Fréttablaðið - 20.02.2007, Qupperneq 48
Forréttindapakk í Los Angeles,
vopnað marghleypum og grasi og
of stóru egói, kemur sér í klandur í
myndinni Alpha Dog. Leikstjórinn
Nick Cassavetes byggir mynd sína
á sannsögulegum atburðum og ævi
smákrimmans Jesse James sem
var á sínum tíma yngsti gangster-
inn á óskalista FBI.
Í myndinni heitir hann Johnny
Truelove (Emile Hirsch) en deilur
hans við snaróðan dópista og sér-
legan kúnna, Jake Mazursky (Ben
Foster) verða til þess að Truelove
rænir yngri Mazursky-bróðurnum
Zack (Anton Yelchin). Þetta „sak-
leysislega“ mannrán fer heldur
betur úr böndunum og partíið
endar illa. Myndin hefur nokkuð
augljósan boðskap í andófi sínu
gegn trylltri unglingamenningu
Bandaríkjanna, það borgar sig ekki
að byrja að selja dóp og ógna öðrum
með skammbyssum og það kemur
að því að pabbinn getur ekki bjarg-
að þér.
Alpha Dog er vel leikin mynd en
full af klisjum. Meginhluti mynd-
arinnar er eitt stórt unglingapartí
þar sem yngri Mazursky-bróðirinn
fær gelgjulega eldskírn í fylgd
hins umhyggjusama Frankie (Just-
in Timberlake). Val leikstjórans að
gera sem mest úr þeirra vináttu-
sambandi er skiljanlegt, þeir eru
einu persónurnar sem maður hefur
einhverja samúð með. Hinir
dúddarnir eru yfirborðskenndir og
heimskulegir buxnaskjónar sem
halda að þeir séu harðir naglar.
Stórstjörnurnar sem eiga að lyfta
þessari mynd upp virðingarlistann,
Bruce Willis og Sharon Stone, gera
lítið fyrir mig enda eru þau í afbök-
uðum hlutverkum. Willis er sýndur
sem bólugrafinn ósannfærandi
Guðföðurtýpa og Stone er svo sett í
fitubúning sem eyðileggur síðan
alla hennar frammistöðu.
Yfirbragð myndarinnar er
nokkuð vel úthugsað og mörg skot-
in skemmtilega unnin. Þetta er
sveitt og rykug mynd af sjúskuðu
glanslífi með hressilegri músík í
bakgrunni. Hasarinn er bundinn
við angistarfullt tilfinningalíf per-
sónanna en fegin er ég að leikstjór-
inn missti sig ekki í bílaeltingaleiki
eða einvígi. Samtölin eru þó leið-
ingjörn til lengdar – annað hvert
orð er ýmist „fuck“ eða „shit“ sem
þýðist illa, reyndar er alltaf eitt-
hvað svo kauðst að lesa þýðingar á
slíkum blótsyrðum enda eru þau
sjaldnast jafn svaðaleg og á frum-
málinu. Cassavetes nær í það
minnsta að mjólka þessar aðstæð-
ur vel, hann spilar bæði á húmor-
inn, sakleysið, hormónana og
tengslaleysið sem þessir útúrdóp-
uðu ungmenni þjást af svo úr verð-
ur nokkuð eftirminnileg svipmynd
af annarlegri menningu sem fæsta
langar að kynna sér betur.
Í lok myndarinnar eru örlög
þessa ógæfufólks afhjúpuð á hefð-
bundinn hátt með skýringartexta –
sem reyndar er gjörsamlega ólæsi-
legur vegna þess að íslenska
textanum er varpað beint ofan á
hann.
Vopnaðir útlifaðir unglingar
Vangaveltur eru uppi um að næsta
plata bandaríska tónlistarmanns-
ins Sufjan Stevens muni fjalla um
Kaliforníu. Sufjan hefur lýst því
yfir að hann ætli að semja plötu
um öll fimmtíu ríki Bandaríkj-
anna. Þegar hefur hann gefið út
plöturnar Michigan, sem kom út
2003, og Illinois sem kom út tveim-
ur árum síðar.
Hingað til hefur verið orðróm-
ur uppi um að næsta plata Sufjan
verði annaðhvort um Oregon,
Rhode Island eða Minnesota, en
svo virðist sem hann hafi ekki
verið á rökum reistur.
Sufjan, sem hélt tónleika hér á
landi í fyrra, spilar næst á plötu til
heiðurs Joni Mitchell sem kemur
út í vor. Björk Guðmundsdóttir
syngur einnig á plötunni.
Plata um
Kaliforníu
Leikarinn Ray Liotta hefur
verið ákærður fyrir að hafa
ekið undir áhrifum áfengis
eftir að hann klessti bíl sínum á
tvo kyrrstæða bíla í Los Angel-
es.
Liotta,
sem er 52
ára, borg-
aði lausn-
argjald
sitt en
þarf að
mæta
fyrir rétti
í næsta
mánuði.
Liotta
hefur leik-
ið í mynd-
um á borð
við Good-
fellas og
Field of Dreams auk þess sem
hann fékk Emmy-verðlaunin
fyrir gestahlutverk í sjón-
varpsþættinum ER. Nýjasta
mynd hans nefnist Smokin´
Aces þar sem hann leikur á
móti Ben Affleck, Andy Garcia
og Aliciu Keys.
Ray Liotta
ákærður
Lady Sovereign heitir réttu nafni
Louise Harman og ólst upp í
alræmdu fátækrahverfi í Norður-
London. Hún vakti fyrst athygli
þegar hún setti efni með sér inn á
aðdáendasíðu bresku rappsveitar-
innar So Solid Crew. Hún var þá 14
ára. Hún átti lag á Grime-safnplöt-
unni Run The Road sem kom út árið
2005, en Grime-tónlistin er sam-
bland af garage-danstónlist og
rappi og hefur verið áberandi í
London síðustu ár.
Lady Sovereign hitti Jay-Z í
samkvæmi árið 2005. Hann bað
hana að spinna upp rímur á staðn-
um sem hún gerði með stæl og í
framhaldinu bauð hann henni
samning við Def Jam-útgáfuna.
Public Warning er hennar fyrsta
plata í fullri lengd. Hún er sam-
bland af gömlu smáskífulögunum
hennar og nýju efni. Hún kom út í
Bandaríkjunum í fyrra, en er
nýkomin út í Evrópu.
Lady Sovereign er bæði töffari
og húmoristi. Hún hefur gott flæði
og mjög áberandi enskan framburð
og textarnir hennar eru fullir af
skemmtilegum hversdagsævintýr-
um. Hún hefur húmor fyrir sjálfri
sér og talar mikið um það hvað hún
sé smávaxin. Í laginu Love Me Or
Hate Me segist hún vera „Offici-
ally the biggest midget in the game“
og fyrsta EP-platan hennar hét
„Vertically Challenged“. Það er
margt flott í tónlistinni, taktarnir
eru bæði ferskir, einfaldir og fönkí.
Það eru nokkur frábær lög hér, –
þar á meðal 9 to 5, Random, Public
Warning, Love Me or Hate Me og
Hoodie. Lögin eru samt misjöfn að
gæðum og það dregur heildina
niður.
Dvergvaxinn töffari
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
PAN´S LABYRINTH kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
LITTLE CHILDREN kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
NOTES ON A SCANDAL kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.30, 8 og 10.30
ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
ROCKY BALBOA kl. 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.40, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.20
DREAMGIRLS kl. 5.40
HEIMSFRUMSÝNING
SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNING1
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI