Fréttablaðið - 20.02.2007, Qupperneq 32
fréttablaðið farið á fjöll 20. FEBRÚAR 2007 ÞRIÐJUDAGUR10
Kanadíski kokkurinn Dennis John-
ston verður gestakokkur á Rauð-
ará á Food and Fun í ár. „Hann
þykir einn alfremsti kokkurinn í
Kanada og leggur áherslu á jap-
önsk áhrif í vestrænni matar-
gerð,“ segir Stefán Stefánsson
kokkur á Rauðará. Johnston rekur
veitingastaðinn Sid í Halifax sem
Stefán segir mjög nútímalegan.
„Það er ótrúlega gaman að fá
svona reyndan mann,“ segi Stefán
sem telur sig hafa verið mjög
heppinn með kokka undanfarin ár.
Hátíðin hafi leitt til þess að
íslenskir kokkar hafi komist í sam-
band við heimsþekkta matreiðslu-
menn og lært mikið af þeim. John
Bess, sem vann keppnina hér um
árið, var til að mynda á Rauðará
og hefur það orðið til þess að kokk-
ar af Rauðará hafa fengið tæki-
færi til að fara út á veitingastað
hans í New Orleans.
Stefán segir kokkana engar
prímadonnur, hins vegar hafi þeir
ekki mikinn tíma í eldhúsinu þar
sem þeir þurfi að sinna öðrum
verkefnum. Hins vegar setja þeir
mark sitt á veitingastaðinn með
sérvöldum matseðli. Johnston
ætlar til að mynda að elda salt-
fisksköku í japönsku raspi í for-
rétt, stökksteikta bleikju með jap-
önskum sveppum í millirétt,
lambarétt að hætti Sids í aðalrétt
og súkkulaðiköku að hætti John-
stons í eftirrétt.
Japönsk áhrif
„Gestakokkurinn okkar heitir
Pierre Wind, Hollendingurinn
fljúgandi,“ segir Þórarinn Egg-
ertsson yfirkokkur á veitingahús-
inu Salti. „Pierre er einn frægasti
sjónvarpskokkur Hollendinga en
hann er með tvo sjónvarpsþætti
þar í landi.“
Pierre mun bjóða upp á svolít-
ið villtan matseðil á hátíðinni.
„Hann verður til dæmis með
kjúklingasúpu litaða með kol-
krabbableki og bragðbætta með
lakkrís og súrkálsís í eftirrétt.
Þetta er svona mesta ruglið í
þessum matseðli. Ég get lofað
fólkinu að þetta verður alveg
svakalega gott, maður bíður bara
spenntur. Þetta verður góð máltíð
og skemmtileg kvöldstund,“ segir
Þórarinn.
Veitingastaðurinn Salt er þó
ekki alltaf svona villtur. „Salt
flokkast undir klassískan veit-
ingastað. Við bjóðum upp á
franska matargerð með smá
snúningi og erum til að mynda að
leika okkur með alls konar froð-
ur, loft og reyk. Við setjum
frönsku klassíkina í algjörlega
nýjan búning,“ segir Þórarinn.
Þórarinn eldaði risahörpuskel
og andalifur með kóngasveppa-
froðu fyrir Fréttablaðið en rétt-
inn má finna á kvöldmatseðli veit-
ingahússins.
Hollendingurinn
fljúgandi
Boðið er upp á risahörpuskel og anda-
lifur með kóngasveppafroðu á kvöld-
matseðli veitingastaðarins Salt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Veitingastaðurinn Vox við Suður-
landsbraut fær meistarakokkinn
Kai Kallio frá Finnlandi til liðs
við sig á Food and Fun hátíðinni.
„Hann ætlar að vera með alveg
dúndrandi fimm rétta matseðil
og mér líst alveg rosalega vel á
þetta hjá honum,“ segir Sigurður
Gíslason, yfirkokkur á Vox. „Kai
ætlar að vera með kóngakrabba í
forrétt með tómatseyði, lúðu
steikta í karrísmjöri í millirétt,
lambasteik í aðalrétt og súkku-
laðiköku í eftirrétt,“ bætir Sig-
urður við en staðurinn er að
verða fullbókaður yfir hátíðina.
„Það hefur aldrei verið jafn mikil
aðsókn hjá okkur eins og núna í
kringum þessa hátíð,“ segir hann
glaður í bragði.
„Við notum íslenskt hráefni en
annars er mjög gaman að fá
svona snillinga hér inn og maður
fer í annan gír. Það er bara keyrt
á þessum eina matseðli og hér
fyllist allt af fólki, þannig að
þetta er mjög skemmtilegt,“
segir Sigurður en Vox tekur þátt í
hátíðinni í fjórða sinn nú í ár.
- sig
Allt fyllist af fólki
Girnilegur matur á veitingastaðnum Vox. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Elísabet Þorvarðardóttir matreiðslu-
nemi stendur einbeitt yfir pottunum á
Vox.
Stefán Stefánsson kokkur á Rauðará eldaði þennan forrétt fyrir lesendur af matseðli
Rauðarár. Steiktur skötuselur vafinn inn í beikon, með papriku og púrrulauk, mangó
og teryaki-sósu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þórarinn leggur lokahönd á verkið.