuvísinda leiddu meðal annars
til þess að skaðsemi reykinga var
uppgötvuð fyrir einum fimmtíu
árum; enn fremur tókst að draga
verulega úr tíðni vöggudauða á
tíunda áratug síðustu aldar með
einfaldri lýðheilsuherferð: „Back
to sleep!“ („Barn skal sofa á bak-
inu!“).
Rannsóknarstarf við miðstöðina
verður meðal annars unnið í sam-
vinnu við opinberar stofnanir hér-
lendis, sem í gegnum tíðina hafa
safnað gögnum um heilsufar
Íslendinga. „Við erum í viðræðum
við stofnanir á borð við Hjarta-
vernd, Krabbameinsfélagið,
Vinnueftirlitið og Lýðheilsustöð
en við höfum þegar gengið frá
slíkum samningum við Land-
læknisembættið en þar eru til að
mynda margvísleg gögn um
sjúkrahúsvist og lyfjanotkun
Íslendinga,“ segir Unnur.
Upp úr þessum gögnum vonast
hún til að nemendur geti síðan
unnið vísindarannsóknir, bæði
doktors- og meistaranámsverk-
efni eins og gert er í nágranna-
löndunum. „Og það er gaman að
segja frá því að fyrsta doktors-
verkefnið af þessum toga er þegar
komið af stað hjá okkur en það er
rannsókn byggð á lyfjgagnagrunn-
inum um geðlyfjanotkun barna og
unglinga, áhrifaþáttum hennar og
afleiðingum. Þetta er dæmi um
verkefni sem við komum til með
að vinna.“
Og Unnur nefnir ýmis önnur dæmi
um verkefni sem nauðsynlegt er
að vinna að og fá svör við marg-
víslegum spurningum þeim tengd-
um. „Tækniþróun samfélagsins
tekur örum breytingum, nýjar
umhverfisógnir steðja að okkur,
breyttur lífsstíll og öldrun þjóðar-
innar eru þættir sem kalla á ný
svör við því hvernig hægt er að
viðhalda heilsu og lífsgæðum
þjóðarinnar. Hver eru til dæmis
áhrif aukinnar kyrrsetu barna og
rítalínsnotkunar á heilsu þeirra á
fullorðinsárum? Veldur svifrykið
okkur óbætanlegum skaða og
hvernig viðhöldum við lífsgæðum
í ellinni? Aukin tíðni sjúkdóma og
örorku krefst þess einnig að við
leitum svara við því hvað veldur
og hvernig hægt sé að bæta líf
þessa fólks svo það geti aftur tekið
virkan þátt í samfélaginu.“
Auk samstarfssamninga við stofn-
anir mun nám í lýðheilsuvísindum
byggjast á góðu samstarfi við
erlenda háskóla og rannsóknar-
stofnanir. Þannig hefur að sögn
Unnar þegar verið gengið frá
viljayfirlýsingu um samvinnu við
Karolinska Institutet í Stokkhólmi
og samningar við faraldsfræði-
deild Harvard School of Public
Health í Boston og University of
Minnesota eru í smíðum. „Samn-
ingurinn við minn gamla vinnu-
stað Karolinska snýst um að hann
verður okkur innan handar við
mótun námsins, við fáum þaðan
gestaprófessora og nemendum
hér býðst að fara þangað út til að
taka námskeið sem ekki verður
hægt að taka hér heima. Og við
vonumst til að ganga frá sams
konar samningum við hina skól-
ana og kannski fleiri innan tíðar.“
Við undirbúning þessarar nýju
námsbrautar segir Unnur að mikil
áhersla hafi verið lögð á að námið
yrði þverfræðilegt. Markmiðið er
að það verði vettvangur fagfólks
með fjölbreyttan fræðabakgrunn
sem vill nema fyrsta flokks rann-
sóknaraðferðir til að svara spurn-
ingum úr lífi sínu og starfi. „Við
viljum að þetta nám verði öllum
aðgengilegt, sama hvaða mennt-
unarbakgrunn fólk hefur. Þess
vegna er námið skipulagt af full-
trúum frá öllum deildum Háskól-
ans og í raun geta nemendur
útskrifast með meistaragráðu eða
doktorsgráðu í lýðheilsuvísindum
frá hvaða deild háskólans sem
er.“
Hún nefnir enn fremur að
námið verði fyrst og fremst bund-
ið við vísindastarf. „Kjarninn
verður verklag í vísindum,
aðferðafræði og hin vísindalega
aðferð. Við munum leggja mikla
áherslu á að rannsóknir okkar
verði eins vel úr garði gerðar og
nokkur kostur er.“
Unnur segist þegar hafa orðið vör
við mikinn áhuga á þessari nýju
námsbraut og á aðallega von á
tvenns konar nemendum í námið.
„Annars vegar þeim sem koma frá
hinum ýmsu stofnunum samfé-
lagsins og vilja auka við þekkingu
sína, eru hugsanlega að safna
gögnum og vilja nota þau í verk-
efnum sínum. Síðan á ég líka von á
nemum sem vilja nema aðferða-
fræði og lýðheilsuvísindi sem
slík.“
Þessum nemum er ætlunin að
bjóða upp á að vinna úr gögnum til
dæmis frá landlæknisembættinu
og embættið fær í staðinn skýrsl-
ur og niðurstöður rannsókna sem
það getur síðan notað til að gefa
stjórnvöldum ráð um aðgerðir á
sviði lýðheilsu.
„Ég tel að námsbraut sem þessi
geti orðið dæmi um góða samvinnu
milli vísinda og atvinnulífs og held
að þetta sé mjög hagnýtt nám fyrir
þá sem vilja taka þátt í stefnumót-
un forvarna og heilsuverndar,“
segir Unnur A. Valdimarsdóttir,
dósent og forstöðumaður mið-
stöðvar í lýðheilsufræðum við
Háskóla Íslands.
Lýðheilsurannsóknir á heimsmælikvarða
Hugtakið lýðheilsuvís-
indi felur í raun í sér vís-
indastarf, stjórnmál og forvarnir.