Fréttablaðið - 20.02.2007, Síða 26
20. FEBRÚAR 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 fréttablaðið food and fun
„Það leggst ótrúlega vel í mig að
taka þátt í þessu Food and Fun
dæmi,“ segir Hermann Marínós-
son, kokkur á veitingastað Hótel
Holts. „Núna erum við að fá til
okkar matreiðslumanninn Henrik
Bernvik, en hann starfar á Baga-
telle, þriggja Michelin-stjarna stað
í Ósló. Ef Henrik kemur ekki með
góð áhrif til okkar þá gerir það
enginn,“ segir og heldur áfram.
„Henrik þessi hefur gífurlega
mikla reynslu af starfinu og hefur
unnið á mörgum flottustu stöðum
heims. Hann er sannkölluð stjarna
í bransanum. Yfirleitt staldrar
hann ekki lengi við á hverjum stað
heldur mætir á svæðið, töfrar
fram einhverja snilld og heldur
síðan annað til að vinna fleiri sigra.
Við erum gríðarlega spenntir fyrir
því að fá hann og við hlökkum
mikið til hátíðarinnar,“ segir Her-
mann og bætir því við að Food and
Fun hátíðin hafi haft mjög jákvæð
áhrif á orðspor Íslendinga í þess-
um geira.
„Núna eru Ísland á lista sem
eitt af tíu bestu löndum heims í
matargerð. Jafnvel þó að við séum
ekki með ferskar kryddjurtir úti í
garði þá erum við í toppklassa
hvað allt annað varðar. Heildsalar
á Íslandi standa sig líka margir
hverjir ótrúlega vel hvað varðar
innflutning á góðu hráefni og því
höfum við kokkar ekki yfir miklu
að kvarta.“
Matseðillinn sem stjörnu-
kokkurinn Henrik Bernvik hefur
búið til fyrir Holtið inniheldur
meðal annars krabbakjöt í forrétt,
lambakjöt í aðalrétt og súkkulaði-
eftirrétt. „Þetta er það eina sem
við vitum enn sem komið er. Hann
á eftir að senda okkur nánari lýs-
ingar á aðferðum og fleiru, en
þetta verður eflaust eitthvað stór-
kostlegt,“ segir Hermann að
lokum.
- mhg
Sænskur stjörnukokkur
Hermann Marínósson á Holtinu er með
einbeitinguna í lagi við skreytingarnar
enda skiptir útlitið ekki minna máli en
bragðið þegar veisluréttir eru bornir fram.
Dádýralundir með jarðsveppakrókettu
og myrkilsveppasósu. Þessa dagana
er lögð sérstök áhersla á rétti sem
innihalda jarðsveppi á veitingahúsi
Holtsins.
Jarðsveppa crème caramel með eplaseyði. Jarðsveppir eru með dýrasta hráefni jarðar og þykja mikið lostæti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Við fáum til liðs við okkur Willi-
am Kovel frá Bandaríkjunum,“
segir Elmar Kristjánsson,
yfirmatreiðslumaður í Perlunni.
„Hann er búinn að senda okkur
matseðilinn en hann verður fjög-
urra rétta. Við byrjum á krabba-
salati með sítrusdressingu, þá
kemur lax, lambalundir í aðalrétt
og loks sítrónubaka í eftirrétt.“
Elmar segir hátíðina alltaf
leggjast vel í starfsfólkið í Perl-
unni. „Það er alltaf fullt hjá okkur
og það myndast heilmikil stemn-
ing í kringum þetta og við mynd-
um smá tengsl við erlendu kolleg-
ana. Við reynum náttúrulega
alltaf að taka á móti þessum
mönnum, nánast eins og þjóð-
höfðingjum enda höfum við feng-
ið það endurgoldið þegar við
förum eitthvað annað,“ segir
Elmar og bætir því við að hátíðin
verði skemmtilegri með hverju
árinu en Perlan hefur verið með í
hátíðinni frá upphafi.
Skemmtilegra
með hverju árinu
Glæsilegur fiskréttur að hætti Perlunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK
Árni Þór Jónsson, matreiðslumaður í
Perlunni, undirbýr fiskrétt.
Það sem ber hæst hjá okkur á Food
and Fun hátíðinni er franski gesta-
kokkurinn sem við verðum með,“
segir Steinn Óskar Sigurðsson,
yfirkokkur á Silfri. „Þetta er mest
megnis í hans höndum því hann
útbýr matseðilinn fyrir mig,“
bætir hann við. „Mér skilst að
hann sé mjög efnilegur kokkur í
Frakklandi en hann er mjög ungur
miðað við frönsku kokkastéttina
og vinnur sig nú hratt upp á
stjörnuhimininn þar.“
Steinn segir það mikinn heiður
að fá þessa öflugu menn til viðbót-
ar við þá góðu sem fyrir eru. „Við
verðum með fjögurra rétta mat-
seðil auk lystauka sem við bjóðum
upp á. Í grófum dráttum þá eru
kræklingar og franskar í lystauka,
humar í forrétt, makkarónur og
trufflur í millirétt, skötuselur og
reyktur kavíar í aðalrétt,“ segir
Steinn en hann telur það hafa
mikið að segja fyrir íslenskt veit-
ingalíf að halda þessa hátíð. „Það
eru margir sem vita af þessu og
löngu orðið fullt hjá okkur. Eftir-
væntingin er því greinilega mikil
bæði hjá okkur og okkar viðskipta-
vinum,“ segir Steinn sem hefur
mjög góða reynslu af Food and
Fun hátíðinni undanfarin ár.
-sig
Mikil eftirvænting ríkir
Steinn Óskar Sigurðsson, yfirmatreiðslu-
maður á Silfri, vandar sig við að raða
glæsilegum rétti á disk. Hann segir
löngu orðið fullt á Silfri á meðan Food
and Fun hátíðin stendur yfir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Spennandi og girnilegur réttur frá Steini
Óskari á Silfri.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON