Fréttablaðið - 10.03.2007, Síða 81

Fréttablaðið - 10.03.2007, Síða 81
Breska tónlistartímaritið NME valdi þessa plötu eina af 10 bestu plötum síðasta árs. Persónulega botna ég ekkert í því. Mig grun- ar að Pretenders-legi slagarinn Weekend Without Makeup hafi átt hlut að máli. Hef það líka á tilfinningunni að þetta sé eitt af þessum böndum sem skila sér ekki eins vel á plasti og á sviði. Sveitin er mönnuð þrem- ur stúlkum og tveimur strákum og leikur breskt ruslrokk með klingjandi gíturum beint eftir formúlunni. Einföld gítarstef ofan á stuðandi takta sem detta annað slagið inn í diskóbítið. Þannig hljómar Long Blondes oft eins og liðsmenn Franz Ferdinand séu að leika undir hjá Deboruh Harry, söngkonu Blondie. Sem yrði eflaust ekkert svo slæmt, en ég er einhvern veginn alltaf að bíða eftir því að heyra í breskri sveit sem minnir mig ekki á ein- hverja aðra nýlega breska sveit. Það er ekkert svo langt síðan það þótti dauðadómur að minna á ein- hverja aðra sveit, en í dag virð- ist það vera skilyrði til þess að fá plötusamning. Sum lögin eru skemmtilega sæt, eins og Once and Never Again. Skemmtilegur blær frá sjötta áratugnum svífur yfir lag- inu, sem svo er kristallað með texta sem virkar eins og mót- svar 21. aldarinnar við öllum klisjulegu táningsástartextunum frá gömlum sveitum á borð við Shangri-La´s, The Ronettes eða The Crystals. Boðskapurinn er að það sé engin ástæða að flýta sér að komast á fast því það sé betra að lifa og leika sér fram á tvítugs- aldurinn. Ekki hefði amma mín samþykkt þessi rök. Þessi frumraun Long Blondes er nokkuð fín en líður töluvert fyrir skort á frumleika í útsetn- ingum. Það er ekkert við sjálfa tónlistina sem er mjög eftir- minnilegt og í mínum huga fellur hún algjörlega í fjöldann og verð- ur eflaust dottin úr minni mínu eftir helgina. Hér er þó nóg af neista til þess að geta leyft sér að vona að næsta plata sveitarinnar verði betri. Litla systir hans Franz Lane Garrison, sem leikur í spennuþáttunum Prison Break, hefur verið ákærður fyrir mann- dráp og fyrir að aka undir áhrifum áfengis þegar bíll hans lenti í árekstri á síðasta ári. Sautján ára piltur lést í slysinu og tvær fimmt- án ára stúlkur slösuðust. Garrison, sem er 26 ára, á yfir höfði sér sex ára og átta mánaða fangelsi verði hann fundinn sekur. Hann má ekki aka bíl, drekka áfengi né fara á bari á meðan hann bíður eftir réttarhöldunum. Þættirnir Prison Break fjalla um fanga á flótta undan réttvís- inni og því þykir það nokkuð kald- hæðnislegt að Garrison sé nú hugsanlega á leiðinni í steininn. Kærður fyrir manndráp Hljómsveitirnar Beastie Boys, The Killers, Peter Björn og John og Slayer eru á meðal þeirra sem hafa bæst við dagskrá Hróars- kelduhátíðarinnar sem verður haldin í Danmörku í sumar. Langt er síðan Beastie Boys spilaði síðast á Hróarskeldu. Eiga slagarar á borð við Sabotage, Fight For Your Right og Intergalactic eflaust eftir að falla hátíðargest- um vel í geð. The Killers frá Las Vegas gaf á síðasta ári út sína aðra plötu, Sam´s Town og á henni er m.a. lagið When You Were Young. Peter, Björn og John gaf út plöt- una Writers Block á síðasta ári þar sem hið vinsæla Young Folks er m.a. að finna. Sveitin heldur tónleika hér á landi í vor. Á meðal fleiri þekktra nafna á Hróarskeldu í ár eru Red Hot Chili Peppers, Björk og The Who. Beastie Boys bætast við Aðdáendur popparans Michaels Jackson þurftu að borga tæpar 230 þúsund krónur á mann til að fá að hitta goðið í Tókýó á dögun- um. Biðu aðdáendurnir spenntir eftir því að fá að spjalla við Jack- son og taka myndir af honum á sérstökum fjöldafundi sem var settur upp fyrir þá. Söng hann hvorki né dansaði fyrir aðdáend- urna. „Ég myndi borga tíu sinnum hærri upphæð hvar og hvenær sem er,“ sagði Carlo Riley, aðdá- andi Jacksons. Flaug hann sér- staklega til Japans frá Bandaríkj- unum til að hitta popparann sér- vitra. Fúlgur fyrir fundinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.