Fréttablaðið - 10.03.2007, Síða 38

Fréttablaðið - 10.03.2007, Síða 38
Af hverju er fólk afslappaðra í grænum herbergjum? Hvers vegna ná kraft- lyftingamenn betri árangri í bláum lyftingasölum? Þrátt fyrir að litir geti haft mismunandi þýðingu eftir menningu og siðum þá hafa rannsóknir sýnt að áhrif lita hafa svipuð áhrif á flest fólk. Svartur er litur áhrifa og valda. Hann er vinsæll í tískufatnaði því hann lætur fólk líta út fyrir að vera grennra. Svartmáluð herbergi grípa athygli en svefnherbergi í svörtum lit getur gefið dökkt og seiðandi útlit. Hins vegar getur svarti liturinn látið herbergið líta út fyrir að vera minna. Svartur litur getur verið óhentugur á veggjum svefnherbergja því hann getur haft slæm áhrif á geð fólks og jafnvel vald- ið martröðum. Hvítur er litur hreinleika og sakleysis, enda klæðast brúðir jafnan hvítum kjól- um. Liturinn er mjög vinsæll bæði á veggj- um og innanstokksmunum jafnt og í fatn- aði enda er hann léttur, hlutlaus og passar við allt. Rauður er litur ástarinnar og getur hert á hjartslætti og öndun. Rauður er yfirleitt notaður með öðrum litum þegar málað er. Innanhússarkitektar segja gjarnan að rauð húsgögn ættu að vera fullkomin því þau vekja mikla athygli. Rómantískasti liturinn er bleikur og er meira róandi en rauður. Íþróttafélög mála stundum búningsklefa andstæðinga sinna í skærbleikum lit svo þeir tapi orku. Blár er litur himins og hafs og er einn af vinsælustu litunum. Hann hefur öfug áhrif við rauðan. Blár er friðsæll og róandi og er því gjarnan notaður í svefnherbergjum. Liturinn getur reyndar einnig virkað kald- ur og niðurdrepandi. Fólk er afkastameira í bláum herbergjum enda sýna rannsóknir að kraftlyftingamenn lyfta þyngri lóðum í bláum lyftingasölum. Grænn er mjög vinsæll í innanstokksmun- um og er tákn fyrir náttúruna. Hann er auð- veldastur fyrir augað og getur bætt sjón. Hann er róandi og endurnærandi litur og þess vegna situr fólk jafnan í grænu her- bergi þegar það bíður eftir að fara í sjón- varpsútsendingu. Þá nota spítalar gjarnan grænan lit því það róar sjúklingana. Glaðlegur sólgulur litur grípur athygl- ina. Þrátt fyrir að gulur sé yfirleitt álitinn bjartsýnislitur þá á fólk það frekar til að missa stjórn á skapi sínu og ungbörn gráta meira í gulum herbergjum. Þetta er erfiðasti liturinn fyrir augað svo hann getur verið yfirþyrmandi ef hann er ofnotaður. Fjólublár er konunglegur litur og táknar lúxus, auð og virðuleika. Hann er einnig kvenlegur og rómantísk- ur en vegna þess hve sjaldgæfur hann er í náttúrunni getur hann virkað gervilegur. Áhrif lita á sálina - mun hollara en frá erlendum framleiðendum - aðeins 3% mettuð fita í Stjörnusnakki - engin hert fita - engar transfitusýrur, sem er mjög gott - 30% minni fita en í kartöfluflögum - þess vegna segjum við Til hamingju Ísland! Í tilefni af umræðu um herta fitu í matvælum viljum við minna á að það er engin hert fita og engin transfita í framleiðsluvörum Iðnmarks og hefur ekki verið í 20 ár. www.snakk.is Hol lara sna kk með 100 % sólb lóm aol íu Til hamingju Ísland!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.