Fréttablaðið - 20.02.2007, Page 2

Fréttablaðið - 20.02.2007, Page 2
 Lögreglan í Reykjavík leitaði í gær og fann um fimmtíu stór tré við afleggjara út frá Krísuvíkurvegi í Hafnarfirði. Hún mun rannsaka hvort hugsanlega hafi staðið til að endurselja trén, en flutningur þeirra er partur af umdeildri fram- kvæmd Kópavogsbæjar í Heiðmörk. Kristinn Wium Tómasson, eftirlitsmaður Kópa- vogsbæjar með framkvæmdinni, segir engan fót fyrir hugsanlegum endursöluáformum. „Í samráði við garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar var ákveðið að halda í og reyna að bjarga trjám sem eru þrír metr- ar og undir. Þeim verður plantað aftur að fram- kvæmd lokinni. Þau voru sett á geymslusvæði og mold yfir ræturnar svo þau næðu að dafna þangað til að verktaki myndi ljúka verki og þá færu þau aftur upp eftir,“ segir hann. Klæðning ehf. færði trén á lóð Garðafells ehf. að beiðni Kópavogsbæjar, segir Kristinn, því þar hafi verið meiri líkur á að þau lifðu af en ella. Hann tekur skýrt fram að það hafi „alltaf verið eindreg- inn vilji Kópavogsbæjar að þau yrðu sett á sama stað aftur“. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, furðar sig á athyglinni sem framkvæmdin hefur fengið og viðbrögðum Skógræktarfélagsins. „Við munum bæta þetta tjón og punktur. Við ætlum ekki að vaða yfir einn eða neinn. Þetta er móðursýki, ég bara botna þetta ekki. Við gróðursetjum tré í stað- inn fyrir þessi, þannig að það verði til sóma.“ Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS ISUZU D-MAX 32” Nýskr. 01.07 - Sjálfskiptur - Ekinn 1 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 2.990 .000. - Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Atvikið átti sér stað við Eldsmiðjuna í Reykjavík, þar sem maðurinn hafði gengið berserksgang og slegið konu í andlitið með glerflösku með þeim afleiðingum að hún hlaut stóran skurð á ennið. Sauma þurfti skurðinn saman. Fram kemur að verið var að „steggja“ manninn, sem lenti í orðaskaki við gest. Stúlkan sem fékk flöskuna í andlitið starfaði á staðnum. Maðurinn var dæmdur til að greiða konunni 100 þúsund krónur í skaðabætur, auk 500 þúsund króna í sakarkostnað. Sló konu í and- litið með flösku Björn Oddsson hjá Línuborun ehf. segir fyrirtækið hafa yfir að ráða búnaði sem gæti borað fyrir stofnlögn Vatnsveitu Kópavogsbæjar þannig að hún lægi neðanjarðar. Línuborun hefur meðal annars borað fyrir lögn frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal niður að sjónum við Sæbraut. Með sömu tækni segir Björn að hægt hefði verið að ganga frá vatnslögn- inni í Heiðmörk án þess að valda jarðraski og skemmdum á gróðri. Björn segir að þótt Kópavogsbæ hafi verið fullkunnugt um að Línu- borun réði yfir þessari tækni hefði aldrei verið haft samband við hann vegna málsins. „Mennirnir vita alveg að ég á þessar græjur en það var aldrei talað við mig,“ segir Björn sem eins og flestir aðrir frétti fyrst af framkvæmdunum í Heiðmörk nokkru eftir að þær voru hafnar. Hann segist þá hafa farið á staðinn og skoðað aðstæður. „Þeir hugsa bara um að búa til skurðinn, ýta ofan í hann og svo eru þeir farnir,“ segir Björn sem telur að sennilega setji menn fyrir sig þann kostnað sem fylgir því að leggja lögnina neðanjarðar. Þar séu menn hins vegar að misreikna sig. „Þó að verðið sé kannski dýrara þegar maður segir töluna þá eiga menn eftir að reikna inn frágang- inn og jarðraskið. Þá kemur borinn alltaf ódýrari út,“ fullyrðir Björn. Að sögn Björns tæki það aðeins tvo til fjóra daga að bora undir ásinn þar sem nú er búið að ryðja burt miklu af trjágróðri. Það sé um 200 metra leið sem bora þurfi fyrir hina pípuna. Klöpp væri þar undir og borunin því í dýrari kantinum þar sem nota þyrfti mjög dýra bor- hausa. Kostnaðurinn gæti numið um 20 milljónum króna. „Það er nú ekki mikið miðað við allan þann skaða sem þegar er orðinn á þess- um stað,“ segir Björn. Kristinn Wium Tómasson, eftir- litsmaður Kópavogsbæjar með framkvæmdunum í Heiðmörk, segir tæki Línuborana ekki duga. Vatnslögnin væri 630 millimetrar en Línubor gæti mest borað 530 millimetra. „Þannig að sú fram- kvæmd fellur um sjálfa sig,“ segir Kristinn. Björn á hinn bóginn full- yrðir að Línubor geti vel ráðið við verkefnið. Gunnar I. Birgisson, bæjar- stjóri Kópavogs, segir að borunar- leiðin hafi ekki verið uppi á borð- inu. „Þetta er rosalega mikil lögn og kostnaðurinn yrði morð hugsa ég,“ segir bæjarstjórinn. Heiðmerkurlögn gat verið neðanjarðar Björn Oddsson hjá Línuborun ehf. segist vel hafa getað borað fyrir vatnslögn Kópavogsbæjar í Heiðmörk þannig að hún lægi undir yfirborðinu og gróður yrði ósnertur. Bæjarstjórinn segist telja þetta vera of dýra aðferð. Páll Magnússon útvarpsstjóri neitar að gefa upp heildarkostnað Ríkisútvarpsins vegna Söngvakeppni Sjónvarpsins sem lauk síðasta laugardagskvöld. