Fréttablaðið - 10.03.2007, Page 44

Fréttablaðið - 10.03.2007, Page 44
Fyrir rúmu ári opnaði danska verslanakeðjan Söstrene Grene fyrsta útibú sitt á Íslandi og á sama tíma var það fyrsta útibúið sem opnaði utan Danmerkur. Versluninni var ótrúlega vel tekið frá fyrsta degi, enda er úrvalið skemmtilegt og verð eftir því. „Við opnuðum annan desem- ber árið 2005 og í sama mánuði afgreiddum við 34.000 manns. Það kláruðust allar vörurnar okkar á fyrstu tíu dögunum og ekki dugði annað til en fluggámasendingar frá Dan- mörku til að bjarga málunum. Þetta var miklu meira en við gerðum ráð fyrir,“ segir Kristín Reynisdóttir, annar eigenda verslunarinnar, en ásamt Jóhönnu Einarsdótt- ur varð hún svo heppin að fá umboð til að reka verslun Grene-systra hér á landi. „Það eru um það bil eitt þús- und hlutir í versluninni að jafnaði, allt frá kakói og kúlupennum yfir í myndlistarstriga og olíuliti. Útgangspunkturinn með versl- uninni er að hér er öllu raðað upp eftir litum og þegar ein vara klárast er önnur keypt í staðinn sem gerir það að verkum að hér eru nýjar vörur dag- lega. Það skemmtilega við þetta er að við fáum sendingarnar beint frá Danmörku og vitum ekki á hverju við eigum von. Þess vegna eru alltaf jólin hjá okkur og því alltaf jafn spennandi að opna sendingarnar,“ segir Kristín að lokum. - mhg 1. Plastskálar á 159 kr. og skeiðarnar kosta 33 kr. 2. Sælgætisskál fyrir nammigrísi sem eru líka fagurkerar. 1.399 kr. 3.Kínabók undir leyndarmál, ljóð eða innkaupalista. 95 kr. stykkið. 4. Krúttlegir blómavasar undir sóleyjarnar í sumar. Litli feiti kostar 187 kr. en langi er á 269 kr. 5. Túrkísblá kubbakerti á 119 kr. 6. Sætar töskur sem henta undir allt frá snyrtivörum upp í púsl, tréliti og annað smádót. Kosta á bilinu 359 upp í 798 kr. 5 2 6 4 Grenesystur í blágrænum skugga Kakó, kúlupennar, myndlistarvörur og fleiri fjölbreyttar vörur í öllum regnbogans litum. 1 3 Skreytum, hönnum og útfærum næstum hvað sem er fyrir þína einstöku veislu. Leigjum út tertudiska, brúðarboga, kertastjaka, hringapúða, vasa, brúðarstyttur og fl. Líttu við á Smiðjuveginum opið laug.11-17 og sunnud. frá 14-17 litirogfondur.is Smiðjuvegi 4, Kópavogi, sími 55 22 500 Vissuð þið að Litir og föndur er með landsins mesta úrval af brúðkaupsvörum! ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir 10. MARS 2007 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.