Fréttablaðið - 20.02.2007, Side 14
fréttir og fróðleikur
Þrjátíu ára gamalt ríki í Afríku
Óánægja inn-
an félagsins
INNBLÁSTUR FYRIR
SKÖPUNARGLEÐINA
Ókeypis Panduro Hobby
föndurlisti á íslensku!
Einnig fáanlegur í Skólavörubúðinni.
Borgartúni 29 Höfðabakka 3Glerárgötu 34
Á morgun rennur út sá
frestur sem Sameinuðu
þjóðirnar settu Írönum til
að hætta úranauðgun eða
sæta ella frekari refsiað-
gerðum. Íranar standa þó
enn sem fyrr fast á því að
þeir þurfi á kjarnorku að
halda til friðsamlegra nota.
Ali Larijani, aðalsamningafulltrúi
Írans í kjarnorkumálum, ætlar að
ganga á fund Mohammeds ElBara-
dei, yfirmanns kjarnorkustofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna, IAEA, í
Vínarborg í dag.
Í gær, aðeins tveimur dögum
áður en fresturinn rann út, hófust
síðan heræfingar í Íran, þær viða-
mestu frá því í mars árið 2006.
Talið er að um 60 þúsund hermenn
taki þátt í æfingunum, allt saman
menn í byltingarvarðliðinu,
úrvalshersveitum landsins.
Á fundi sínum hinn 23. desember
síðastliðinn ákvað Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna að beita
Írana refsiaðgerðum vegna þess
að þeir hafa ekki viljað hætta við
áform sín um að auðga úran, sem
gerir þeim kleift að eignast kjarn-
orkuvopn. Jafnframt samþykkti
ráðið að veita Írönum sextíu daga
frest til þess að verða við kröfum
ráðsins, að öðrum kosti yrðu frek-
ari refsiaðgerðir ákveðnar. Ekk-
ert bendir til annars en að Íranar
ætli sér ekki að hætta auðgun
úrans. Þvert á móti hafa Íranar
allar götur haldið fast í þá afstöðu
að þeir hafi fullan rétt til að stunda
kjarnorkuvinnslu í friðsamlegum
tilgangi, enda ætli þeir sér alls
ekki að nota kjarnorkuna til þess
að búa til kjarnorkuvopn.
Ali Khameini erkiklerkur ítrek-
aði þetta í sjónvarpsviðtali á laug-
ardaginn og sagði það ekkert
annað en „grunnhyggni“ að halda
því fram að Íranar þurfi ekki á
kjarnorku að halda. „Olíu- og
gasauðlindir endast ekki til eilífð-
arnóns. Sú þjóð sem hugar ekki að
framleiðslu fyrir framtíðarorku-
þörf sína verður ofurseld ríkjum
sem sækjast eftir yfirráðum,“
sagði Khameini.
Bæði Bandaríkin og Evrópuríki
hafa neitað að taka þessar yfirlýs-
ingar um friðsamlega notkun
kjarnorkunnar trúanlegar. Íranar
segjast hins vegar þurfa á kjarn-
orkunni að halda til að framleiða
rafmagn þegar olíulindirnar ganga
til þurrðar.
Íranar framleiða nú 4,2 milljón-
ir tunna af olíu á dag og talið er að
auðlindirnar geti með góðu móti
gefið af sér 137 milljarða tunna,
en það nemur um 12 prósentum af
heildarolíuforða jarðarbúa.
Deilurnar nú snúast hins vegar
um auðgun úrans, sem Íranar hafa
stundað þrátt fyrir andstöðu Vest-
urlanda. Auðgun úrangrýtis, sem
finnst í náttúrunni, er nauðsynlegt
til þess að það verði nothæft til
kjarnorkuvinnslu. Auðgunin, sem
svo er nefnd, felst í því að úranið
er gert geislavirkara, með því að
auka hlutfall geislavirkari sam-
sæta efnisins í úrangrýtinu. Þar
með aukast möguleikarnir á
kjarnaklofnun, sem eru ekki sér-
lega miklir í óauðguðu úrani.
Í febrúar síðastliðnum skýrðu
Íranar frá því að þeir hefðu auðg-
að úran og hefðu notað til þess 164
skilvindur, sérhæfðan tæknibúnað
sem bæði getur framleitt kjarn-
orkueldsneyti og efni í kjarnorku-
vopn.
Íranar hafa áform um að koma
sér upp 54.000 slíkum skilvindum.
Með þeim væri hægt að framleiða
kjarnorkueldsneyti sem dygði til
að reka þúsund megavatta kjarn-
orkuver í eitt ár. Á næstu tveimur
áratugum stefna Íranar að því að
framleiða 20 þúsund megavött af
raforku í kjarnorkuverum.
Í síðustu viku var búist við því
að Íranar myndu skýra frá því, að
þeir hefðu tekið 3.000 skilvindur í
notkun, en einhver töf hefur orðið
á því. Þó er ekki vitað hvers vegna
sú tilkynning kom ekki fram.
Á hinn bóginn fullyrti Mah-
moud Ahmadinejad, forseti Írans,
í síðustu viku að Íranar væru nú
orðnir fullfærir um að stunda
kjarnorkuvinnslu. Næstu tvo mán-
uðina verði síðan smám saman
skýrt frá nýjum áföngum Írana í
kjarnorkumálum.
Frekari refsiaðgerðum hótað
© GRAPHIC NEWS