Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 48
heimaerbest
Kristín Ómarsdóttir rithöfundur
gerði sér lítið fyrir og tók vinnu-
herbergið í gegn heima hjá sér.
Málaði herbergið og bókahillu í
hvítu, lagði dökkbláan dúk á skrif-
borð og raðaði fallegum munum í
kringum gamalt skrifpúlt. Í þess-
um ævintýraheimi situr höfundur-
inn við skrif alla daga á meðan
vofa Marilyn Monroe vakir yfir
öllu.
„Ætli vinnuherbergið sé ekki
eini hluti íbúðarinnar þar sem allt
er í röð og reglu um þessar mund-
ir,“ segir Kristín. „Annars vil ég
taka fram að ég er ofboðslega
regluföst manneskja þótt vinirnir
haldi öðru fram. Breytingarnar
marka þáttaskil, vonandi upphaf
að einhverju nýju og skemmti-
legu.“
Orð höfundarins öðlast tákn-
ræna merkingu þegar setið er við
borðið og horft út um gluggann.
því þá er engu líkara en maður sé á
leið vestur um haf á vit ævintýra.
„Þannig er einmitt í pottinn búið,“
játar Kristín. „Enda er ég hálf-
gerður sjóari í mér. Eða háseti
skulum við segja. Kannski bara
líka skipskokkur,“ bætir hún við
og hlær.
Eins og áður sagði hefur alls
kyns skemmtilegum hlutum verið
raðað á borðið, meðal annars fal-
legu skartgripaskríni. Blaðamaður
spyr í gríni hvort sjónræningja-
fjársjóðurinn sé nokkuð falinn þar.
„Nærri lagi,“ svarar Kristín. „Í því
geymi ég sendibréf frá vinkonu
minni. Okkur finnst þau nefnilega
mun skemmtilegri en e-mail.“
Kristín segist halda mikið upp á
hlutina, meðal annars 37 ára rautt
veski frá Carnabystreet, lampa frá
Spáni sem sambýliskonan Svein-
björg á og innrammaðar ljósmynd-
ir, sem hafa tilfinningalegt gildi
fyrir hana „Hérna er fermingar-
mynd af mömmu, blaðaúrklippa af
Gunnlaugi Scheving og pálmatré
sem Sveinbjörg myndaði. Þetta
eru hálfgerðir verndargripir.“
Á borðinu liggur síðan bók um
leikkonuna Marilyn Monroe, sem
Kristín segir veita sér andlegan
stuðning. „Ég hef mjög gaman af
Marilyn. Mér finnst eins og við
séum tengdar einhverjum óútskýr-
anlegum böndum,“ segir hún án
þess að skýra það nánar. Enda
þarfnast það ekki frekari skýringa
við. Leikkonan er sjálfsagt fínn
ferðafélagi í þeim ævintýraheimi
sem höfundurinn hefur skapað sér.
roald@frettabladid.is
Kristín hefur þessar fallegu myndir sér til
halds og trausts við ritstörfin.
Vofa Monroe vakir yfir öllu
Kristín Ómarsdóttir rithöfundur breytti vinnuherberginu í ævintýraheim.
Þegar horft er út um gluggann er engu líkara en maður sé á leið vestur um haf á vit
ævintýra.
Kristín segir dagsbirtuna sem streymir inn um gluggann á vinnuherberginu einstæða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Verð frá
8.900 kr.
Vertu knattspyrnustjóri á eigin heimavelli!
pingpong.is
Fótboltaspil
Suðurlandsbraut 10 Reykjavík
Sími 568 3920 & 897 1715
Skólavörðustíg 21
Sími 551 4050 • Reykjavík
Fyrir
brúðhjónin!
Það mýksta og besta
á brúðarsængina.
Lyocell satín.
100% vistvænt.
Snögg og góð þjónusta
Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík Sími 5774477 Fax 5774478 Þjónustuaðili
10. MARS 2007 LAUGARDAGUR8