Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 66
heimaerbest
Aðdáendur fallegra baðherbergja eru margir og til
vitnis um það eru fjölmargar bækur sem fjalla ein-
ungis um þetta nauðsynlega herbergi hvers heimilis.
Baðherbergi eru hins vegar eflaust eins misjöfn og
þau eru mörg. Sums staðar eru þau svo lítil að varla
er hægt að snúa sér við í sturtunni, á meðan sum hús
hafa svo stór baðherbergi að þar væri nánast hægt að
byggja litla sundlaug.
Sé bókum um baðherbergi flett kemur í ljós að þar
sem fólk kemur því við kýs það gjarna að láta baðher-
bergi standa undir glugga. Þetta krefst þess væntan-
lega að lítið fari fyrir mannaferðum fyrir utan enda
kjósa flestir að njóta einkalífs meðan farið er í bað.
Til að auka á gæðastundina er gott að raða kertum
upp í kringum baðið, láta róandi tónlist á fóninn,
blanda góðan drykk og leggjast svo í heitt vatnið
meðan flett er í gegnum áhugaverða bók. Til að fegra
sjálft herbergið er sniðugt að hengja þar upp inn-
rammað málverk eða ljósmynd, hafa öll handklæði í
stíl og sjá til þess
að það sé ávallt
hreint og snyrti-
legt. - mhg
Láttu renna í karið, elskan
Margir vita fátt betra en heitt bað að loknum erfiðum degi.
Hefðbundið mexíkóskt baðkar með fallegri mósaíklögn og flísum á körmunum.
Einkar fallegt, en kannski ekki eins þægilegt?Gamalt og höfðinglegt kar úr kopar.Egglaga baðkör verða sífellt vinsælli.
Ferhyrnt baðkar
úr graníti og ein-
staklega aðlaðandi
stemning.
Frábær verð
á rúmum
Þú sefur betur í rúmi frá Lúr
Munið eftir
gjafakortunum
miklu meiri gæði – lægra verð
Komdu við í verslun
okkar í Smáranum.
Við erum staðsett rétt fyrir
ofan Smáralindina á horni
Hlíðasmára og
Smárahvammsvegs.
10:00 – 18:00
LÚR - BETRI HVÍLD • HLÍÐASMÁRI 1 • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI 554 6969 • FAX 554 3100 • WWW.LUR.IS • LUR@LUR.IS
m á n
f ö s
11:00 – 16:00l a u
Opnunartímar:
h
ö
n
n
u
n
:
w
w
w
.o
ri
g
a
m
i-
a
rt
.n
e
t
17. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR24