Fréttablaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 1
56%
37%
42%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Laugardagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
Smáauglýsingasími
550 5000
Freyja Leópoldsdóttir mótorkrossari er nýbúin að eignast splunkunýtt Honda125, CR hjól árgerð 2007. Í sumarætlar hún að keppa með vinkonunumí Honda-liðinu og hjóla með fjölskyld-unni sem öll er á kafi í sportinu.
„Pabbi byrjaði í sportinu fyrir mörgum
árum en lagði það síðan á hilluna. Þegar
bróðir minn fékk áhuga á skellinöðrum
vildi pabbi frekar koma honum í mótor-
krossið og í kjölfarið fylgdi öll fjölskyld-
an,“ segir Freyja.Mótorkrossið er mikið fjölskyldusport
sem hentar öllum að sögn Freyju sem
finnst gaman að fara í ferðir með fjölskyld-
unni og geta átt sameiginlegt áhugamál.
Freyja byrjaði í sportinu fyrir tveimur
árum síðan og heillaðist frá fyrstu stundu.
„Ég ákvað að starta með trompi og fór
strax að keppa, á eigin vegum. Fyrsta mótið
sem ég tók þátt í var páskamót í fyrra og
þá mætti ég í páskabúningi sem var nú
meira grín en hitt,“ segir Freyja hlæjandi.
Síðan þá hefur hún keppt á fjölda móta
og síðasta sumar fengu mótorkrossstelp-
urnar sinn eigin flokk. Í ár mun Freyja
keppa ásamt þremur vinkonum undir
merkjum Honda og ætla þær að hefja
keppnissumarið á Klaustri í lok maí.„Stelpurnar í mótorkrossinu eru alltaf að
verða fleiri Í dag eþ
Innlit á vinnustofur
þjóðþekktra rithöfunda
heimaerbestLAUGARDAGUR 10. MARS 2007
INNLITHeimsókn í vinnu-stofur rithöfunda
VERSLUNÍ grænbláum skugga
HÖNÍ
Mætti í páskabún-
ingi á fyrsta mótið
STÓRI
BÓKAMARKAÐURINN
Perlunni 1. – 11. mars
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10-18
LOKAHELGIN!
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
ÁSKRIFTATILBOÐ
Frítt út mars!
S. 414 9400 kronikan.is«
MENNING / PÓLITÍK / VIÐSKIPTI / FÓLK
15.02 0́7
KRONIKAN.IS
KOSIÐ UM FORSETA
Í FRAKKLANDI
Tímamót í vændum í
37 AF 63
Netlæsi þingmanna
skiptir sköpum
DREAMGIRLS
Kvikmyndin
sem byggð er á
sögu The Supremes
08.03.07
590 kr.-
9 771670 721403
RÓSA
BJÖRK
„Djarfar
ákvarðanir
ekki alltaf
réttar“
BUBBI
„Bauð þeim að
leiðrétta lygina“
ATHYGLIN FÖNGUÐ
MEÐ OFBELDI
Sjónvarpsáhorfendur
með að einbeita sér
STJÓRNIN
SKELFUR
Beygir Framsókn
sjálfstæðismenn
eða fellur
ríkisstjórnin?
Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs,
er krútt samkvæmt bókun fund-
argerðar bæjarráðs Kópavogs-
bæjar frá því í fyrradag.
Hart var deilt um breytingar á
deiliskipulagi bæjarins á fundin-
um. Bæjarráð var samþykkt því
að bætt yrði við hæð á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð.
Gunnar bæjarstjóri svaraði
mótmælum minnihlutans yfir
stækkuninni með því að láta bóka
að þarna sýndu minnihlutaflokk-
ar hug sinni til Sunnuhlíðarsam-
takanna. Á eftir
ummælum
Gunnars kom
bókun sem
hljóðaði einfald-
lega á þessa
leið: „Bæjar-
stjóri er krútt“
og var það Guð-
ríður Arnar-
dóttir úr Sam-
fylkingu sem
óskaði eftir að
það yrði fært til
bókar.
„Ég ákvað að
láta jafn ómál-
efnalega bókun
frá mér eins og
Gunnar hafði
gert á undan,“
segir Guðríður,
sem segir bæj-
arstjóra hafa
gert minnihlut-
anum upp skoð-
anir.
„Guðríður er nú sjálf óttalega
krúttleg. Þó ætti hún að venja sig
af því að vera á móti framförum.
