Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 28
D
aníel Ágúst kemur til
dyranna klæddur eins og
náfrændi Drakúla, þessi
sem fluttist til Oklahoma.
Þráðbeinn í baki, í svört-
um lygilegum jakkafötum,
opnar hann dyrnar fyrir blaðamanni og
vísar honum inn í slotið. Krummi er hins
vegar, eftir sem áður, alsettur tattúveruð-
um myndum en það er samt eitthvað breytt.
Þykk hlý peysa og mýkra yfirbragð svo
manni áður brá. Hann segist líka vera hætt-
ur í rokkstjörnuleik. „Já, ég er hættur í því.
Það var ákveðið skeið sem ég tók út. Maður
var að viðhalda vissri ímynd uppi á sviði
sem skemmtikraftur og listamaður. Stund-
um tók maður eitthvað af þeirri ímynd með
sér þegar maður steig af sviðinu til að sann-
færa fólk um að maður væri sá sem maður
sýndi á sviðinu og það gekk kannski stund-
um of langt.“
Daníel: „En hann þarf ekkert á þeirri ímynd
að halda í dag, hann er búinn að fara í gegn-
um það þroskastig.
Krummi: „Í dag er ég hamingjusöm mann-
eskja og tónlistariðkandi.“
Þið tveir saman í kántríbandi kom nokkrum
svolítið á óvart, af hverju náið þið svona vel
saman?
Krummi: „Við erum nú ekki beinlínis kán-
trísveit, þetta er mun meira rokk. Við erum
undir áhrifum frá blústónlist, suðurríkjar-
okki og sixtísrokki, góðum lögum og jú, kán-
trí. Við stefnum að því að taka upp efnið á
þessu ári en annars er þetta í höndum ör-
laganna.
Daníel: Já og okkar eigin höndum. Ég var
þrjú ár í sveit á Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Það hefur örugglega einhver áhrif. En
okkur lyndir ótrúlega vel saman.“
Krummi: „Við erum nú eiginlega bara bestu
vinir.“
Daníel: „Já, höfum verið það síðan í október
á síðasta ári.
Krummi: „Samt höfum við alltaf þekkst að-
eins en þessi djúpa vinátta byrjaði að mynd-
ast þegar við fórum að gera tónlistina
saman. Svo erum við auðvitað mjög líkir í
útliti og báðir í meyjarmerkinu; meyjur
með fullkomnunaráráttu og hreingerninga-
ræði. Daníel er samt mun meiri meyja en
ég. En óreiðan mín er þó mjög skipulögð. En
við Daníel erum förunautar og ég veit að
við verðum vinir allt okkar líf. Þangað til að
við liggjum á dánarbeðinu með lag í haus-
num.“
Áttu einhverjar plötur með Nýdanskri
Krummi og hefur þú Daníel sungið með
Björgvini Halldórssyni, áttu jafnvel eitt-
hvað eftirlætislag með honum?
Krummi: „Já, ég á hérna ...“
Daníel: Ekki ljúga að henni.
Krummi: „Nei, hvað, ég á eina plötu.“
Daníel: „Hvaða þá, Himnasendingu eða
Delux?“
Krummi: „Himnasendingu. Ég man þegar
ég var niðri í bæ á 17. júní að horfa á Ný-
dönsk á ímyndunarfylleríi.“
Daníel segir að það geti vel passað að þeir í
Nýdanskri hafi verið á ímyndunarfyllerí
því hann hafi aldrei drukkið meðan hann
var í hljómsveitinni, hafi aldrei gert neina
vitleysu. „Ólifnaðurinn“ hafi fyrst hafist
eftir að hann hætti í rokkhljómsveit. Svo
fyllir hann stórt bjórglas af grænu tei handa
blaðamanni.
Krummi: „Já, þú varst með einhverja stæla.
En Nýdönsk í þá daga var að semja mjög
góð lög og ég fílaði textana. Þeir voru hvorki
erfiðir né heimskulegir.“
Daníel: „Já, þegar músíkin flæðir um mig
verð ég mjög óheflaður. Hægt er að túlka
það sem einhverja fötlun, spastísku eða að
ég sé undir áhrifum einhverra ofskynjunar-
lyfja. En ég hef ekki enn orðið þess heiðurs
aðnjótandi að syngja með Björgvini. Jú, jú,
ég vil endilega prófa það. Hvað varðar
uppáhaldslög ...“
Krummi hefur upp raust sína: „Ég er að tala
um þig ...“
Daníel: „Já, það er ótrúlega gott lag –
Skýið.“
Krummi: „Og Vetrarsól.“
Daníel: „Björgvin á Vísnaplötunni er snilld.
