Fréttablaðið - 17.02.2007, Síða 52
17. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR10 fréttablaðið eurovision
Um leið og keppni lýkur í und-
ankeppni Eurovision í kvöld
mun Páll Óskar Hjálmtýsson
þeyta skífum á Nasa í sínu
árlega Eurovision-partíi.
Sérstakur gestur í kvöld verður
fulltrúi Rúmeníu í Eurovision í
fyrra, Mihali Traistariu, sem sló í
gegn í Grikklandi með laginu
Tornero. „Hann er alveg magnað-
ur. Hann sýndi það og sannaði í
keppninni í Grikklandi að þarna
fer stór söngvari í litlum líkama.
Hann er súperstjarna í sínu heima-
landi og ekki að ástæðulausu,“
segir Páll Óskar. „Ég er ofsalega
glaður og ánægður að fá hann
hingað og líka af þessu tilefni.
Tornero verður auðvitað á efnis-
skránni og einhverjir rúmenskir
hittarar sem hann ætlar að kynna
fyrir okkur. Hann verður skraut-
fjöður þessa Eurovision-partís.“
PLÖTU ÞJÓFSTARTAÐ
Auk þess að þeyta skífum mun
Páll syngja sín vinsælustu lög.
Útilokar hann ekki að syngja eitt-
hvað af væntanlegri plötu sinni.
„Það má vel vera að ég þjófstarti
kannski einum eða tveimur lögum
af henni. Þessi plata
stefnir í brjálað teknó og
mér líst mjög vel á blikuna. Ég er
að vinna hana meðfram X-Fact-
or, sem er meiri vinna en nokk-
urn grunaði. Þetta er engan veg-
inn sambærilegt við Idol. Ég er
að upplifa þetta eins og svart
og hvítt,“ segir hann.
DR. GUNNI EÐA EIRÍKUR HAUKS
Páli Óskari líst ágætlega á lögin
sem keppa í undankeppninni í
kvöld og segir það ekkert borð-
leggjandi hver muni fara með
sigur af hólmi. „Þetta verður
meira spennandi keppni en í fyrra.
Ég get ekki gert upp á milli
tveggja laga. Það er lagið hans Dr.
Gunna, Ég og heilinn minn, sem
Heiða syngur af fádæma öryggi
og svo er ég svolítið spenntur
fyrir því að sjá Eirík Hauksson
komast áfram. Það er fyrirtaks
lag og ofsalega vel flutt. Ég væri
ánægður með að gefa rokki eða
jaðartónlist smá pláss í Euro-
vision og við skulum hætta þess-
ari minnimáttarkennd því Ísland
getur alveg unnið þessa keppni.
Það er ekki til nein uppskrift af
Eurovision-lagi og Finnland sann-
aði það í fyrra.“
KEPPENDURNIR FJÖLMENNA
Keppendurnir sem taka þátt í und-
ankeppninni í kvöld munu mæta á
Nasa auk þess sem gestir geta
fagnað sigurvegaranum, sem vita-
skuld mun syngja sigurlagið. „Ég
á von á því að keppendurnir fjöl-
menni. Þetta er samt ekki prívat
partí því almenningur getur keypt
sig inn. Þetta er kjörið tækifæri
fyrir sjóðheita aðdáendur að taka í
spaðann á keppendum og Mihali,“
segir Páll Óskar.
Miðasala fer fram á Nasa og
kostar 1.900 krónur inn. Húsið
verður opnað klukkan 23.00 og er
aldurstakmark 20 ár.
freyr@frettabladid.is
Mihali verður
skrautfjöðurin
Páll Óskar fór á kostum í
Eurovision-partíinu í fyrra.
Hann ætlar að endurtaka
leikinn í kvöld.
Eins og flestir vita fóru augnaynd-
in í finnsku skrímslarokksveitinni
Lordi með sigur af hólmi í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
í fyrra. Fyrir vikið fer fimmtug-
asta og önnur söngvakeppnin fram
í Helsinki í ár. Finnland, sem tók
fyrst þátt í keppninni árið 1961,
hefur átt misjöfnu gengi að fagna
í keppninni. Í þau fjörutíu ár sem
landið hefur sent fulltrúa sína í
Eurovision hefur það hæst komist
í sjöunda sæti, þar til skrímslin
komu, sáu og sigruðu í Aþenu í
fyrra. Þetta er því í fyrsta skipti
sem frasinn „Good evening, Hels-
inki“ mun heyrast á ljósvakaöld-
unum.
Alls 42 lönd hafa tilkynnt um
þátttöku sína í ár, sem er hæsta
tala þátttakenda frá upphafi. 28
þeirra etja kappi í undankeppn-
inni sem fram fer 10. maí. Sam-
kvæmt reglum sem settar voru í
fyrra fara löndin sem lentu í tíu
efstu sætunum í fyrra sjálfkrafa
inn í lokakeppnina 12. maí. Stóru
löndin fjögur, Frakkland, Þýska-
land, Spánn og Bretland, sem
ganga undir nafninu The Big Four
í Eurovision-kreðsum, hafa sjálf-
krafa þátttökurétt í lokakeppn-
inni. Fjögur lönd bætast við þátt-
tökulistann í ár: Tékkland og
Georgía taka nú þátt í fyrsta
skipti, og eins keppa Svartfjalla-
land og Serbía í fyrsta skipti sem
tvö sjálfstæð ríki. Austurríki og
Ungverjaland taka einnig þátt í
glensinu, en þau voru ekki með í
fyrra. Mónakó hefur hins vegar
dregið sig úr keppni.
