Fréttablaðið - 20.02.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 20.02.2007, Síða 10
 Ríkisstjórnir Póllands og Tékklands eru fylgjandi því að Bandaríkjamenn fái að setja upp búnað fyrir eldflaugavarnakerfi sitt í löndunum tveimur, sem á sínum tíma voru í Varsjárbandalaginu en gengu í Atlantshafsbandalagið árið 1999 og Evrópusambandið árið 2004. „Við vorum sammála um að báðar ríkisstjórnir myndu væntanlega gefa jákvætt svar við beiðni Bandaríkjastjórnar, og þá munum við hefja samn- ingaviðræður,“ sagði Mirek Topolanek, forsætisráð- herra Tékklands, eftir fund með pólskum starfsbróð- ur sínum, Jaroslaw Kaczynski í Varsjá. Háttsettur rússneskur hershöfðingi, Nikolai Solovt- sov, varaði Pólverja og Tékka við því að þeir hættu á að verða skotmark rússneskra eldflauga, samþykktu þeir að hýsa bandarískar eldflaugavarnastöðvar. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur sagst ekki treysta fullyrðingum Bandaríkjamanna um að eld- flaugavarnir þeirra í Evrópu væru aðeins hugsaðar til að mæta hættunni á eldflaugaárás frá Íran. Taka vel í eldflaugavarnir Iceland Express verður aðalstuðningsaðili Alþjóðlegu knattspyrnuhátíðarinnar í Reykjavík, REY CUP, næstu þrjú árin. Samningur þess efnis var undirritaður í húsakynnum flugfélagsins á dögunum. Hátíðin verður haldin næst 25. til 29. júlí á þessu ári, en í fyrra tóku rúmlega áttatíu lið þátt með samtals yfir þúsund keppendur. Í fréttatilkynningu segir að samningurinn muni stuðla að fjölgun erlendra félagsliða á mótinu, og mun Iceland Express einnig taka þátt í að kynna knattspyrnuhátíðina í gegnum markaðsstarf sitt erlendis. Verður bakhjarl fótboltamóts Sjúkraliðar afhentu í gær Steingrími Sigurgeirssyni, aðstoðarmanni Þorgerðar Katrín- ar Gunnarsdóttur menntamála- ráðherra, lista með undirskriftum tæplega 600 félaga í Sjúkraliða- félaginu til að mótmæla „helm- ingsafslætti“ á sjúkraliðanámi í framhaldsskólum landsins. Dagbjört Steindórsdóttir sjúkraliði er ein þeirra sem stóðu að mótmælunum. Hún segir að mikil óánægja og sundrung sé í Sjúkraliðafélaginu með þennan afslátt. Þriðjungur félaganna hafi skrifað undir listann, eða tæplega 600 manns af ríflega 1.500 félags- mönnum. Átök eru innan Sjúkraliða- félagsins og hafa tveir sjúkraliðar þegar ákveðið að bjóða sig fram gegn Kristínu Á. Guðmundsdótt- ur, núverandi formanni, á aðal- fundi félagsins sem haldinn verð- ur í lok maí. Þetta eru þær Guðrún Katrín Jónsdóttir og Helga Dögg Sverrisdóttir. Óánægja sjúkraliðanna er fyrst og fremst til komin í framhaldi af samkomulagi stjórnar Sjúkraliða- félagsins og menntamálaráðu- neytisins en samkvæmt því hefur verið tekið upp svokölluð sjúkra- liðabrú. Samkvæmt henni er metið til sextíu eininga, eða helmings af námi sjúkraliða fram að þessu, starf fólks sem hefur unnið í fimm ár á heilbrigðisstofnunum, er 23 ára að aldri eða eldra og hefur tekið minnst 230-260 stundir í námskeiðum á vegum stéttar- félaga. Dagbjört segir að nemar með þennan grunn þurfi því aðeins að taka 60 einingar til viðbótar til að ljúka námi sjúkraliða. Í ályktun sjúkraliðanna segir að stytting námsins sé „móðgun við alla starfandi sjúkraliða og sýnir mikið vanmat á störfum þeirra og menntun“. Hún sé gengisfelling á sjúkra- liðanáminu og muni veikja stétt og stöðu sjúkraliða. Þannig segir Dagbjört að tungumálanámið hafi til dæmis verið fellt niður en sjúkraliðar þurfi þó að sinna erlendu fólki á heilbrigðisstofnun- um landsins. Sjúkraliðar á mörgum deildum Landspítala – háskólasjúkrahúss eru afar óánægðir með þróunina. Á nokkrum deildum, til dæmis á B2, A7 og 12E, eru sjúkraliðar hættir að leiðbeina nemum með þennan bakgrunn og segir Dag- björt að sjúkraliðar ætli ekki að leiðbeina þeim sem koma í starfs- þjálfun árið 2008. Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélagsins, segir að ekki sé hægt að gera lítið úr óánægju innan félagsins. Um 500 undirskriftir hafi verið afhentar í menntamálaráðuneytinu, það sé kannski ekki stór hópur í 3.000 manna félagi. Stytting sjúkraliða- námsins hafi verið í bígerð í tólf ár. Nefnd hafi verið skipuð og henni sé hægt að skila tillögum um það sem megi leiðrétta og bæta. Tveir hafa lýst yfir framboði gegn Kristínu. „Það er öllum frjálst. Þetta er lýðræðislegt félag,“ segir hún. Sjúkraliðar deila um nýja námsleið Sundrung og óánægja er innan Sjúkraliðafélags Íslands. Tveir bjóða sig fram gegn sitjandi formanni. Sjúkraliðar mótmæla styttingu náms. Hvert er millinafn banda- ríska forsetaframbjóðandans Barack Obama? Hvað heitir kvennadeild Kiwanis-samtakanna? Hverjir unnu stjörnuleik NBA-deildarinnar aðfaranótt mánudags? Þetta er lýðræðislegt félag. RAUÐA KROSS NÁMSKEIÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU F í t o n / S Í A Heimsóknarvinanámskeið 3 klst. Ókeypis Vilt þú sinna heimsóknum til fólks sem býr við einsemd og einangrun? Undirbúningsnámskeið fyrir heimsóknavini Rauða krossins verður haldið 20. febrúar kl. 18–21 hjá Kópavogsdeild, Hamraborg 11 og 20. mars kl. 18–21 hjá Reykjavíkurdeildinni, Laugavegi 120. Þátttakendur af öllu höfuðborgarsvæðinu eru velkomnir. Grunnnámskeið Rauða krossins 3 klst. Ókeypis Námskeiðið er ætlað nýjum sjálfboðaliðum eða fólki sem hefur hug á að kynna sér hjálpar- og félagsstarf Rauða krossins. Farið er í upphaf og sögu hreyfingarinnar, grundvallarmarkmið, alþjóðleg mannúðarlög, stefnu Rauða kross Íslands og helstu áherslur í starfi félagsins innanlands og utan. Haldið á landsskrifstofu Rauða kross Íslands, Efstaleiti 9, 5. mars kl. 18–21. Slys á börnum 8 kennslustundir (tvö skipti) 5.700 kr. eða samtals 9.000 kr. ef par tekur þátt. Markmið: Að þátttakendur læri að þekkja varnir gegn slysum á börnum og orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi, endurlífgun barna og sálrænum stuðningi við börn. 26. febrúar og 5. mars kl. 18–21 hjá Kópavogsdeild, Hamraborg 11 og 29. mars kl. 18–21, hjá Garðabæjardeild, Hrísmóum 4. Skyndihjálp 5 kennslustundir 4.500 kr. Markmið: Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp, endurlífgun og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum. Haldið hjá Kópavogsdeild, Hamraborg 11, 6. mars kl. 18–22. 16 kennslustundir (þrjú skipti) 8.900 kr. Markmið: Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka. Haldið hjá Reykjavíkurdeild, Laugavegi 120, 12., 13. og 15. mars kl. 18–22. Skyndihjálparæfing 2 klukkustundir ókeypis Verkleg skyndihjálparæfing sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Nauðsynlegt er að skrá sig því uppsetning æfingarinnar gerir ráð fyrir hámark 24 þátttakendum. Reyndir skyndihjálparleiðbeinendur fara í gegnum nokkur tilfelli með þátttakendum og í lokin er gert ráð fyrir umræðum. Haldin í húsnæði Hafnarfjarðardeildar, Strandgötu 24, 14. mars kl. 19.30–21.30. Sálrænn stuðningur 6 kennslustundir 4.900 kr. Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju. Viðfangsefni eru meðal annars: Mismunandi tegundir áfalla, áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn, sálrænn stuðningur, stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks, sorg og sorgarferli.20. mars frá 17-21 hjá Kópavogsdeild, Hamraborg 11. Börn og umhverfi 16 kennslustundir 7.500 kr. Námskeiðið er fyrir unglinga, fædda 1995 og fyrr sem vilja fræðast um umgengni og framkomu við börn, slysahættur í umhverfi barna, slysavarnir og skyndihjálp. Þessi námskeið verða haldin hjá eftirfarandi deildum í apríl, maí og júní: Álftanesdeild, (Álftanesskóla), Garðabæjardeild (Hrísmóum 4), Hafnar- fjarðardeild (Strandgötu 24), Kjósarsýsludeild (Þverholti 7, Mos.), Kópavogsdeild (Hamraborg 11) og Reykjavíkurdeild (Laugavegi 120). Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðin fara fram á www.redcross.is, í síma 565 2425 eða með tölvupósti á hofudborgarsvaedi@redcross.is. Einnig er hægt að skrá sig hjá viðkomandi deildum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.