Fréttablaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 11
Stefán Ásgrímsson,
ritstjóri FÍB-blaðsins, segir að
ríkisstjórnin ætti að lækka vöru-
gjöld af dísilbifreiðum. Ríkis-
stjórnin hefur samþykkt laga-
frumvarp sem er ætlað að hvetja
til aukinnar notkunar á vistvæn-
um bílum. Meðal annars verða
vörugjöld af metangas- og raf-
magnsbifreiðum felld niður tíma-
bundið.
Stefán telur að ríkisstjórnin
hefði einnig átt að lækka vöru-
gjöld af dísilbílum því þeir séu
töluvert vistvænni en bensínsbíl-
ar; þeir eyða um 25 prósent minna
eldsneyti. „Það sem myndi bera
mesta árangur í að minnka koltví-
oxíðútblástur í
farartækjum
væri að fjölga
dísilbílum hér á
landi. Ríkis-
stjórnin hefði átt
að hugsa þetta
frumvarp aðeins
lengra,“ segir
Stefán en um
fjórðungur bíla á
Íslandi er dísil.
Stefán fagnar aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar en segir að ýmis-
legt þurfi að breytast áður en
metangas- og rafmagnsbílar
komast í almenna notkun hér á
landi.
Hann segir að einungis sé
hægt að fylla metangasbíla á
einum stað á landinu, á Bílds-
höfða í Reykjavík, og að raf-
magnsbílar séu óhagkvæmir því
framleiðslan á rafgeymum í þá
sé mjög dýr og einnig umhverfis-
spillandi. Stefán segir þó að hugs-
anlega verði notkun rafmagns-
bíla hagkvæmari þegar byrjað
verður að nota farsímarafhlöður
til að knýja þá. „Þessir bílar eru
ekki í almennri notkun hér á landi
en vonandi breytist það með tím-
anum,“ segir Stefán en metan-
gasbílar eru 54 á landinu og raf-
magnsbílar 32.
Gjöld af dísilbílum lækki líka
Portúgalska þing-
ið samþykkti í gær frumvarp um
að leyfa fóstureyðingar fram á
tíundu viku meðgöngu.
Portúgölum gafst kostur á að
kjósa um þetta í þjóðaratkvæða-
greiðslu 11. febrúar en kjörsókn
var of lág til að hún teldist gild.
Af þeim sem kusu voru tæp 60
prósent fylgjandi slíkum lögum.
Portúgal hefur verið eitt fjög-
urra landa Evrópusambandsins
þar sem lög um fóstureyðingar
eru hvað ströngust.
Forseti þarf að staðfesta frum-
varpið sem verður ekki að lögum
fyrr en það verður kunngjört sem
getur tekið nokkra mánuði.
Þing samþykkir
fóstureyðingar
Svifryk hefur farið yfir
hættumörk á Akureyri að undan-
förnu. Bærinn hefur brugðist við
þessu með því að ráða verktaka
til að þvo Glerárgötu með vatni
og er sérútbúin dráttarvél notuð
til verksins.
Norðlenska fréttaveitan Viku-
dagur segir að fari magn svifryks
í lofti yfir 50 míkrógrömm byrji
fólk með lungna-, hjarta- og æða-
sjúkdóma að finna fyrir óþæg-
indum. Fari talan yfir 100 míkró-
grömm sé fólki í Noregi sagt að
æskilegast sé að halda sig heima.
Á Akureyri fór talan tuttugu sinn-
um yfir 100 míkrógrömm á síð-
asta ári.
Brugðist við
svifryki
Sautján ára piltur
sem var stöðvaður fyrir ofsaakst-
ur á Hafnarfjarðarvegi í fyrra-
kvöld verður sviptur ökuleyfi og
gert að greiða níutíu þúsund
krónr í sekt.
Bíll piltsins mældist á 148 km
hraða þegar hann var tekinn.
Þetta er í annað sinn á skömmum
tíma sem þessi sami piltur, sem
fékk bílpróf fyrr í vetur, er tekinn
fyrir vítaverðan akstur. Fyrir tíu
dögum var hann tekinn fyrir
ofsaakstur á Kringlumýrarbraut
og þá fékk hann sextíu þúsund
króna sekt. Nú fær hann tíma til
að hugsa ráð sitt því hann á
tveggja mánaða ökuleyfissvipt-
ingu yfir höfði sér, auk sektanna.
Sautján ára tek-
inn í ofsaakstri