Fréttablaðið - 20.02.2007, Side 44
Ég sá hana bara og
pæng! Ég fann þetta
mikla högg og allt í
einu streymdi blóð úr
eyrunum á mér!
Og út um nefið, já ástin hún
getur verið svo falleg!
Mér tókst það! Ég notaði
raddgreiningarforritið
til að skrifa bréf fyrir
mig!
Vel gert
pabbi!
Já, svo prentaði ég það út og
setti í umslag, rölti svo að næsta
póstkassa með afgangs frímerki
frá öllum jólakortunum sem við
sendum og póstlagði!
Ég er alveg
ótrúlega stoltur!
Ég er alveg
ótrúlega
pirraður!
Ást við
fyrstu sýn ...
Tístudýrið
mitt!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst! Tíst!
Tíst!
Tíst!Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst! Tíst!
Tíst!Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!
Tíst!Tíst!
Tíst!Tíst!
Skemmtun fyrir alla
fjölskylduna!
Tíst!
Hlynur hér ...
Hæ Hannes, varstu að fá
nýjan leikfangabíl?
Já finnst þér
hann ekki
hljóma flott?
Forval Eurovision er hálf-
gerður vorboði og því ekki
skrítið að einhverjir skuli
rasa um ráð fram þennan
laugardag í febrúar, teyga
ódýrt rauðvín, gefa krökk-
unum bónussnakk og jafnvel grilla í
frostinu. Það er vel hægt að taka
generalprufu á aðalpartíið í maí.
Framlag þjóðarinnar skal valið
og enn og aftur komið tækifæri til
að sýna þessum stórþjóðum úti í
heimi hvar Björk og Sigur Rós
keyptu ölið. Þeir eru að vísu fleiri
sem hættir eru að líta á keppnina
sem dauðalvarlega dómsmeðferð og
reyna þess í stað að taka dæminu
létt. Enda agalegt að fjölskyldan
fari öll grátandi í háttinn þegar ljóst
er að meginlandinu finnst íslenska
lagið ljótt og leiðinlegt.
Þrátt fyrir að Eurovision sé í
flestum tilvikum ruslakista fyrir
lélegar lagasmíðar má þó spotta
ágætis laglínur inni á milli. Söngv-
ararnir gefa sig í það minnsta alla í
verkefnið og láta sig hafa það að
klæðast oft á tíðum „umdeildum“
klæðnaði. Eurovision á mun stærri
sess í hjörtum Íslendinga en þeir
flestir vilja viðurkenna. Flestir hafa
gert upp hug sinn hvaða lag er best
og hvaða lag er verst og hvaða lög
eru hugsanlega stolin frá Björgvini
Halldórs. Það er með hreinum ólík-
indum að þetta eina kvöld skuli allir
sameinast í að skeggræða lagasmíð-
ar sem í flestum öðrum tilvikum
væru álitnar hreinasta hörmung.
Börnin taka virkan þátt í sturlun-
inni sem heltekur heimilið. Heimta
afnot af farsímum foreldranna og
kjósa lögin sem þau geta sungið
með. Þeim er alveg sama þótt text-
inn sé bjagaður og óskiljanlegur,
þótt nokkur orð vanti hér og þar.
Bara ef lagið fær þau til að hrista
sig og skekja. Daginn eftir vakna
þau síðan með laglínuna á vörunum
og halda uppi skemmtuninni með
eigin útfærslu af sigurlaginu við
misjafnar undirtektir. Enginn er
laus úr viðjum Eurovisjon fyrr en
botninum hefur verið náð í maí. Og
þá er spurning hvað og eða hvern
við tökum fyrir og skellum skuld-
inni á ef ófarirnar eru miklar. Það er
úr nokkru að velja svo sem ljótir
búningar, vond hárgreiðsla eða
smekklaus Evrópa.