Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 34

Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 34
Til þess að áferð húðarinnar verði full- komin og fegurstu hlutar andlitsins fái að njóta sín er nauðsynlegt að nota réttu vörurnar og viðhafa gott handbragð. Flestar konur farða sig á hverjum morgni. Vissulega mismikið, en langflestar bera eitt- hvað á andlitið og skella á sig maskara áður en þær rjúka út í daginn. Fæstar eru þó meðvitað- ar um það að það er ekki sama hvernig þetta er gert. Ekki dugar að skella farða í lúkuna og smyrja svo yfir andlitið með svampi eða fingur- gómum. Til að fullkomna förðunina er nauðsyn- legt að skyggja og bera glans á réttu staðina, en með því er það fegursta við andlitið dregið fram og ásjóna konunnar nýtur sín betur. Þannig er hægt að leggja áherslu á bogalínu kinn- beina, andlitinu má lyfta með því að setja ljósari lit yfir augabrúnir og svo þarf að sjá til þess að hálsinn sé létt skyggður líka. Margar konur eiga það til að vera of uppteknar af því að fá lit á húðina, hvort sem er náttúrulega sólbrúnku eða gervibrúnku. Vissulega er fallegt að hafa frísk- legan lit á húðinni, en að vera mjög brúnn er ekki það sem gyðjurnar á Hollywood-tindinum eða fyrirsætur leggja upp úr, enda flýtir það veru- lega fyrir öldrun og seinni tíma vandamálum. Meiri áhersla er lögð á að húðin sé áferðarfögur og slétt, hafi vissan ljóma og virki sem heil- brigðust -en til þess er hægt að beita ýmsum brögðum. Ljómandi falleg húð Mörkinni 6, Símí 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 Fermingardagar 10. - 11. mars bjóðum við ykkur velkomin á fermingarsýningu í verslun okkar. Laugavegi 51 • s: 552 2201 Ávaxtahálsmenin komin - á frábæru verði! Teygjubelti kr. 1.990,- Skart Hárskraut Fermingarhárskraut Ný sending af Palestínuklútum - allir litir á 1.290 kr SKARTHÚSIÐ Laugavegi 12, s. 562 2466

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.