Fréttablaðið - 20.02.2007, Qupperneq 41
[Hlutabréf]
Síminn, Landsvirkjun og Fjarski
hafa fallist á að hafa haft með
sér ólögmætt samráð í tengslum
við kaup Símans á eignarhlut í
Fjarska, og við kaup Símans á
sex ljósleiðarastrengjum á milli
Hrauneyjarfossstöðvar og
Akureyrar.
Fyrirtækin borga fyrir vikið
80 milljónir króna í stjórnvalds-
sekt.
Síminn, Landsvirkjun, Fjarski
og Samkeppniseftirlitið gerðu
með sér sátt í kjölfar rannsókn-
areftirlitsins. Í henni felst að
aðilar málsins viðurkenna að
hafa farið gegn 10. gr. sam-
keppnislaga og fallast á að
ógilda þá samninga sem voru
grundvöllur brota.
„Þá fellst Síminn á að greiða
55 milljónir í stjórnvaldssekt og
Landsvirkjun 25 milljónir. Litið
var til þess að Síminn var
leiðandi aðili í samráðinu sem
skýrir mismun á sektarfjár-
hæð,“ segir Samkeppniseftirlit-
ið.
Síminn leiddi
ólöglegt samráð
Alfesca hefur keypt franska skel-
fiskframleiðandann Adrimex SAS.
Félagið rekur tvær verksmiðjur í
borginni Nantes en um 120 manns
vinna hjá félaginu í fullu starfi.
Kaupverðið er 21,2 milljónir evra
sem samsvarar um 1,9 milljörðum
íslenskra króna.
Meðal helstu afurða Adrimex
eru heitsjávarrækjur tilbúnar til
neyslu, grillrækjur á teini og í
grillbökkum, rækjuhringir og
frystar rækjur. Árssala á síðasta
reikningsári nam 56,4 milljónum
evra sem var fjórtán prósenta
aukning frá árinu á undan. EBIT-
DA félagsins á tímabilinu var 3,35
milljónir evra sem nemur tæpum
300 milljónum íslenskra króna.
Í fréttatilkynningu vegna kaup-
anna er haft eftir Xavier Govare,
forstjóra Alfesca, að Adrimex efli
eina af meginstoðum samstæð-
unnar á lykilmarkaði, renni styrk-
ari stoðum undir fjárhag sam-
stæðunnar og auki fjölbreytni
framleiðslunnar. „Staða Adrimex
á markaði fyrir skelfiskafurðir er
mjög sterk og félagið fellur mjög
vel að núverandi rekstri Alfesca.
Hvort tveggja gerir okkur kleift
að styrkja rekstur Adrimex á afar
áhugaverðum og ört vaxandi
markaði.“
Alfesca hyggst reka Adrimex
sem sjálfstætt félag. Gert er ráð
fyrir að töluverð samlegðaráhrif
verði vegna kaupanna, ekki síst
hvað varðar hráefniskaup, vöru-
þróun, vörumerkjastefnu og þekk-
ingu á markaðnum auk samlegðar
á sviði stjórnunar.
Alfesca kaupir Adrimex SAS
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Evrópsku flugvélasmiðirnir hjá
Airbus hafa ákveðið að fresta
því að tilkynna um fyrirhuguð
hagræðingaráform hjá fyrirtæk-
inu. Ástæðan er sú að ekki hafa
náðst sættir við dótturfélög
Airbus víðs vegar í Evrópu.
Óttast er að tæplega 60.000
manns hjá Airbus missi vinnuna.
Tafir á framleiðslu A380
risaþotu Airbus hafa valdið því
að afhending á þotunum hefur
dregist um tvö ár sem aftur
hefur leitt til þess að nokkur
flugfélög hafa dregið pantanir
sínar til baka auk þess sem hrikt
hefur í stoðum EADS, móðurfé-
lags Airbus.
Vonast er til að með aðgerð-
unum verði hægt að spara fimm
milljarða evra, jafnvirði 438,25
milljarða íslenskra króna, á
næstu þremur árum.
Airbus frestar
hagræðingu