Fréttablaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 19
Stresshormónið kortisól losn-
ar út í blóðið við langvarandi
streitu. Inntaka efnisins getur
hins vegar minnkað stress
þegar litið er til skemmri
tíma.
Þýskir vísindamenn hafa gert
tilraun á stresshormóninu kort-
isól og fengið athyglisverðar nið-
urstöður. Kortisól losnar út í
blóðrásina við langvarandi stress
og getur það valdið veikingu
ónæmiskerfisins og þunglyndi.
Áhrif þess eru þó ekki einungis
slæm því efnið virðist minnka
stress sé það losað tímabundið út í
líkamann.
Rannsóknin fór þannig
fram að konum var annars
vegar gefin lyfleysa og hins
vegar 30 mg af kortisóli. Kon-
unum var svo komið í
stressandi aðstæður sem
byggðust upp á atvinnuviðtali
fyrir framan kuldalega vinnu-
veitendur í óþægilegu
umhverfi. Þær konur sem
fengu lyfleysu urðu flestar
stressaðar, en þær sem fengu
kortisól fundu fyrir mun
minna stressi.
Vonir standa til að hægt
verði að nota kortisól til að
minnka áfallastreitu og lækna
þá sem þjást af áfallastreitu-
röskun.
Stresshormón jákvætt fyrir konur
Heilmikið er um að vera í
Manni lifandi á næstunni.
Nokkur áhugaverð námskeið og
fyrirlestrar eru á boðstólum hjá
Manni lifandi í Borgartúni 24 á
næstunni.
Á fimmtudaginn heldur íþrótta-
fræðingurinn og einkaþjálfarinn
Goran Kristófer Micic fyrirlestur
sem ber heitið Hlustaðu á líkama
þinn − sex skref til fullkominnar
heilsu! Fyrirlesturinn fer að mestu
fram á ensku og hefst klukkan
17.30.
Opinn hláturjógatími fer fram
laugardaginn 24. febrúar. Í hlátur-
jóga getur hver sem er hlegið í
hópi, án tilefnis, án þess að segja
brandara, án húmors eða fyndni.
Tilgangurinn er að efla og styrkja
líkama og sál. Hláturjóga er
blanda af hláturæfingum og jóga-
öndun. Til að kalla fram hláturinn
eru notaðar ákveðnar æfingar og
með augnsambandi verður hlátur-
inn fljótt eðlilegur. Ásta Valdi-
marsdóttir hefur umsjón með hlát-
urjóganu í þetta skipti en allir eru
velkomnir.
Kolbrún Björnsdóttir grasa-
læknir heldur fyrirlestur þriðju-
daginn 27. febrúar um hreinsun
líkamans með jurtum og mat. Fyr-
irlesturinn hefst klukkan 17.30 og
stendur til 19.00.
Hlegið og
hreinsað
Dreifingaraðili , S.L.I ehf. , Sími: 866 9512
Fæst hjá:
Aftur til náttúru
STERK B-BLANDA