Fréttablaðið - 17.02.2007, Síða 104
Það verður rafmögnuð
stemning í Laugardalshöllinni í
dag þegar bikarúrslit körfunnar
fara fram. Karlaleikurinn hefst
klukkan 16.00 og þar spila lið sem
eru ekki í Höllinni á hverjum
degi. ÍR er að spila sinn sjöunda
bikarúrslitaleik, þar af aðeins
annan á síðustu 17 árum, og móth-
erjarnir eru sameinað lið Ham-
ars/Selfoss en Hamar hefur
aðeins einu sinni komist í úrslitin
og það var einmitt gegn ÍR fyrir
sex árum.
Leikmenn Hamars/Selfoss
geta ekki bara tryggt sínu bæjar-
félagi sinn fyrsta stóra titil í
íþróttum heldur getur liðið einnig
orðið fyrsta liðið utan höfuðborg-
arsvæðisins og Suðurnesja sem
verður bikarmeistari. Lands-
byggðarlið hafa fimm sinnum
komist í Höllina og átta stiga tap
Hamars-liðsins á móti ÍR er lang-
besti árangur þeirra til þessa.
Hinir fjórir leikirnir eru allir á
meðal fimm stærstu tapa í sögu
bikarúrslitaleiks karla.
ÍR-liðið er með sigurstrang-
legra liðið fyrir fram. Lðið er ofar
í töflunni og vann báða innbyrðis-
leiki liðanna af öryggi, með 28
stigum (90-62) í október og með
23 stigum (99-76) í Seljaskóla
fyrir rétt tæpum mánuði.
Hamar/Selfoss leggur mikið
upp úr því að hægja á leikjum
sínum og nýta krafta George
Byrd inni í teig en í hvorugum
leikjanna gegn Breiðhyltingum
hefur það tekist. Hamar/Selfoss
hefur aðeins þrisvar fengið á sig
meira en 90 stig í vetur og tveir
þeirra leikja hafa verið gegn ÍR.
ÍR-ingar glíma þó við óvissu-
ástand því lykilleikmaður liðsins,
Hreggviður Magnússon, hefur
aðeins spilað í 6 mínútur síðan að
hann meiddist í undanúrslita-
leiknum á móti Grindavík. Hregg-
viður hefur hvílt í síðustu tveim-
ur leikjum og verður örugglega
mættur í slaginn í dag.
Stærsta málið í kringum leikinn
hefur verið einvígi bræðranna Pét-
urs og Jóns Arnars Ingvarssona en
þetta verður í fyrsta sinn sem
bræður stjórna hvor sínu liðinu í
bikarúrslitum. Pétur hefur þjálfað
Hamar og Hamar/Selfoss síðan
1998 og fór með liðið í bikaúrslitin
fyrir sex árum. Jón Arnar er hins
vegar aðeins á sínu þriðja mánuði
með ÍR-liðið, sem hefur tekið
stakkaskiptum undir stjórn hans.
Bræðurnir eru ekki að mætast
í fyrsta sinn á vellinum en litli
bróðir hefur haft betur bæði
þegar þeir hafa mæst sem þjálf-
arar og sem leikmenn. Lið Jón
Arnars unnu 5 af 8 leikjum gegn
liðum Péturs á meðan þeir voru
báðir að spila en síðan þeir tóku
upp þjálfun hefur Jón Arnar
stjórnað sínu liði þrisvar sinnum
til sigurs í fimm leikjum gegn
liðum Péturs.
Í dag kemur kannski í ljós
hvort tak litla bróður nái einnig
inn í bikarúrslitin eða hvort Pétur
endurskrifar sögu íslenska körfu-
boltans með lærisveinum af
Suðurlandinu.
Hamar/Selfoss getur orðið fyrsta liðið utan höfuðborgarsvæðisins og Suður-
nesja sem vinnur stóran titil í körfuboltanum þegar liðið mætir ÍR í dag.
Íslandsmeistarar síð-
ustu fjögurra ára og topplið
deildarinnar mætast í úrslitaleik
Lýsingarbikar kvenna í Laugar-
dalshöllinni klukkan 12.00 í dag.
Haukar taka þá á móti Keflavík en
liðin hafa ásamt Grindavík verið í
nokkrum sérflokki í deildinni í
vetur. Allir leikir Hauka og Kefla-
víkur í vetur hafa verið mikið fyrir
augað enda eru bæði lið að spila
hraðan og skemmtilegan bolta.
