Fréttablaðið - 10.03.2007, Page 38
Af hverju er fólk afslappaðra í grænum
herbergjum? Hvers vegna ná kraft-
lyftingamenn betri árangri í bláum
lyftingasölum?
Þrátt fyrir að litir geti haft mismunandi
þýðingu eftir menningu og siðum þá hafa
rannsóknir sýnt að áhrif lita hafa svipuð
áhrif á flest fólk.
Svartur er litur áhrifa og valda. Hann er
vinsæll í tískufatnaði því hann lætur fólk
líta út fyrir að vera grennra.
Svartmáluð herbergi grípa athygli en
svefnherbergi í svörtum lit getur gefið
dökkt og seiðandi útlit. Hins vegar getur
svarti liturinn látið herbergið líta út fyrir
að vera minna.
Svartur litur getur verið óhentugur á
veggjum svefnherbergja því hann getur
haft slæm áhrif á geð fólks og jafnvel vald-
ið martröðum.
Hvítur er litur hreinleika og sakleysis,
enda klæðast brúðir jafnan hvítum kjól-
um. Liturinn er mjög vinsæll bæði á veggj-
um og innanstokksmunum jafnt og í fatn-
aði enda er hann léttur, hlutlaus og passar
við allt.
Rauður er litur ástarinnar og getur hert á
hjartslætti og öndun. Rauður er yfirleitt
notaður með öðrum litum þegar málað er.
Innanhússarkitektar segja gjarnan að rauð
húsgögn ættu að vera fullkomin því þau
vekja mikla athygli.
Rómantískasti liturinn er bleikur og er
meira róandi en rauður. Íþróttafélög mála
stundum búningsklefa andstæðinga sinna í
skærbleikum lit svo þeir tapi orku.
Blár er litur himins og hafs og er einn af
vinsælustu litunum. Hann hefur öfug áhrif
við rauðan. Blár er friðsæll og róandi og
er því gjarnan notaður í svefnherbergjum.
Liturinn getur reyndar einnig virkað kald-
ur og niðurdrepandi. Fólk er afkastameira
í bláum herbergjum enda sýna rannsóknir
að kraftlyftingamenn lyfta þyngri lóðum í
bláum lyftingasölum.
Grænn er mjög vinsæll í innanstokksmun-
um og er tákn fyrir náttúruna. Hann er auð-
veldastur fyrir augað og getur bætt sjón.
Hann er róandi og endurnærandi litur
og þess vegna situr fólk jafnan í grænu her-
bergi þegar það bíður eftir að fara í sjón-
varpsútsendingu. Þá nota spítalar gjarnan
grænan lit því það róar sjúklingana.
Glaðlegur sólgulur litur grípur athygl-
ina. Þrátt fyrir að gulur sé yfirleitt álitinn
bjartsýnislitur þá á fólk það frekar til að
missa stjórn á skapi sínu og ungbörn gráta
meira í gulum herbergjum.
Þetta er erfiðasti liturinn fyrir augað
svo hann getur verið yfirþyrmandi ef hann
er ofnotaður.
Fjólublár er konunglegur litur og táknar
lúxus, auð og virðuleika.
Hann er einnig kvenlegur og rómantísk-
ur en vegna þess hve sjaldgæfur hann er í
náttúrunni getur hann virkað gervilegur.
Áhrif lita á sálina
- mun hollara en frá erlendum framleiðendum
- aðeins 3% mettuð fita í Stjörnusnakki
- engin hert fita
- engar transfitusýrur, sem er mjög gott
- 30% minni fita en í kartöfluflögum
- þess vegna segjum við Til hamingju Ísland!
Í tilefni af umræðu um herta fitu í matvælum viljum við minna á að það er
engin hert fita og engin transfita í framleiðsluvörum Iðnmarks
og hefur ekki verið í 20 ár.
www.snakk.is
Hol
lara
sna
kk
með
100
%
sólb
lóm
aol
íu
Til hamingju Ísland!