Fréttablaðið - 20.02.2007, Side 20
www.svefn.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
–
S
T
ÍN
A
M
.
/
F
ÍT
Sítrónupressa
MCP 3500
Pressar safann úr
sítrusávöxtum.
Kanna tekur 0,8 l.
Verð: 3.500 kr.
Safapressa MES 1020
Pressar bæði ávexti og grænmeti.
Safakanna sem skilur froðu frá.
Auðveld í þrifum.
Tækifærisverð: 7.500 kr.
Fólk sem hlotið hefur heila-
skaða m.a. vegna slysa eða
ofbeldisverka, aðstandendur
þess og fagfólk með þekkingu
á málefninu munu stofna hags-
munafélag annað kvöld á 9.
hæð í Hátúni 10 í Reykjavík.
„Oft líða einhver ár þar til afleið-
ingar slysa eða áverka koma í ljós
hjá einstaklingi. Þá fer að verða
vart breytinga, hann missir tökin
á vissum þáttum og það koma upp
erfiðleikar í daglegu lífi. Hann
hættir að tengja saman orsök og
afleiðingu og lærir ekki af reynsl-
unni með sama hætti og áður.
Ræður ekki við að halda utan um
fjármál sín, veldur ekki vinnunni
og fjarlægist fjölskylduna. Þá
hefur kannski orðið skaði á fram-
heila sem á rætur að rekja til
vinnuslyss, umferðarslyss eða
ofbeldisverks mörgum árum fyrr
en var ekki greinanlegur á sínum
tíma. Þetta er mjög falinn hópur.“
Þannig lýsir Olga B. Jónsdóttir
félagsráðgjafi einkennum á duld-
um heilaskaða. Olga starfar á
þekkingarstöð í málefnum fatl-
aðra hjá Reykjavíkurborg og
hefur unnið að undirbúningi
stofnunar nýs hagsmunafélags
fólks með heilaskaða og aðstand-
enda þess. Stofnfundur félagsins
er á morgun í Hátúni 10 og Olga
er spurð hver markmið þess séu
og hverju það eigi að áorka.
„Í fyrsta lagi er félagið stofnað
til að auka skilning á högum
þeirra sem hafa hlotið heilaskaða
og leita eftir aðstoð og þjónustu
þeim til handa. Aðstandendur
þeirra þurfa vettvang að leita til
svo þeir geti talað við aðra í sömu
aðstæðum. Það þarf að koma
meiri fræðsla um vandamálin
sem þessir hópar eiga við að etja
því þau geta verið margvísleg og
bæði á lágu stigi og háu.“
Þar sem Olga starfar við
félagsþjónustu talar hún af
reynslu. „Það er ekki alltaf nóg að
sleppa lifandi úr slysi því sumir
verða aldrei samir eftir. Persónu-
leikabreytingarnar geta komið
fram smám saman og eru í sumum
tilfellum vægar en stundum
þannig að ættingjarnir þekkja
einstaklinginn ekki fyrir sama
mann.“ Hér er Olga vissulega að
lýsa heilsufarslegum vanda en
sér hún fyrir sér að kerfið taki á
honum á einhvern hátt?
„Heilbrigðiskerfið og félags-
kerfið verða að taka höndum
saman og koma með úrræði fyrir
hópinn.
Svo þegar kemur að endur-
menntun eða hugsanlegri skóla-
göngu þarf menntamálaráðuneyt-
ið líka að gera ráð fyrir þessum
einstaklingum,“ svarar hún. En
hvar er þetta fólk staðsett núna?
„Sumir eru enn að vinna en eru
kannski svolítið upp á kant við
sína nánustu. Ýmsir eiga mjög
sterka aðstandendur sem eru í
stöðugri baráttu við að halda
þeim á veginum. Aðrir eru búnir
að brjóta allar brýr að baki sér og
eru komnir á götuna, atvinnulaus-
ir og í miklum erfiðleikum.“
Olga situr sjálf í fagráði um
heilaskaða og það ráð verður aðili
að hinu nýja félagi. „Að mínu mati
er mjög þarft að stofna svona
samtök,“ segir hún og kveðst vita
um marga sem séu tilbúnir að
leggja þeim lið.
Fólk með dulinn heila-
skaða er falinn hópur
Rautt og gult er yfirskrift nám-
skeiða um hollt mataræði í
Heilsuhúsinu í Lágmúla annað
kvöld og á sunnudaginn.
Námskeiðið Rautt og gult er haldið
til minningar um Margréti
Björgólfsdóttur sem var frum-
kvöðull í matreiðslu grænmetis-
fæðis og rak meðal annars fyrir-
tækin Morgun-gull og Mensu.
Kenndar verða aðferðir til að elda
ljúffenga og holla grænmetisrétti
á einfaldan hátt og fjallað um líf-
ræna ræktun, samsetningu nær-
ingarefna og tengsl matar og til-
finningar. Hægt er að skrá sig hjá
Berglindi í síma
895 8820 eða á
netfangið ski@
hi.is Innifalið í
námskeiðinu er
matur, mappa
með uppskriftum
og upplýsingum
um samsetningu
næringarefna og
lífræna ræktun,
ásamt óvæntum
glaðningi í lokin.
Matur og
tilfinningar