Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 78
„Þar sem jökulinn ber við loft hætt- ir landið að vera jarðneskt, en jörð- in fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsyn- leg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“ Halldór Laxness: Fegurð himinsins (1940). Er hægt að hugsa sér fegurri byrjun á skáldsögu? Taka menn eftir því að þetta er ljóð, þótt það sé prentað eins og prósi? Í tilefni af umfjöllun minni um orðin allsgáður, „edrúmennska“ og algæði sendir Baldur Jónsson próf- essor mér eftirfarandi: „Ég sé í blaði dagsins að þú minn- ist á nafnorð af lýsingarorðinu alls- gáður. Það má velta því fyrir sér. Ég hefi efasemdir um þá orðmynd- unaraðferð sem þú nefnir, en mætti ekki nota karlkynsorðið allsgái? Mér finnst í minningunni að það hafi verið eftirlætisorð Einars Ólafs [Sveinssonar]. Ég tengi það a.m.k. við hann, og víst er að hann notar það í bókmenntasögu sinni, bls. 10: „Löngun víkinganna til að sjá nýtt, lönd og þjóðir, hélzt í hend- ur við eins konar heiðríkan, næri því kaldlyndan allsgáa“. Ég hefi haft gaman af þessu orði Einars Ólafs, og nota það sjálfur, svo að mér datt í hug að gauka því að þér.“ Ég þakka Baldri þessa tillögu og finnst hún afbragð. Hvernig líst „meðferðaraðilum“ á? er haft eftir handboltamanni í Fréttablaðinu 21. janúar. Auðvitað er ekkert undarlegt þótt íþrótta- maður mismæli sig. Vænting merkir eftirvænting, von, þrá. Menn vænta einhvers, en gera ekki væntingar, heldur kröfur. Hér á blaðamaður að vera á verði og leiðrétta. Það brást. Og það sem verra er: í fyrirsögn er sagt til sjálfs míns. Sem táknar að blaða- maðurinn ruglar saman ég (per- sónufornafn, ef. mín) og minn (eignarfornafn, ef. míns: til sonar míns). segir í Mbl. í umfjöllun um listsýn- ingu, og hljómar illa í mínum eyrum. Betra finnst mér að tala um fjölda mynda á sýningu. Hafþór Ragnarsson sendir þessa þörfu ábendingu: „Sekúndurnar tifa er setning sem oft heyrist í sjónvarpi og út- varpi þegar líður að lokum ýmissa kappleikja. Hér hefur íþrótta- fréttamönnum hlaupið kapp í kinn og þeir slegið saman tveimur fyrir- bærum. Sekúndur líða. Klukkur tifa. Ef þú gætir bent á þetta í Fréttablaðinu væri mörgum íþróttaáhugamanninum gerður greiði.“ Þessu er hér með komið á framfæri. Kannski má bæta því við, að trúlega heyrist ekkert tif í nútímaklukkum í íþróttahúsum. En það er önnur saga. Auðunn Bragi Sveinsson sendir þessa fallegu braghendu: Áður fannst mér tíminn tosast tregt á vegi. Nú ég þetta sannast segi: -Sé ég eftir hverjum degi. Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@ vortex.is Í Íran er föstudagur frídagur, eins og sunnudagur heima. Fimmtu- dagskvöld eru því partíkvöld hér í Teheran. Það tók mig smá tíma að venjast því að hér byrjar vinnu- vikan á laugadegi sem er eins og hver annar mánudagur heima. Svona eru hlutirnir oft öfugsnúnir í Íran. Dagatalið er allt annað, hér er árið 1385, og persneska er skrif- uð og lesin í öfuga átt, frá hægri til vinstri. Síðasta fimmtudagskvöld fór ég með vinkonu minni í partí rétt fyrir utan Teheran. Þessi vinkona mín er ein frægasta leikkona Írana og því í innstu kreðsu lista- og menningar- geirans. Eftir því sem maður kemst ofar í þjóðfélagsstigann er fólkið og viðhorfið vestrænna. Það er al- gengt að ríka fólkið í Teheran eigi annað hús rétt fyrir utan borgina. Þar getur það slappað af, andað að sér fersku lofti og haldið brjáluð partí í risahúsum. Þar sem við brunuðum í mesta sakleysi eftir hraðbrautinni út úr Teheran komum við að vegatálmum. Áður en við vissum af var lögreglan búin að stoppa okkur og við umkringd her- mönnum og lögreglu, og umstangið mjög mikið. Ég vissi ekkert hvað var að gerast en þar sem ég stóð í vegarkantinum á háhæluðum skóm með varalit og bleika slæðu á höfð- inu, hvíslaði vinkona mín: „Ekki vera hrædd.