Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 44
heimaerbest
Danski húsgagnahönnuðurinn Hans J.
Wegner var frumkvöðull á sínu sviði og
einn virtasti hönnuður Dana. Hann lést
fyrir skömmu, 92 ára að aldri, en hann
hafði mikil áhrif á hönnun í Skandinavíu
og á meðan sumir hönnuðir láta sig ein-
ungis dreyma um að hanna einn þekktan
stól, hannaði hann marga slíka. Einna
þekktastur þeirra er „Stóllinn“ sem er úr
tekkviði, en Danmörk var einn stærsti inn-
flytjandi tekkviðar í Evrópu eftir stríð. Af
þeim sökum þróuðu Danir sérstakan tekk-
stíl sem barst víða og hrinti af stað tekk-
bylgju og framleiðslu á ódýrum eftirlík-
ingum á dönskum húsgögnum. Hans J.
Wegner átti stóran þátt í vinsældum
danskrar hönnunar en hann var þekktur
fyrir afburða handbragð og ástríðu fyrir
nútíma lifnaðarháttum.
Verk hans teljast til naumhyggju og
hann hannaði mikið af húsgögnum þótt
stólar hans séu hans þekktustu verk.
- keþ
Uxinn er leðurstóll með voldugum
„hornum“ þar sem höfuðið hvílir.
Nautið er einn af
þekktari stólum
Wegners.
Þessi stóll heitir
hinu einfalda
nafni Stóllinn
og er sennilega
frægasta hönn-
un Wegners.
Kínverski stóllinn ber skap-
ara sínum gott vitni.
Hans J. Wegner, einn virtasti húsgagnahönnuður
Dana, lést í síðasta mánuði.
Afburðahandbragð & ástríða
Fáir húsgagnahönnuðir hafa hannað jafnmikið af þekktum stólum og Hans J. Wegner. Hann lést í síðasta mánuði.
Teddy Bear, eða
Bangsi, heitir
þessi stóll, en
það er auðvelt að
sjá af hverju.
Útsala
20-50% afsláttur
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16
30% afsláttur af rúmum
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
rafstillanleg og hefðbundin. Nýtt kortatímabil
17. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR2