Fréttablaðið - 10.03.2007, Síða 46

Fréttablaðið - 10.03.2007, Síða 46
heimaerbest Þeir eru líkast til fáir rithöfundarn- ir sem hafa komið sér upp jafn góðri vinnuaðstöðu og Ævar Örn Jósepsson, sem hefur breitt úr sér í kjallaranum heima hjá sér. Þar er allt til alls, eldhús, baðherbergi og stofa, svo nær er að tala um litla íbúð heldur en venjulega vinnu- stofu. „Þetta er fínasta athvarf,“ segir Ævar. „Þegar ég fer niður í kjallara má segja að ég sé farinn að heiman. Dagsdaglega er ég hérna út af fyrir mig en stundum læðist ég niður með gesti til að tala saman og reykja. Þetta er nefnilega eina her- bergið í húsinu þar sem reykingar eru leyfðar, sjáðu til.“ Ævar segist reyndar hafa verið fljótur að átta sig á ókostunum við að hafa vinnuaðstöðuna svona þægi- lega. „Þess vegna hengdi ég þennan forláta, rauða skiptilykil upp á vegg til að minna mig á að ég hef verk að vinna.“ Ævar bendir á 40-50 cm langan skiptilykil, varla léttari en kíló, frá Kongsberg í Noregi. „Hann blasir þarna við á veggnum þegar ég lít upp úr blöðunum, krimmun- um eða netinu og hefur oft komið sér alveg ágætilega.“ Ævar er að eigin sögn mikill nátthrafn og finnst því best að vinna á nóttunni, á milli klukkan 10.00 til 4.00. Myrkraverkin verða því til í kjallaranum á nóttunni. „Hugmynd- irnar fæðast hins vegar á öllum tímum sólarhringsins og yfirleitt í garðinum á sumrin, hvort sem ég er að róta í moldinni eða sit bara og stari út í loftið. Þá krota ég hug- myndirnar niður í minnisbók og svo endar allt saman í tölvunni. Það er stór miskilningur að hugmyndirnar streymi áreynslulaust frá manni, heldur þarf heldur betur að hafa fyrir þessu.“ roald@frettabladid.is Krimmasafn í kjallaranum Ævar Örn Jósepsson rithöfundur hefur skiptilykil uppi á vegg til að halda sér við efnið. Ævar hefur vinnuaðstöðu í 20 fermetra stórum kjallara, búnum öllum helstu þægindum. Hann segir því auðvelt að gleyma sér við eitthvað annað en ritstörfin. Rauður skiptilykill uppi á vegg sé þó áminning um hvert markmiðið sé. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Límmiðar geta vel komið í stað veggfóðurs eins og þessar mynd- ir hér að ofan sýna. Á vefsíðunni www.marmarco.com má fá frá- bærar hugmyndir fyrir heimilið. Þar er einnig hægt að panta hluti og fá senda upp á frón. Límmiðarnir eru af öllum stærðum og gerðum, frá blómum til ruslafatna. Hér eru birtar tvær skemmtilegar, aðra af skugga- mynd af fatahengi og hina af skemmtilegri lausn á hversdags- legu vandamáli. PÁFUGLAMYNSTUR Á fimmta og sjötta ára- tugnum var Keith Murrey aðalhönnuður Watts hönnunarfyrir- tækisins. Í gögnum Murreys fundust teikningar af páfugli og upp úr þeirri teikningu kemur hugmyndin að „Crown Hill“ matarstellinu. www. wattscontemporaries.com Lausn fyrir daufa veggi Hundar, ruslafötur, fatahengi og blóm sem líma má á veggi og skápa. 10. MARS 2007 LAUGARDAGUR6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.