“ Þarna stóðum við tvær í sparifötunum á leiðinni í partí og vorum skyndilega um- kringdar hermönnum með vélbyss- ur. Á augnabliki var lögreglan búin að umturna bílnum okkar í leit að einhverju, líklega áfengi eða popp- tónlist. Ég hafði ekki tíma til að vera hrædd því mér fannst svo stórmerkilegt að fylgjast með þess- um mönnum, sem æddu fram og til baka með hrópum og köllum sem ég skildi ekki. Þetta var eins og at- riði í bíómynd. Svona er lífið hérna stundum súrrealískt. Að sjálfsögðu fannst ekkert í bílnum okkar og við brunuðum í partí- ið eins og ekkert hefði í skorist. Vinkona mín full- vissaði mig samt um það að hún hefði aldrei lent í þessu áður og sagði svo í gríni að kannski væri aukið öryggi vegna þess að nú væri Alþjóðakvennadagurinn. Aðalfréttir síðustu viku frá Íran voru konurnar þrjátíu og þrjár sem voru handteknar fyrir að mótmæla fyrir utan réttarhöld yfir öðrum fimm írönskum konum sem berjast fyrir auknum réttindum kvenna. Þessar konur eru allar menntaðar og eru úr efri stigum þjóðfélagsins. Þar er áherslan á breytingar mest sem og baráttan fyrir rétti kvenna. Fátæku, trúuðu og ómenntuðu kon- urnar hafa ekki bolmagn til að berj- ast fyrir rétti sínum og sætta sig við að hylja höfuðið með öllu sem því fylgir. Þessar handteknu bar- áttukonur eru aðeins að fara fram á það að aflétt verði lögum sem geta dæmt konur til dauða fyrir fram- hjáhald með steinkasti og að konur séu metnar til jafns við karlmenn, en í dag er staðan þannig að fyrir rétti hefur vitnisburður karlmanns helmingi meira vægi en vitnisburð- ur konu. Tvær konur eru til jafns við einn karlmann. Þetta er ennþá Íran þó ég gleymi því stundum þegar ég er með vinkonum mínum sem eru alveg eins og hvar annars staðar í heiminum. Ég fæ reyndar alltaf vægt menningarsjokk í hvert sinn sem ég labba inn í partí hér. Íran úti á götu og Íran inni í húsi er tvennt ólíkt. Í partíum eru konur mjög glannalega klæddar, stífmál- aðar og stífgreiddar, eins og dúkk- ur. Tónlist, dans og matur lýsa partíum best. Og það í þessari röð. Þegar fólk mætir er tónlistin alltaf í botni og allir dansa af miklum krafti. Það er enginn feiminn á dansgólfinu og svitinn bogar af karlmönnunum. Þegar arabískir tónar heyrast breytast konurnar í persneskar prinsessur. Mjaðmir byrja að sveiflast og hendur lykkj- ast í hringi. Þvílíkar hreyfingar og þvílík fágun. Þá hætti ég yfirleitt að brussast á dansgólfinu. Matur- inn er borinn fram eftir miðnætti en eftir matinn hægist á dansinum og fólk getur talað saman áður en það fer að tínast heim. Svona eru hlutirnir oft í öfugri röð í Íran. Lífið hérna er gjörsamlega frá- brugðið því sem ég hef áður kynnst og maður verður stöðugt að búa sig undir það óvænta. Rútína er ekki til í orðaforða Írana og því er ekkert sem heitir rútína hér. Enginn dagur er eins. En það er einmitt það sem gerir Teheran að stórskemmtilegri og mjög svo spennandi borg. hannabjork@gmail.com Fyrri pistla frá Íran má lesa á www.hanna- bjork.blogspot.com og á visir.is Vegatálmar og vestræn viðhorf Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON. Leystu kross gátun a! Þú gæ tir un nið james bond myndi na casino royal e á DV D!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.