Fréttablaðið - 20.02.2007, Page 30
20. FEBRÚAR 2007 ÞRIÐJUDAGUR8 fréttablaðið food and fun
Veitingastaðurinn Einar Ben við
Ingólfstorg er nefndur eftir einum
framsæknasta Íslendingi síðustu
aldar, Einari Benediktssyni. Til
þess að standa undir nafni leggja
matreiðslumenn staðarins sig
fram um að töfra fram spennandi
rétti úr fyrsta flokks íslensku hrá-
efni. Steinar Þór Þorfinnsson er
yfirkokkur á Einari Ben og hefur
verið starfandi í eldhúsinu þar
undanfarin tvö ár.
„Það leggst mjög vel í mig að
taka þátt í Food and fun hátíðinni,
flakka á milli veitingastaða og
prófa réttina sem verða fram-
reiddir. Til okkar kemur mat-
reiðslumaðurinn Margarita
Mazurova frá Rússlandi. Hún er
orðin vel þekkt í sínu landi fyrir
að taka rússneskan mat og fram-
reiða hann á nýstárlegan hátt, en
það er í raun það sama sem við
reynum að gera hérna á Einari
Ben, þannig á ég von á því að geta
lært eitthvað skemmtilegt af
henni. Ég er reyndar ekki mikið
inni í rússneskri matreiðslu svo
það verður líka gaman að kynna
sér þá nýju strauma.“
Steinar Þór segir hátíðina
mikilvæga fyrir matreiðslumenn
landsins. „Það fara margir út að
borða þann tíma sem hátíðin stend-
ur yfir og flestir hafa mjög gaman
af. Á sama tíma er sérstaklega
áhugavert að fá að kynnast því
sem er að gerast í öðrum löndum
og eiga samskipti við þessa
erlendu gesti sem hingað koma,“
segir Steinar Þór, sem bíður
spenntur eftir því að fá að sjá hvað
verður í boði á veitingastöðum
borgarinnar vikuna 21.-25. febrú-
ar, enda ætlar hann sér að vera
duglegur að fara út að borða.
Andi skálds í eldhúsinu
Lambaskanki með rjómasoðnu grænmeti og rauðvínsgljáa. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Saltfisk brandade með súrmjólkur- og
piparrótarfroðu. Steinar Þór Þorfinnsson, yfirkokkur á Einari Ben.
„Frá miðvikudegi til sunnudags
ætlum við að vera með matseðil-
inn sem indverski kokkurinn,
Wikram Garg, hefur útbúið og
verður öll kvöldin,“ segir Hrefna
Jóhannsdóttir Sætran,
yfirmatreiðslumaður á Sjávar-
kjallaranum. „Þetta er mjög
spennandi matseðill og ber keim
af því að kokkurinn er indverskur.
Það verður túnfiskstartar í for-
rétt, humar og síðan lamb á tvenna
vegu í aðalrétt. Hann gerir þetta
náttúrlega sjálfur þannig að við
bíðum spennt og erum komin með
vatn í munninn af eftirvæntingu.“
Hrefna segir alla mjög spennta
á staðnum og að margir hafi pant-
að sér borð. „Við höfum verið með
í hátíðinni frá því staðurinn var
opnaður árið 2003 svo þetta er í
fjórða skipti og það er mikil
spenna í loftinu,“ segir Hrefna.
Indverskur keimur
Spennandi sjávarréttur frá Hrefnu á
Sjávarréttakjallaranum.
Hrefna Jóhannsdóttir Sætran er yfirmatreiðslumaður á Sjávarkjallaranum og er mjög
spennt yfir komu indverska kokksins Wikram Garg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON