Fréttablaðið - 20.02.2007, Page 17

Fréttablaðið - 20.02.2007, Page 17
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir tölvunarfræðing- ur þakkar breyttu mataræði þyngdartap. Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir tölvunarfræðingur hafði lengi átt við ofþyngd að stríða þegar hún leitaði til Íslensku vigtarráðgjafanna. Eftir það breytti líf hennar um stefnu. „Ég slysaðist á fund með vinkonu minni, en hafði samt ákveðnar efasemdir,“ segir Sigrún, sem hafði áður reynt ýmsar aðferðir til að losna við aukakílóin. Hún hafði til dæmis „hætt að borða nammi“, en stóð sig samt að því að halda uppteknum hætti. Þótt hún hafi verið meðvituð um að vera í yfirþyngd, taldi hún sig aldrei eiga við vandamál að etja. Að sögn Sigrúnar byggir boðskapur Íslensku vigtaráðgjafanna, sem margir kannast við sem „danska kúrinn“, á þeirri hugmynd að holdafar ráðist að mestu af mataræði. Mikið er borðað af grænmeti og ávöxtum, en neyslu sælgætis og áfengis sleppt og sykri haldið í algjöru lágmarki. „Mér var sagt að færi ég eftir þessum boðorðum tækju aukakílóin að hverfa. Ég sló því bara til. Fór út í búð og fyllti matarkörfuna af hollum mat og fór að skipuleggja betur mataræðið og mat- málstíma. Eftir það hef ég aldrei borðað eins mikinn og hollan mat og nú.“ Árangurinn lét ekki á sér standa. Kílóin runnu af Sigrúnu, að meðatali eitt á viku og þegar árið var á enda hafði hún lést um hvorki meira né minna en 46 kíló. Þótt hún hafi átt á brattann að sækja, segist hún aldrei hafa misst móðinn. „Það er ekki fyrr en ég komst í kjörþyngd að ég fór að slaka á. Nú þarf ég að losa mig við sex kíló og ætla að passa mig á að detta ekki aftur í gamla farið.“ Náði kjörþyngd á einu ári

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.