Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 37

Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 37
Lúxusíbúðir fullbúnar með húsgögnum eru til sölu á Vesturgötunni. „Frá upphafi hugsuðum við að þetta myndi afhendast með ostakörfu og rauðvíni, þó svo að þetta hafi nú talsvert þróast í gegnum vinnuferlið,“ segir Ýmir Björgvin Arthúrs- son sem byggði nýjar lúxusíbúðir á Vestur- götunni sem afhendast fullbúnar með nýjum innréttingum, heimilistækjum og þvotta- vél. „Íbúðirnar eru sýndar með húsgögn- um frá Egg, en hönnuður frá þeim sá um að innrétta,“ segir Ýmir, en hægt er að kaupa íbúðirnar með húsgögnum, sé þess óskað og er það nýtt að slíkt sé í boði á Íslandi. Húsnæðið sem stóð áður á lóðinni var rifið og nýtt hús byggt. Íbúðirnar eru sex talsins, tvær í bakhúsi og fjórar í fremra húsinu. Tvær íbúðir eru tveggja hæða, svo- kallaðar penthouse-íbúðir. „Við fengum landslagsarkitektinn Björn Jóhannsson til að hanna allt umhverfið og í garðinum er meðal annars upplýst stuðla- berg,“ segir Ýmir. Hann segir íbúðirnar hafa verið hannaðar með nútíma lífsstíl í huga þar sem fólk er upptekið og hefur ekki mikinn tíma til að leita að innréttingum og húsgögnum. Byggingarstjóri og hönnuður er Sæmund- ur H. Sæmundsson, ásamt Ými. Arkitekt hússins er Þorgeir Jónsson og Ris ehf. steypti húsið frá grunni. Nútímalegar íbúðir í gamla Vesturbænum Kaffið frá Te & Kaffi R O YA L stundin - bragðið - stemningin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.