Haukar unnu alla þrjá leiki lið-
anna í lokaúrslitum Íslandsmóts-
ins síðasta vor og ennfremur
úrslitaleik liðanna í Powerade-
bikarnum í desember 2005. Með
sigri í leiknum í dag verður Hauka-
liðið handhafi allra bikara sem
keppt er um í íslenskri kvenna-
körfu, nokkuð sem Hafnarfjarðar-
liðið væri að afreka í fyrsta sinn
en Keflavík hefur gert margoft.
Helena Sverrisdóttir, fyrirliði
Hauka, hefur reynst Keflvíking-
um mjög erfið. Í þremur inn-
byrðisleikjum liðanna í vetur
hefur hún skorað 31 stig, tekið 11,3
fráköst og gefið 8,3 stoðsendingar
sem gerir framlageinkunn upp á
40,3 í leik. Helena er að mörgum
talin vera besti leikmaður deildar-
innar að Könum meðtöldum og það
er ekki síst fyrir þann hæfileika að
spila alltaf best þegar mest er
undir.
Keflavík er ekki öruggt með að
njóta krafta fyrirliða síns, Birnu
Valgarðsdóttur, sem hefur ekki
spilað í síðustu fimm leikjum og
var síðast í búningi í Grindavík
fyrir mánuði.
Keflavík er eina liðið sem hefur
unnið Hauka í vetur en sá sigur
kom í Keflavík 17. desember.
TaKesha Watson, sem hefur spilað
meidd eftir áramót, átti þá stórleik
sem og María Ben Erlingsdóttir
sem var óstöðvandi undir körfunni.
Watson var með 32 stig og 8 stoð-
sendingar en María Ben nýtti 13 af
18 skotum og skoraði 31 stig. Þetta
var langþráður sigur Keflavíkur-
liðsins á Haukum sem höfðu fyrir
leikinn unnið tíu leiki liðanna í röð.
Toppliðin berjast í bikarúrslitunum
Marín Rós Karlsdóttir,
leikmaður Keflavíkur, er búin að
spila flesta bikarúrslitaleiki af
öllum leikmönnum úrslitaleikj-
anna í ár. Marín Rós mun spila
sinn sjöunda úrslitaleik í dag og
getur orðið bikarmeistari í
fimmta sinn. Birna Valgarðsdótt-
ir, fyrirliði Keflavíkurliðsins,
mun spila sinn sjötta bikarúrslita-
leik í dag og þær Svava Ósk
Stefánsdóttir og Rannveig
Randversdóttir hafa báðar leikið
3 leiki. Engin hjá Haukum hefur
spilað meira en einn leik.
Marín Rós með
flesta leiki
Það hafa aðeins sjö
leikmenn úr liðum Hamars/
Selfoss og ÍR leikið bikarúrslita-
leik áður og þar af er Keith
Vassell, ÍR, sá eini sem hefur leik-
ið tvo leiki. Eiríkur Önundarson,
Hreggviður Magnússon, Ólafur
Sigurðsson og Steinar Arason
voru allir með ÍR í sigrinum á
Hamri fyrir sex árum og þá voru
einnig Lárus Jónsson og Svavar
Páll Pálsson í liði Hamars. Keith
Vassell lék tvo bikarúrslitaleiki
með KR, gegn Grindavík 2000 og
gegn Njarðvík 2002 en báðir
leikirnir töpuðust.
Keith er sá eini
með tvo leiki
Búumst við miklu betra Fylkisliði
Körfuknattleiksdeild
ÍR búður í dag til upphitunar-
hátíðar í ÍR heimilinu við
Skógarsel fyrir bikarúrslitaleik-
inn. Hátíðin sem hefst klukkan
13.30 hefur verið auglýst af krafti
í Breiðholtinu, meðal annars með
dreifimiðum í alla grunnskóla
hverfisins. Boðið verður upp á
pizzur og gos og þá er andlits-
málning verður fyrir krakkana.
Hápunktur dagskrárinnar verður
þegar sett verður heimsmet í
Stinger, sem er vinsæll skotleikur
á körfu. Unglingaþjálfarar ÍR
munu hafa umsjón með heims-
metstilrauninni.
Ætla að setja
heimsmet
Í gær var dregið í
forkeppni, 1. og 2. umferð
bikarkeppni karla og kvenna.
Einnig var öðrum leikjum í
keppninni raðað á daga. Úrslita-
leikur í karlaflokki fer fram 6.
október, viku síðar en úrslitaleik-
urinn síðastliðið haust. Úrslita-
leikur í kvennaflokki fer fram 22.
september.
Á nýliðnu ársþingi voru
samþykktar breytingar á
fyrirkomulagi bikarkeppninnar
en þær ganga ekki í gegn fyrr en
á næsta tímabili.
Úrslitaleikur-
inn í október