Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 8
Þremur kerrum í
eigu dekkjaverkstæðisins Bæjar-
dekk í Mosfellsbæ hefur verið
stolið á einum mánuði, þar af
tveimur um seinustu helgi. Ein
hefur fundist aftur, og var hún
full af þýfi. Aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn kannast ekki við að kerru-
þjófnuðum hafi fjölgað.
„Þetta er furðulegt mál,“ segir
Davíð Freyr Jónsson, starfsmað-
ur hjá Bæjardekkjum. „Þjófarnir
virðast vera komnir upp á lagið
með þetta, klippa bara á keðjuna
og hirða kerruna. Svo nota þeir
hana undir þýfi, eins og gerðist
núna um daginn. Þessar tvær sem
var stolið um helgina kosta sam-
tals um hálfa milljón.“
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn á höfuð-
borgarsvæðinu, segist ekki kann-
ast sérstaklega við að fleiri kerr-
um sé stolið nú en áður. „Það
hverfur alltaf ein af og til en ég
get ekki sagt að þetta sé að færast
í aukana. Það er aðallega erfitt að
finna þær aftur vegna þess hve
líkar þær eru hver annarri.“
Hann segir kerruna sem fannst
full af þýfi hafa tengst innbroti í
Hafnarfirði fyrir rúmri viku.
Íbúar hússins sem hún fannst við
voru handteknir, og innbúinu skil-
að á réttan stað.
Notaðar undir þýfi
Stjórnendur hvaða fyrirtæk-
is hugleiða flótta frá Íslandi
vegna takmarkaðra heimilda
fyrirtækja til gera upp í evrum?
Hvað heitir happdrættið sem
svikahrappar hafa notað til
hafa fé af fólki í gegnum netið?
Hvaða íþróttafélag fagnar
aldarafmæli sínu um helgina?
75%
afsláttur af
erlendum
útsölubókum
– opið til kl. 22.00 öll kvöld
Vesturlandsvegur
Reykjavík
Mosfellsbær
Húsasmiðj
an
Nóatún
Toppskórinn
Margt Smátt
Vínlandsleið
Sport Outlet
Vínlandsleið 2–4, efri hæð
Grafarholt Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 12 – 18
Laugardagar kl. 12 – 16
FLOTT FÖT FYRIR KRAKKA SEM NOTA STÓRAR STÆRÐIR
Frumvarp formanna
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks um að stjórnarskrárbinda
þjóðareign á náttúruauðlindum
getur skapað óheppilega óvissu.
Þetta segja Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands smá-
bátaeigenda, og Friðrik Arngríms-
son, framkvæmdastjóri Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna.
Örn Pálsson segir meðferð máls-
ins hafa gengið of hratt fyrir sig og
það skapi óþarfa vanda. „Við höfð-
um fylgst með starfi stjórnarskrár-
nefndar og því kom okkur töluvert á
óvart að þetta hafi verið niðurstað-
an þar sem nefndin komst ekki að
neinni niðurstöðu um þetta mikil-
væga mál,“ segir Örn.
Hann telur viðfangsefnið flókið
og krefjast mikillar umræðu. „Það
liggur fyrir að þetta er flókið mál
sem krefst umræðu hjá öllum sem
tengjast málinu. Þegar málið kemur
svona snöggt inn á borð allra sem að
málinu koma veldur það óróa, og ég
finn að það er töluverður órói hjá
smábátaeigendum vegna þessa
máls.“
Friðrik J. Arngrímsson segir
óvissu uppi en fagnar yfirlýsingum
um að ákvæðinu sé ekki ætlað að
skerða einkaeignarréttinn. „Ef
hugsunin í þessu er sú að reyna að
skerða einkaeignarrétt þá tel ég það
ekki vera rétta leið. Það hefur hins
vegar komið fram hjá stjórnvöldum
að ætlunin er ekki að skerða réttindi
sem fyrir eru, til dæmis keyptar
aflaheimildir, og ég fagna því. Hins
vegar tek ég undir með þeim sem
segja ýmislegt óljóst og það er
aldrei gott, sérstaklega þegar breyt-
ingar á stjórnarskránni eru annars
vegar.“
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra telur málið í góðum
farvegi. „Ég hefði kosið að málið
hefði borið að með öðrum hætti en
það var mikil pressa á stjórnar-
flokkana að greiða úr þessu máli
fyrir þinglok. Það vakti ekkert
annað fyrir okkur sjálfstæðismönn-
um en að standa við stjórnarsátt-
málann,“ segir Einar og vonast til
þess að ákvæðið verndi sjávarút-
veginn. „Ég tel ákvæðið til þess fall-
ið að greiða úr óvissu og styrkja þar
með sjávarútveginn sem atvinnu-
grein.“
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu hafa Sigurður Líndal,
fyrrverandi lagaprófessor, og Skúli
Magnússon, héraðsdómari og dós-
ent við Háskóla Íslands, lýst því yfir
að tal um þjóðareign á náttúruauð-
lindum sé merkingarlaust, þar sem
þjóð geti ekki verið verið eigandi í
eignarréttarlegri merkingu.
Í frumvarpinu sem formenn
stjórnarflokkanna, Geir H. Haarde
og Jón Sigurðsson, kynntu síðastlið-
inn fimmtudag segir að „náttúru-
auðlindir Íslands skuli vera þjóðar-
eign.“
Skjótur aðdragandi
skapar óþarfa óvissu
Forsvarsmenn hagsmunasamtaka í sjávarútvegi segja óvissu um auðlinda-
ákvæði skapa óróa. Einar K. Guðfinnsson segist ekki getað neitað því að hann
hefði vilja vinna málið öðruvísi. Þjóðareign á auðlindum sögð merkingarlaus.
Hreggviður Jónsson, for-
stjóri Vistor, segir að sér lítist
ágætlega á lyfja-
stefnu sem heilbrigð-
isráðherra kynnti ný-
lega. Henni beri að
fagna en vonandi
varpi hún réttu ljósi á
það sem hafi verið að
gerast á lyfjamark-
aði síðustu tvö ár þar
sem verð hafi lækk-
að umtalsvert, sérstaklega á frum-
lyfjamarkaði.
„Ég veit ekki hvort það hefur
almennt komið fram að verð hér er
almennt lægra en í Danmörku sem
dæmi. Við erum það neðarlega í
verði að stór hluti okkar vinnu er
nú að sannfæra framleiðendur um
að halda lyfjum á íslenskum mark-
aði. Við erum komnir þar að hættu-
mörkum,“ segir hann.
Fagnar nýju
lyfjastefnunni