Þar er röddin hans svo tær og hann, hann
svo ungur, það er ótrúlega fagurt.“ Daníel
tekur við söngnum af Krumma: „Út um
græna grundu, gakktu hjörðin mín, yndi
vorsins undi, ég skal, ég skal, ég skal gæta
þín. Björgvin er frábær söngvari.“
Krummi: „Já, og snillingur.“
Daníel: „Maður hefur alltaf horft upp til
hans.“
Heitið á nýjustu afurð Mínuss, The Great
Northern Whale Kill, er samkvæmt slúðri
bæjarins skot á hljómsveitina Nylon og
Einar Bárðarson sem kveinkaði sér undan
þeim áhrifum sem hvalveiðar Íslendinga
hefðu á gengi bandsins ytra. Er eitthvað til
í þeim sögum og eruð þið með eða á móti
hvalveiðum?
Daníel: „Skemmtilegt slúður.“
Krummi: „Já, mjög gott en nei. Titillinn á
fyrst og fremst að vekja fólk til umhugsun-
ar. Ég er á móti hvalveiðum þó ég ætli ekki
að tjá mig fyrir allt bandið.“
Daníel: „Þú ert svo mikill dýravinur.“
Krummi: „Já, ég er það. Við höfum alltaf
notað nöfn persóna í titla okkar en í þetta
skiptið ákváðum við að gera það ekki, þessi
titill flæðir svo vel. Við erum frá Íslandi og
þessi titill mun vekja eftirtekt, fólk mun
hugsa hvað sé í gangi. Hvalveiðar hafa ef-
laust áhrif á ímynd landsins og heimurinn
sættir sig ekki við þetta.“
Daníel: „Ég held að við ættum bara að láta
hvalveiðiráðið ákveða hvort við veiðum
hvali eða ekki. Þetta er hápólitískt mál sem
við höfum ekki hundsvit á, maður er ekki
sérfræðingur í fiskimiðum né hvalveiðum
og mér finnst því að það sé ekkert vit í því
að vera að tjá sig um þetta.“
Krummi: „Já, en hverjir kaupa þetta hval-
kjöt?“
Daníel: „Nú, Japanar.“
Krummi: „Já, en þeir veiða sjálfir hvali.“
Daníel: „Það er til fullt af fólki sem borðar
hvalkjöt.“
Krummi: „Það er ekki einu sinni víst að það
sé markaður fyrir þetta í dag. Þeir byrjuðu
án þess að finna út úr því.
Daníel: „Nei, en þá verður bara að finna út
úr því. Það er ekki eins og dauðir hvalir séu
búnir að mynda eitthvað hvalfjall.
En hvað finnst ykkur um auðmenn og Elton
John í auðmannaveislum? Hvernig svara
tónlistarmenn slíkum spurningum?
Daníel: „Ég bíð bara eftir boðskorti í partí
til Eltons. Við Krummi myndum mæta
saman og Elton myndi segja; „Strákar, á ég
ekki að spila fyrir ykkur lag, hvaða lag lang-
ar ykkur að heyra? Fyrst myndum við láta
hann spila Your song.“
Krummi: „Þar næst Tiny dancer.“
Daníel: „Svo myndum við segja: Elton – áttu
einhvern pening?“
Krummi: „Svo myndum við taka eitt lag
fyrir hann, órafmagnaða útgáfu. Það er það
sem okkur finnst um Elton John.“
Daníel: „Já, og Your Song með Elton John
kemur mér til að gráta. Lagið Happy, Happy
Talk hefur þveröfug áhrif.“
Krummi: „Tilhugsunin um að missa þá sem
ég elska gerir það sama við mig. Og Broth-
ers in Arms með Dire Straits.“
Daníel: „En auðmenn Íslands eru nauðsyn-
legir. Ég sé ekki afhverju manni ætti að
vera í nöp við einhvern sem hefur grætt
pening. Maður óskar þess bara að þeim líði
vel í hjartanu með aurana sína og geri eitt-
hvað sniðugt og skemmtilegt við peningana
sem frúin í Hamborg gaf þeim en eyði þeim
ekki í vitleysu.“
Fyrst auðmenn trufla ykkur ekki, hvað segið
þið þá um verðlagið. Nú er Reykjavík sjö-
unda dýrasta borg í heimi. Eruð þið neyt-
endur og angrar dýrtíðin ykkur?
Daníel: „Ég kaupi yfirleitt í matinn hér úti í
Krambúð á Skólavörðustíg. Það er margfalt
dýrara en í Bónus þannig að ég er ekki mjög
meðvitaður um verðlagið. Ég er hins vegar
mjög meðvitaður um það hvað mér finnst
gott að búa hérna, þetta er öruggt samfé-
lag.“
Krummi: „Ég reyni alltaf að versla þar sem
er ódýrast. Nauðsynjar eru allt of dýrar.
Bara brauð, mjólk og ostur. Ég furða mig
stundum á því hvað ostur er dýr. Pínulítið
stykki á þúsundkall! Virðisaukinn var nú
reyndar að lækka og vonandi skilar það sé
til neytenda. Ég finn smá mun á strimlinum
í Krónunni allavega. Verst að það talar eng-
inn ensku þar.“
Daníel: „Ha, þykistu vera útlendingur í
Krónunni? Kemurðu kannski með sólgler-
augu og hatt, tekur upp oststykki og æpir
upp yfir þig af hneykslan? (Daníel sýnir
leikræn tilþrif og leikur Krumma sem yfir
sig hneykslaðan útlending í Krónunni veif-
andi oststykki): Two thousand kroners! Ri-
diculous!“
Eruð þið ekkert hræddir um að enda sem
ellismellir? Spilandi á Players eða Kringlu-
kránni?
Daníel: „Eina fyrirmyndin sem ég hef í
þeim efnum er Johnny Cash. Mig langar að
enda eins og hann – gerandi frábæra tónlist
á síðustu árunum. Plöturnar sem hann var
að gera þá eru bestu plötur sem hann hefur
nokkru sinni gert. Mig langar að feta í þau
fótspor.“
Krummi: „Gamall eða ungur – ef maður er
að gera hlutina eftir sinni sannfæringu, af
einlægni og er hamingjusamur þá skiptir
engu máli hvort maður er á Kringlukránni
eða Wembley.“
Krummi, af hverju ertu með svona mörg
tattú og af hverju ert þú ekki með nein Dan-
íel?
Krummi: „Af því að ég hef aldrei átt dagbók
og líkaminn minn gegnir því því hlutverki.
Hvernig ég var þegar ég fékk mér þetta
tattú – hvernig mér leið þegar hitt kom –
hvað ég var að gera og af hverju. Ég ber
minningarnar á öxlinni, hendinni, andlit-
inu.“
Daníel: „Það er kannski ástæðan fyrir því
að ég man aldrei neitt. Ég ætti kannski að
byrja á því að fá mér tattú. Krummi man til
dæmis alltaf hvenær hann er fæddur.“
Krummi: (Réttir hnefann með ártalinu 1979
þar á framan í blaðamann.) „Þannig að
þegar ég fæ taugaáfall mun ég að minnsta
kosti muna hvenær ég er fæddur.“
Daníel: „Mér finnst aðallega erfitt að ákveða
hvað ég ætti að fá mér og hafa það svo á
húðinni án þess að ná því nokkru sinni af.
Þú spyrð hvort ég sé þá jarðbundnari en
Krummi. Það getur vel verið. Ég get alveg
fuðrað upp í galsa og farið á flug.“
Krummi: „... með hrokafullum athugasemd-
um.“
Daníel: „Og svo get ég líka staðið fastur á
mínu og verið mjög jarðtengdur.“
Ef þið ættuð þá að nota þrjú lýsingarorð til
að lýsa hvor öðrum – hver yrðu þau þá?
Krummi: „Daníel er klár, gáfaður og
góður.“
Daníel: „Hann er heill og sannur. Frábær
tónlistarmaður, skemmtilegur vinur og frá-
bær einstaklingur. Hvað voru þetta mörg
lýsingarorð?“
Krummi: „Er gáfaður og klár ekki hér um
bil það sama?“
Daníel: „Gáfur er eitthvað sem þér var gefið
og að vera klár er að geta unnið úr því.“
Rokkarinn Magni kom, sá og sigraði á síð-
asta ári, mynduð þið einhvern tímann taka
þátt í raunveruleikaþætti og hvað finnst
ykkur um Magna?
Krummi: „Ég myndi aldrei fara í raunveru-
leikaþátt, mér finnst það fáránlegt. Að
keppa í tónlist finnst mér ekki rétti andinn.
Ef mig langar að taka þátt í karaoke þá fer
ég niður á Ölver og tek eitt lag þar.“
Daníel: „Ég myndi gera í brækurnar í svona
þætti, það er hálfmiskunnarlaust hvernig
farið er með þessa krakka. Ég þekki ekki
það sem Magni hefur gert.
Krummi: Ég þekki manninn ekki neitt og
hef ekkert hlustað á það sem hann hefur
gert en ég hef heilsað honum.“
Daníel: „Já, af því að þú ert svo vel upp
alinn.“
Krummi: „Já, ég meina, ég hef ekkert á móti
honum og vona bara að honum gangi vel.“
Er lífsstíll ykkar gamla góða klisjan: Sex,
drugs and rock ´n´roll?
Krummi: „Nei, ég myndi segja að okkar lífs-
stíll væri lots of sex, art and rock ´n´ roll.“
Daníel: „Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á
að svara þessu. Ég á yndislega konu og
hvort ég neyti eiturlyfja kemur engum við
en ég er án efa heilshugar í tónlist.“
Vinir að eilífu
Nýjustu bestu vinirnir í bænum eru tvö ólíkindatól. Daníel
Ágúst Haraldsson og Krummi Björgvinsson eru fæddir í
meyjarmerkinu, segjast báðir vera mömmustrákar og Your
Song með Elton John yljar þeim um hjartarætur. Þeir mynda
nú saman bandið Esja. Júlía Margrét Alexandersdóttir ræddi við
vinina um hvalveiðar, Baugsmálið og fleira til.
Ha, þykistu vera útlendingur í Krónunni?
Kemurðu kannski með sólgleraugu og
hatt, tekur upp oststykki og æpir upp yfir þig
af hneykslan?