Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 52
heimaerbest
Ragnheiður dvaldi um fjögurra mánaða skeið á Skals
håndarbejdsskole í Danmörku í lok síðasta árs og
fékkst þar við fjölbreytt handverk svo sem útsaum,
vélsaum, keramik, vefnað, öskjugerð, ullarþæfingu
og skartgripagerð. „Mig langaði að gera eitthvað allt
annað en það venjulega svo ég sótti um þennan skóla
og komst inn. Ekki til að ná mér í prófgráður heldur
til að hlaða batteríin. Þarna bjó ég á heimavist, þurfti
ekki að elda, kaupa inn eða borga reikninga svo þetta
var eiginlega afturhvarf til unglingsáranna þegar
maður þurfti ekki að hugsa um neitt nema sjálfan
sig,“ segir hún brosandi.
Hannyrðir voru Ragnheiði ekki framandi því hún
er handavinnukennari að mennt og var við kennslu í
fimmtán ár. Samt kynntist hún handbrögðum á Skals
sem hún kunni ekki áður. „Öskjugerðin kom skemmti-
lega á óvart og ég lærði líka japanska aðferð í kera-
miki sem gefur grófa áferð,“ segir hún og heldur
áfram að lýsa viðfangsefnunum. „Eina vikuna var
unnið úr ull sem var þæfð beint úr reyfinu og fallegir
hlutir búnir til undir leiðsögn skemmtilegs kennara.
Mér finnst líka gaman að sauma út og er ánægð með að
útsaumur skuli aftur vera kominn í tísku því í 20-30 ár
þótti hann hallærislegur. Mest gaman þótti mér þó að
vefa því það var nánast nýtt fyrir mér og þar græddi
ég heilmikið. Svo var umhverfið og andinn í skólanum
þannig að ég fylltist krafti og hugmyndum og það
kviknaði á týrum sem voru orðnar daufar. En auðvitað
tekur alltaf tíma að búa til hluti í höndunum og því
komst ég ekki yfir allt sem mig langaði að gera,“ segir
Ragnheiður og tekur fram að nemendur hafi ekki
keypt mynstur heldur hannað allt frá grunni.
Ragnheiður telur ýmislegt að fara forgörðum í
handverkskunnáttu íslensku þjóðarinnar. „Við flösk-
um á því að leggja ekki næga rækt við þessar iðnir.
Því erum við nú að læra af öðrum þjóðum aðferðir
sem við höfðum týnt niður,“ bendir hún á og bætir við
að lokum: „Það er svo gott að kunna að vinna í hönd-
unum og getur verið mjög verðmætt, þó ekki sé nema
til tómstundagamans.“ gun@frettabladid.is
Kviknaði á
gömlum týrum
Á heimili Ragnheiðar Torfadóttur, skrifstofumanns og húsfreyju í Mosfellsbæ, eru
margir fagrir munir sem hún hefur gert með eigin hendi og beitt ólíkum aðferðum við.
Grófa áferðin á keramikinu fæst með því að setja það glóandi
heitt ofan í fínt sag, þá verða sprungurnar svartar.
Ragnheiður naut þess að setjast á skólabekk í Skals håndarbejdsskole í Danmörku og
sækja sér hugmyndir og kraft. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Öskjugerðin kom á óvart.“ Hlýleg og falleg ullarábreiða er eitt af því sem Ragnheiður óf.
10. MARS 2007 LAUGARDAGUR12