Auk þess er hún lánsöm að eigin-
maður hennar hefur lengi verið
starfsmaður hjá mér og er því vel
uppalinn,“ segir Gunnar sem seg-
ist síður en svo vera á móti því að
vera kallaður krútt.
Bókað að
bæjarstjóri
sé krútt
Forystumenn allra
stjórnmálaflokka eru sammála um
að endurskoða beri lög um Stjórn-
arráð Íslands. Hugmyndir hafa
verið lagðar fram um fækkun ráðu-
neyta úr fjórtán í tíu eða níu. For-
menn stjórnarflokkanna hafa rætt
endurskoðun laganna sín á milli og
ráðfært sig við formenn stjórnar-
andstöðunnar.
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segir að breyting-
ar verði aðeins gerðar með sam-
komulagi allra flokka. „Við höfum
rætt þessi mál, ég og forsætisráð-
herra, og þar er mikill skilningur á
málinu. Það hefur einnig verið rætt
við formenn annarra flokka.“ Jón
segir fjölda ráðuneyta ekki aðalat-
riði í sínum huga en á nýafstöðnu
flokksþingi var samþykkt ályktun
um að ráðuneyti yrðu ekki fleiri en
tíu í næstu ríkisstjórn sem Fram-
sóknarflokkurinn ætti aðild að.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra telur að það
sé vilji allra flokka að einfalda
stjórnkerfið og breyta því í takt við
nýja tíma. „Þetta er spurning um
tíma og hugsanlega er það best í
kringum kosningar eða strax að
loknum kosningum. Mér sýnist
vera samhljómur á milli flokkanna
um málið.“
Samfylkingin hefur í tvígang
lagt fram frumvarp til laga um
breytingu á lögum um Stjórnarráð-
ið þar sem ráðuneytin yrðu níu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður flokksins, telur málið mjög
aðkallandi. „Það hefði verið mikil-
vægt að gera þetta fyrir kosningar
því erfitt getur verið að breyta
skiptingu ráðuneyta eftir að ráð-
herrar eru sestir í stólana. Það er
hægt að gera breytingarnar á sum-
arþingi eftir kosningar. Við teljum
mikilvægt að gera það.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs, segir að skyn-
samleg uppstokkun verkefna og
endurskipulagning innan stjórn-
arráðsins sé mikilvæg, en hvað
ráðuneytin verði mörg sé ekki
stærsta málið í hans huga. Spurð-
ur um hvort Vinstri græn vilji að
endurskoðun á skipan Stjórnar-
ráðsins verði hluti af stjórnarsátt-
mála ef til þess kæmi svarar Stein-
grímur að sjálfsagt sé að fara yfir
málið. „Hægt væri að mynda
stjórn utan um breytt skipulag
strax eða manna gömlu ráðuneyt-
in á meðan endurskipulagningin
færi fram.“
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, seg-
ist vel geta hugsað sér að fækka
ráðuneytum og telur tímabært að
skoða það af fullri alvöru í sam-
starfi allra flokka.
Fækkun ráðuneyta
æskileg og tímabær
Forystumenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi eru sammála um að endurskoða
þurfi lög um Stjórnarráð Íslands. Fækkun ráðuneyta er að flestra mati tímabær.
„Það var afar tilkomumik-
ið að fylgjast með briminu,“ segir
Óskar Sigurðsson, veðurathugun-
armaður í Stórhöfða í Vestmanna-
eyjum, sem fylgdist með miklu
sjónarspili við Eyjarnar í gær.
„Einidrangur, sem er drangur
hérna vestan við Heimaey, hvarf
alveg þegar ein aldan gekk yfir
hann. Hann er 32 metra hár.“
Sogið í Vestmannaeyjahöfn var
svo mikið í gær að Arnarfell,
flutningaskip Samskipa, slitnaði
frá bryggju. Engin hætta var á
ferðum, að sögn Sveins Rúnars
Valgeirssonar, skipstjóra á drátt-
arbátnum Lóðsinum í Eyjum, en
ekki hafði tekist að koma skipinu
að bryggju í gærkvöld.
Ólafur M. Kristinsson hafnar-
stjóri segir að aðstæðurnar hafi
verið fyrirsjáanlegar „Samt náði
þetta að slíta skipið frá.“ Ólafur
segir að skipaumferð hafi verið
lítil því loðnuflotinn sé hættur á
veiðum og skip í landi vegna
slæmrar spár. „Herjólfur fór þó
og vistin hefur sennilega ekki
verið neitt sérstök þar um borð,“
segir Ólafur.
Einidrangur hvarf sjónum í ölduróti