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var kostnaðurinn á milli þrjátíu og fjörutíu milljónir króna. „Þessar tölur eru ekki gefnar upp af samkeppnisástæðum,“ segir Páll. „Við erum með við- skiptasamninga við aðila úti í bæ og gefum eðli málsins samkvæmt ekkert uppi um innihald þeirra.“ Fyrirtækið BaseCamp sá um framkvæmd keppninnar sem sýnd var í fjórum hlutum. Eins og fram hefur komið sigraði Eiríkur Hauksson og verður hann fulltrúi Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hann söng lag Sveins Rúnars Sigurðssonar við texta Kristjáns Hreinssonar. Stór hluti kostnaðar RÚV vegna keppninnar eru laun til lagahöf- unda, en samkvæmt heimildum fékk hver lagahöfundur í undan- keppninni hálfa milljón króna. Innifalið í þeirri upphæð eru laun til allra þeirra sem koma að lag- inu, svo sem söngvara, dansara og hljóðfæraleikara. Málið verður kært til úrskurðar- nefndar um upplýsingamál þegar skrifleg neitun hefur borist. Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja að þjóðin sé tilbúin til að kjósa sér konu til forseta, en fylgi við demó- kratann Hillary Rodham Clinton og repúblikan- ana John McCain og Rudolph Giuliani mælist nánast hnífjafnt í nýjustu viðhorfskönnunum vestra. Drjúgur meirihluti svarenda telur að kona á forsetastóli myndi sinna innanríkismálum á borð við heilbrigðis-, mennta-, félags- og orkumál, sem og viðbrögðum við náttúruhamförum, betur en karl. Konu er aðeins verr treyst í hermálum, samkvæmt niðurstöð- um könnunar Siena-stofnunarinn- ar fyrir Hearst-dagblöðin. Fylgi við konu á forsetastól Kristinn H. Gunnars- son hefur skráð sig sem félaga í Frjálslynda flokknum, og hefur jafnframt geng- ið til liðs við þingflokk Frjálslynda flokksins. Hann sat sinn fyrsta formlega fund með þing- flokknum í gær. Tilkynning um inngöngu hans í þingflokkinn var lesin upp af forseta Alþingis við upphaf þingfundar í gær. Að sögn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, þingflokksfor- manns Frjálslynda flokksins, tekur Kristinn við af Sigurjóni Þórðarsyni sem aðalmaður í iðnaðarnefnd auk þess sem hann verður áheyrnarfulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd. Formlega orð- inn frjálslyndur Lögreglan rannsakar flutning Skólastjórafélag Reykjavíkur harmar það að samninganefndir Launanefndar sveitarfélaganna og Kennarasam- bands Íslands hafi ekki náð samkomulagi um framkvæmd endurskoðunarákvæðis greinar 16.1. í samningi aðila frá árinu 2004. Skólastjórafélagið lýsir jafnframt yfir áhyggjum sínum komist aðilar ekki að niðurstöðu innan skamms. Þá skorar fundurinn á samn- inganefndirnar að taka upp þráðinn að nýju og freista þess að ná samkomulagi sem tryggir starfsfrið innan grunnskólans. Harmar að ekki náist sátt Kona á fimmtugs- aldri er talin hafa valdið eldsvoða í íbúð sinni í fjölbýlishúsi við Hringbraut í Reykjavík seint á sunnudagskvöld. Nágrannar konunnar höfðu haft samband við lögreglu vegna mikils reyks sem lagði frá íbúðinni. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og allir aðrir íbúar hússins komust heilu og höldnu út. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni var konan þó enn í sinni íbúð þegar slökkvilið kom á staðinn. Hún var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Íbúð konunnar er mikið skemmd, ef ekki ónýt, og töluvert tjón varð á annarri íbúð í stigaganginum. Konan á við geðræn vandamál að stríða og því er málið ekki rannsakað sem sakamál. Íbúi talinn hafa kveikt í sjálfur Friðbjörn, eiga íslensk yfirvöld að skammast sín?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.