Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2007, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 20.02.2007, Qupperneq 46
Poppprinsessan sköllótta Britney Spears rakaði sjálf af sér hárið á hárgreiðslustofu í Los Angeles eftir að hárgreiðslukonan neitaði að verða að ósk hennar. Er hárið nú til sölu á uppboðssíðunni Ebay fyrir tæpar 72 milljónir króna. „Ég reyndi að telja henni hug- hvarf. Ég spurði: Ertu viss um að þér líði ekki bara eitthvað illa í dag og verðir á annarri skoðun á morgun? Hvers vegna bíðurðu ekki aðeins með þetta?“ sagði Esther Tognozzi, eigandi hár- greiðslustofunnar í viðtali við CNN. „Þá sagði hún: Nei, ég vil pottþétt raka hárið af núna. Það næsta sem ég sá var að hún greip rakvélina, fór baka til og rakaði hárið af sjálf.“ Eftir þetta ók Britney til húð- flúrara þar sem hún fékk sér tvö húðflúr. Fyrst lét hún setja rauðar varir á úlnlið sinn og síðan hvítan og bleikan kross á mjöðmina. Erlendir fjölmiðlar telja að Britney eigi við mikil vandamál að stríða og þurfi augljóslega á sál- fræðiaðstoð að halda. Hún er sögð ramba á barmi taugaáfalls af ótta við að missa forræði sitt yfir sonum sínum tveimur til fyrrverandi eiginmanns síns, Kevin Federline. Lögfræðingar Federline hafa útmálað Britney sem óhæfa móður sem eigi við drykkjuvanda- mál að stríða. Britney skráði sig í meðferð síðastliðinn fimmtudag eftir fjög- urra daga fyllirí í New York. Innan við sólarhring síðar sneri hún aftur heim til Kaliforníu og hitti syni sína áður en hún rakaði af sér hárið og lét húðflúra sig. Að því loknu sást til Britney með svarta hárkollu á læknasetri í Beverly Hills þar sem hún ræddi við starfsfólk í afviknu herbergi. Britney rakaði sjálf af sér hárið Hallgrímur Helgason opnaði myndlistarsýninguna The Kodak Moments í Galleríi Turpent- ine á föstudag. Margt góðra gesta samgladdist Hallgrími en sýningin samanstendur af svart- hvítum grafíkverkum sem unnin voru á árunum 2004-2007. Öll fjalla þau um lífið innan veggja heimilisins; sambönd og sambúðir, foreldra, börn og barning kynja. Lindsay Lohan var ekki lengi að skella sér á djammið eftir að hafa verið í með- ferð, hún var komin á galeiðuna kvöldið áður en meðferðinni lauk. Lindsay var útskrifuð á föstu- dag eftir 30 daga dvöl á meðferðar- heimilinu en kvöldið áður sást til hennar á nætur- klúbbnum Teddy‘s í LA. Lindsay skellti sér aftur á djammið á föstu- dagskvöldinu. Þá fór hún á skemmtistaðinn Les Deux þar sem meðal annars sást til hennar á spjalli við Justin Timberlake. Úr meðferð á djammið Rokkarinn Bret Michaels úr hljóm- sveitinni Poison verður í aðalhlut- verki í eigin raunveruleikaþætti á sjónvarpsstöðinni VH1. Í þætti sínum mun Michaels leita að ást- inni og mun þessi snilld kallast Rock of Love with Bret Michaels. Rokkarinn mun koma sér fyrir með fjölda fagurra kvenna á heimili sínu í Los Angeles og munu stúlk- urnar þurfa að gangast undir ýmsar prófraunir í keppni sinni um hylli hans. Leitar að ástinni Parið fyrrverandi Justin Timber- lake og Cameron Diaz hittist í laumi á hóteli fyrir skömmu, þrátt fyrir að hafa nýverið hætt saman eftir þriggja ára samband. Justin var staddur á hótelinu ásamt leikstjóranum Martin Scor- sese og nokkrum öðrum þegar hann steig upp frá borði og ræddi við konu sem stóð baka til. Sjónar- vottar segja að þarna hafi Diaz verið mætt og fór hún með Justin út af hótelinu nokkru síðar. Hittust á hóteli Hasarmyndin Ghost Rider með Nicolas Cage í aðalhlut- verki fór beint á toppinn á bandaríska aðsóknarlistan- um sína fyrstu viku á lista. Þrátt fyrir að myndin hafi fengið misjafna dóma var þetta aðsóknarmesta opnunarmynd árs- ins í Bandaríkjunum til þessa. Í myndinni leikur Cage mótorhjóla- kappa sem býr yfir ofurmannleg- um hæfileikum. Í öðru sæti lenti ævintýramyndin Bridge to Tera- bithia og í því þriðja varð Norbit með Eddie Murphy í aðalhlutverki. Í fjórða og fimmta sæti voru róm- antísku gamanmyndirnar Music and Lyrics og Daddy´s Little Girls. Cage á toppinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.