Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 8
Þríhliða fundur
Condoleezzu Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, með Ehud
Olmert, forsætisráðherra Ísraels,
og Mahmoud Abbas, forseta Pal-
estínumanna, fór fram í Jerúsalem
í gær, en vonir sem fyrir fram
höfðu verið bundnar við að hann
kynni að marka nýjan áfanga í
friðarumleitunum brugðust.
Fundurinn stóð yfir í hálfa aðra
klukkustund og að honum loknum
ávarpaði Rice fréttamenn stutt-
lega. Hún greindi frá því að Olmert
og Abbas hefðu skipst á skoðunum
um framvinduna í stjórnmálunum
og ákveðið að hittast aftur.
Hvorki Olmert né Abbas tóku
þátt í blaðamannafundinum með
Rice. Hún svaraði heldur ekki
spurningum eftir að hafa flutt
ávarpið.
Síðar lét Olmert hafa eftir sér
að hann og Abbas hefðu orðið
ásáttir um að halda opnum sam-
skiptum sín í milli, „sem miðuðu
að því fyrst og fremst að bæta lífs-
skilyrði palestínsks almennings á
hinum ýmsu sviðum, og að sjálf-
sögðu að palestínska heima-
stjórnin héldi áfram baráttu gegn
hryðjuverkum – í reynd – til að
stöðva hryðjuverk með öllu.“
Þeir Abbas og Olmert ræddu
einnig að vopnehléssamkomulag á
Gazasvæðinu, sem gert var fyrir
þremur mánuðum, yrði einnig
látið ná til Vesturbakkans, að því
er Saeb Erekat, samningamaður
Palestínumanna, greindi frá.
Það dró úr væntingum til fund-
arins að bæði Ísraelar og Banda-
ríkjamenn höfðu lýst nýgerðu
samkomulagi palestínsku fylking-
anna í Hamas og Fatah um að
semja um myndun þjóðstjórnar
sem ófullnægjandi. Krafan er sú
að palestínska stjórnin, hvernig
sem hún er samsett, viðurkenni
Ísraelsríki og fyrri friðarsamn-
inga og afneiti ofbeldi.
Öll þrjú, Abbas, Olmert og
Rice, ítrekuðu að fast skyldi hald-
ið við leiðarvísinn til friðar, sem
hefur að markmiði að koma á
varanlegum friðarsamningi og
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna, og voru sammála um að
lausn á deilunni myndi ekki
„spretta úr ófriði,“ að sögn Rice.
Ákveðið var að halda annan
slíkan leiðtogafund, en ekki hve-
nær hann færi fram. Rice sagðist
gera ráð fyrir að snúa aftur fljót-
lega.
Lítil hreyfing
í átt að sátt
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna og leiðtogar
Ísraels og Palestínumanna hittust á sameiginlegum
fundi í Jerúsalem í gær. Vonir um að hann kynni að
marka nýjan áfanga í friðarumleitunum brugðust.
Útboð eru að fara
af stað vegna framkvæmda við
lokaáfanga á FH-svæðinu í Kapla-
krika í Hafnarfirði en áætlað er
að framkvæmdir hefjist 1. apríl.
Verkið verður boðið út í þremur
til fjórum áföngum á næstu
vikum. Verkinu á að vera lokið að
fullu í júníbyrjun 2009.
Kostnaður er áætlaður 1-1,2
milljarðar króna. FH greiðir
tuttugu prósent kostnaðarins.
Gunnar Svavarsson, formaður
bygginganefndar FH, segir að
framkvæmdin sé á vegum aðal-
stjórnar félagsins.
Samtals er um að ræða nýbygg-
ingar upp á sjö þúsund fermetra.
Meðal bygginga eru félags- og
skrifstofuaðstaða í Kaplakrika,
nýtt búningsherbergi, stúka og
skyggni, aðstaða fyrir fréttamenn
og keppnisstjórn, endurgerð á
eldra húsnæði, nýtt frjálsíþrótta-
hús, tækja- og lyftingasalur,
tengibygging og framkvæmdir
við lóð.
Framkvæmt fyrir
milljarð á FH-svæði
Landsbankinn og
Háskólinn í Reykjavík ætla að
styðja við bakið á afburðanáms-
mönnum við upphaf háskóla-
náms. Á dögunum var skrifað
undir samning um nýnemastyrk-
veitingu til allt að 35 slíkra nem-
enda á ári, sem nema skólagjöld-
um á fyrstu önn og 150.000
krónum í framfærslustyrk.
Í tilkynningu segir að þetta
sé gert til að hvetja framúrskar-
andi námsmenn til metnaðar-
fulls náms og til að auðvelda
þeim að helga sig náminu af
krafti. Svafa Grönfeldt, rektor
HR, og Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans,
skrifuðu undir samninginn fyrir
hönd HR og Landsbankans.