Sjónvarpsstöðvarnar evrópsku
fara ýmsar leiðir til að útnefna
fulltrúa sína. Flest halda löndin þó
undankeppnir með einhverju
sniði. Írland hefur þann háttinn á í
ár að sveitinni Dervish var falið
að semja nokkur lög, sem áhorf-
endur fá síðan að velja úr. Ung-
verjaland ætlar hins vegar að feta
sömu braut og síðast þegar landið
tók þátt og sendir Ungstirni árs-
ins, sem valið verður á tónlistar-
verðlaunaafhendingu í næstu
viku. Undankeppnir víðs vegar
um álfuna eru flestar vel á veg
komnar, og ætti úrslitum að rigna
inn á næstu vikum.
Af vinum okkar og frændum á
Norðurlöndunum hafa eingöngu
Noregur og Danmörk valið fram-
lög sín að svo stöddu. Það er drag-
drottningin DQ, eða Peter Ander-
sen, sem syngur lagið Drama
Queen fyrir Danmörku í ár. Norð-
menn senda hins vegar söngkon-
una Guri Schanke, sem leitar á
suðlægari slóðir og býður upp í
dans með laginu Ven a bailar con-
migo. Finnar kjósa fulltrúa sinn í
kvöld, en niðurstöðu frá Svíþjóð
er ekki að vænta fyrr en 10. mars.
Báðar keppnir fara fram í Hart-
wall-höllinni, sem hýsir stærsta
íshokkíleikvang frænda okkar
Finna. Kynnar verða þau Jaana
Pelkonen og Mikko Leppilampi.
Jaana þessi er reynslubolti í Euro-
vision-heiminum, en hún er ein-
mitt kynnir undankeppni þeirra
Finna. Þau Jaana og Mikko verða í
draumkenndri stemningu á svið-
inu, því þema keppninnar ku vera
„True Fantasy“, eða sannir hugar-
órar. Hvernig það skilar sér á
sjónvarpsskjánum á eftir að koma
í ljós þegar tjaldið rís hinn 10.
maí.
Hyvää iltaa, Helsinki!
Helsinkibúar eru gestgjafar Eurovision-
keppninnar í ár, en þetta er í fyrsta
skipti sem Finnar halda keppnina á þeim
fjörutíu árum sem þeir hafa tekið þátt
í henni.
ÞEGAR GÓÐA EUROVISIONVEISLU GJÖRA SKAL er
lögmálið að tjalda öllu því sem til er. Keppnin einkennist af prjáli og
prakt, og ef hin sanna Evróvisjónstemning á að skila sér heim í stofu ætti
að hafa þau gildi að leiðarljósi. Ef þessi atriði eru til staðar eru miklar
líkur á að fjallar verði um partíið þitt í sögubókum framtíðarinnar. Góða
skemmtun!
LITRÍKUR KOKTEILL Því litríkari,
því betri. Í þessu tilfelli skiptir umgjörðin
meira máli en innihaldið. Svo er um að
gera að hafa marglit kokteilber og glasaskraut
við hendina. Og hver hefur nokkurn tíma dáið af að
gleypa smá glimmer?
SNAKK, SNAKK,
SNAKKOg helst allar tegund-
ir af öllu, eins og Evróvisjón-fljóð- ið
Dana söng hér um árið. Gestirnir
verða að hafa eitthvað að
sökkva tönnunum í á milli laga
þegar spennan ætlar að gera
út af við fólk.
MÖRG LÖG ENNSegir það sig ekki sjálft
að ekta Eurovisiontónlist er ómissandi með
öllu í partíi með sama nafni? Skelltu einu lagi
enn á fóninn og þá veistu svarið − og munt
ekki gleyma því þangað til að hinsti dansinn er
stiginn.
PARTÍLEIKIR Partíleikir og Eurovision-
keppnin eru svipuð að vinsældum. Fólk lýsir
því gjarnan yfir að bæði fyrirbærin séu framúrskar-
andi hallærisleg, alveg þangað til útsendingin
eða leikurinn byrjar. Þá skemmta allir
sér konunglega. Hvernig væri að hrista
hópinn saman með því að bregða á
leik? Það má til dæmis láta fólk leika
þekktar Eurovisionpersónur, nú, eða flytja lag, og stof-
an breytist í gleðibanka.
GLIMMER, GLAMÚR OG
GLITUR Ef Silvía Nótt kenndi
okkur eitthvað, var sá
lærdómur fólginn í því að
það er aldrei nóg af glimmeri.
Stráðu glimmeri yfir borðdúkinn, á
boðskortin og sáldraðu því í kringum þig
þegar úrslitin eru opinberuð. Vertu bara viss
um að handryksugan sé skammt undan, svo
þú missir ekki vitið þegar þú rankar við þér
að partíi loknu.
Mihali hefur
sungið
sleitulaust
um alla Evr-
ópu síðan
Tornero
sló í
gegn.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI