Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 33

Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 33
Hlúð að sál og líkama í sól og góðu veðri. Eftir andlegan og líkamlegan vetr- ardvala þrá margir Íslendingar fátt heitar en að upplifa frelsið sem fylgir hækkandi sól og að koma líkamanum í betra form. Sérstaklega kjósa margar konur að laga línurnar áður en haldið er á sólarstrendur úti í heimi. Þær snið- ugustu slá tvær flugur í einu höggi – skjótast í heitara loftslag og leggja drög að léttum línum í lok- uðum hópi kvenna sem allar hafa eitt og sama markmiðið, að slappa af og komast í gott form fyrir sum- arið. Sigríður Halldóra Matthíasdótt- ir, eða Sigga Dóra eins og hún er kölluð, byrjaði á síðasta ári að skipuleggja sérstakar heilsurækt- arferðir til Orlando í Flórída, en hún hefur um árabil þjálfað bæði einstaklinga og hópa og kennt fólki aðferðir til að komast í betra form. „Reynslan hefur meðal annars sýnt mér að mataræðið vill svolítið vefjast fyrir konum þegar þær eru að koma heilsunni í lag,“ segir Sigga Dóra . „Það má segja að ég hafi einfald- lega látið undan þrýstingi. Kon- urnar sem ég var að þjálfa voru hver á fætur annarri byrjaðar að hvetja mig til að taka sig með í vikuferð þar sem við gætum verið óáreittar, þær gætu einbeitt sér að heilsurækt og mataræði og hvorki makar né aðrir kæmust að til að trufla,“ segir Sigga Dóra. „Á nám- skeiðunum kenni ég konum fyrst og fremst að borða rétt, stunda holla hreyfingu og fara vel með sjálfar sig, en eftir vikuna eru þær yfirleitt búnar að ná góðum tökum á þessu öllu.“ Námskeiðin hjá Siggu Dóru hljóma sérlega skemmtilega því þau samanstanda af góðum æfing- um og upplyftingu sem felst meðal annars í því að fara í verslunar- miðstöðvar með vinkonum. „Dæmigerður dagur á heilsu- viku í Orlando hefst með því að ég vek alla klukkan átta og þá er ég búin að útbúa orkudrykk sem þær hafa með sér í klukkustundarlanga gönguferð. Við erum á skemmti- legu vernduðu svæði og því einfalt mál að fara út í hressandi og góðar gönguferðir. Eftir það gerum við æfingar við sundlaugina, en þar hef ég komið fyrir lóðum, dýnum, boltum, húlahringjum og öðru sem er gaman að gera æfingar með. Að æfingunum loknum fá þær hollustudrykk, svo er farið í sturtu og eftir það er hádegismatur þar sem ég fer í saumana á því hvað er borðað og hvernig það er matreitt. Klukkan eitt lýkur prógramminu og þá getur hver og ein gert það sem hana langar til. Margar kjósa vitanlega að skreppa í verslunar- miðstöð enda af nægu að velja úr þeim geira í Orlando,“ segir Sigga Dóra kímin. vefsíðunni www.siggadora.net. Heilsurækt í Orlando Króatía www.ferd.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.