Fréttablaðið - 20.02.2007, Qupperneq 18
Kaffi hefur löngum verið þjóðar-
drykkur landans en nú hafa
margir tekið sig til og hætt að
drekka kaffi og drekka aðeins
grænt te til að öðlast betri
heilsu.
Seyði af jurtum hafa svalað þorsta
manna frá örófi alda og sagan segir
að teið hafi fyrst komið til sögunnar
þegar lauf af terunna fauk út í soðið
vatn keisarans í Kína.
Í Japan er tedrykkja eins konar
listform en Bretar drekka teið eins og
vatn, eða um 165 milljónir bolla á dag
samkvæmt breska teráðinu.
Svarta teið er um 78 prósent af
heimsframleiðslunni og er algengast
á Vesturlöndum en það græna er mest
drukkið í Japan og Kína.
Neysla á grænu tei hefur þó aukist
til muna á Vesturlöndum samhliða
auknum áhuga á heilsufari og matar-
æði.
„Svarta og græna teið er af sömu
plöntu, terunnanum camellia sinens-
is, en græna teið er unnið með ýmsum
aðferðum úr þurrkuðum telaufum og
það svarta er gerjað,“ segir Kolbrún
Björnsdóttir jurtalæknir.
Koffínmagnið í tei er um það bil
helmingi minna en í kaffi og hefur
sá þáttur mest áhrif á
þá sem hætta að
drekka kaffi
og fara yfir í
te.
Talið er að
mikil neysla á
koffíni geti dregið
úr nýtingu ýmissa
næringaefna og
stuðlað að kvillum
eins og mígreni,
síþreytu og jafnvel
flýtt fyrir öldrun húðar-
innar.
„Það er jafnmikið koff-
ín í grænu og svörtu tei, en það
græna er samt aðeins betra þar sem það
er ekki gerjað og hefur meira magn af andoxunarefn-
um sem eru góð fyrir okkur,“ segir Kolbrún sem sjálf
forðast kaffið og drekkur sparlega af grænu tei og segir
að þrír bollar á dag ættu að vera hámark. Breska te-
ráðið: www.tea.co.uk
Grænt teboð í stað kaffiboðs
Það þarf sennilega ekki að taka það fram að síminn
er sjálfsagt tæki á hverju heimili, og jafnvel hjá
hverjum einstaklingi eftir GSM-byltinguna. Flest
okkar notum vioð símann til nokkuð viðurkenndra
samskipta þar sem við komum fram undir eigin
nafni og persónu. Hins vegar eru einstaklingar sem
villa á sér heimildir og nota símann á ólöglegan
hátt. Hér getur verið um að ræða símaat, svindl í
gegnum síma, og það, sem er efni þessa pistils,
símaárátta (telephone scatalogia) eða „dónasímtöl“
(obscene phone calls).
Símaárátta er áráttukennd hegðun einstaklings
sem hann á erfitt með að stjórna. Flestir sem þjást
af þessum vanda eru karlmenn og hringja þeir nær
oftast í konur í þeim tilgangi að hræða, áreita, og/
eða vekja reiði. Hegðunin er flokkuð sem kynlífs-
frávik (paraphillia), þar sem einstaklingurinn sem
hringir ertist kynferðislega við athöfnina. Vegna
þeirra kynferðislegu áhrifa sem hegðunin og við-
brögð kvennanna vekja hjá einstaklingnum verður
erfiðara og erfiðara fyrir viðkomandi að hafa stjórn
á hegðun sinni, þar sem löngunin í kynferðislega
örvun af þessu tagi er mjög sterk.
Það er mikilvægt að aðgreina þennan vanda frá
símakynlífi (phone sex), af þeirri einföldu staðreynd
að flestir sem sækja í símakynlíf vilja að einstakl-
ingurinn hinum megin á línunni sé með í athöfninni
og tali við sig á kynferðislegan hátt. Þar af leiðandi
eru einstaklingar sem þjást af símaáráttu ekki sá
hópur sem sækir í símakynlífsþjónustu.
Þegar um er að ræða símaáreitni er athöfnin
einungis með vilja annars aðilans (þess sem hring-
ir) en veldur aftur á móti hinum aðilanum vanlíðan
og jafnvel áfalli (fórnalambið sem svarar síman-
um). Þetta er í raun svipað og það sem við þekkjum
með „flassara“, þá sem bera sig framan við ókunn-
uga, þar sem spennan felst í raun í að framkvæma
óæskilega athöfn gagnvart einhverjum sem ekki
vill og á ekki von á þessari hegðun. Eins og áður
hefur verið nefnt felst kynferðislega örvunin í
þeirri spennu sem það veldur að hringja í einhvern
og haga sér á ósæmilegan hátt. Neikvæð viðbrögð
fórnarlambsins verða þar af leiðandi hluti af kyn-
ferðislegri brenglaðri útrás þess sem haldinn er
þessari tegund símaáráttu. Hegðunina má þar af
leiðandi flokka sem eina tegund af kynferðislegri
áreitni.
Líklegt er að netbyltingin hafi gert það að verk-
um að þessi hegðun hafi þróast út í kynferðislega
áreitni á netinu. Hér er þá helst verið að tala um
spjallrásir fremur en tölvupóst, þ.e. fólk virðist
lenda frekar í kynferðislegri áreitni á spjallrásum
þar sem rauntímasamskipti sem kalla á viðbrögð
annarra í rauntíma, eru hluti af því sem þessir ein-
staklingar virðast vera að leita eftir. Rannsóknir á
konum sem taka þátt í spjalli á netinu, benda til að
mjög stór hópur hefur orðið fyrir einhvers konar
kynferðislegri áreitni án þess að vera sjálfar að
leita eftir kynferðislegum samskiptum, og konur
hafa kvartað yfir því hversu algengt það er að lenda
í áreitni í spjalli á netinu.
Eins og með margt annað, hefur netið gefið ein-
staklingum með þennan vanda meiri möguleika á
að fela hverjir þeir eru. Nafnleyndin gefur þeim
auk þess hugrekki til að viðhalda iðju sinni og má
telja líklegt að margir sem áreita aðra kynferðis-
lega á netinu séu þeir sömu og áður leituðu í síma-
áreitni.
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*