Fréttablaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 88
Frumburðinum lá á að koma í heiminn
Eins og fram kom í
Fréttablaðinu í gær þá hefur ÍBV
kært formann dómaranefndar
HSÍ, Guðmund Erlendsson, til
Handknattleikssambandsins
vegna framkomu hans í garð Ein-
ars Jónssonar, þjálfara kvennaliðs
ÍBV, eftir leik HK og ÍBV á mið-
vikudag. Einar segir Guðmund
hafa kallað sig illum nöfnum og
auk þess haft í frammi ógnandi
framkomu.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, staðfesti að
málið væri komið inn á borð hjá
sambandinu. Hann sagði það sér-
stakt og í raun án fordæma. Það
kemur því í hlut aganefndar HSÍ
að kveða upp úr um hvort málið sé
kæruhæft, og ef svo er taka það
fyrir í kjölfarið. Aganefndin fund-
ar næstkomandi þriðjudag.
Ekki náðist í Guðmund á
fimmtudag en hann svaraði Frétta-
blaðinu í hádeginu í gær. „Ég kann-
ast ekki við að það sé búið að kæra
mig. Þú ert að segja mér fréttir.
Ég þekki ekki málið,“ sagði Guð-
mundur við blaðamann sem kom
af fjöllum enda var honum vel
kunnugt að Guðmundur vissi
betur.
Einar Jónsson staðfesti að Guð-
mundur hefði rætt við formann
aðalstjórnar ÍBV um málið. „Hann
sakar mig um að hafa kallað sig
heimskingja og heilalausan. Hann
sakar mig einnig um lygar sem er
algjört kjaftæði,“ sagði Einar.
„Þegar honum var síðan tjáð að
við ætluðum að kæra hótaði hann
að kæra á móti. Það veit bara eng-
inn fyrir hvað. Það er annars verið
að reyna að þæfa málið og fá mig
til að draga kæruna til baka. Ég er
ekki til í það og vil láta reyna á
þetta. Menn eiga ekki að komast
upp með að haga sér svona.“
Einar Þorvarðarson staðfesti
einnig að hafa rætt málið við Guð-
mund þannig að hann virðist ekki
vera eins grunlaus og hann vill
vera láta.
„Ég hef ekkert um málið að
segja,“ sagði Guðmundur þegar
búið var að greina honum frá
málsatvikum. „Ég hef hreina sam-
visku í málinu og hann [Einar
Jónsson] ætti að líta í spegil,“
sagði Guðmundar að lokum.
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar, sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að þessi meinta
hegðun Guðmundar kæmi honum
ekki á óvart en hann þeir Guð-
mundur hafa oft eldað grátt silfur
síðustu ár.
„Það sem er áberandi í hegðun
Guðmundar er sú staðreynd að
hann er mjög orðljótur og sýnir
mikinn hroka í sinni framkomu.
Hann segir mönnum að þegja og
halda kjafti. Þessar ögranir hans í
starfi eftirlitsmanns eru ekkert
nýtilkomnar. Maður fær ótrúleg-
ustu tilsvör frá manninum og ef
maður vogar sér að kvarta yfir
framkomunni þá er svarið alltaf
það sama. Hann kallar mann lyg-
ara. Það er hans taktík,“ sagði Að-
alsteinn sem hefur lent í slíkum at-
vikum nokkrum sinnum. „Hann
segir hlutina ekki hafa átt sér stað
og lýgur upp í opið geðið á mér
sem og öðrum.“
Aðalsteinn segir ástandið hvim-
leitt enda sé enginn eftirlitsmaður
með eftirlitsmanninum. Hann taldi
upp mýmörg dæmi um samskipti
sín við Guðmund sem virðast ein-
kennast af því að ef Aðalsteinn
kvartar yfir dómgæslu opinber-
lega mæti Guðmundur sem eftir-
litsmaður á næstu leikjum liðs
hans og geri honum erfitt fyrir.
Guðmundur er einnig þekktur
fyrir að setja sama dómaraparið á
leiki liða þar sem þjálfarar eða
forráðamenn hafa kvartað yfir
dómgæslu. Kvörtun sé ávísun á
sama parið í nokkra leiki í viðbót
að sögn Aðalsteins.
„Þessi framkoma hans er ekki í
lagi. Ég er ánægður með að Einar
skuli hafa riðið á vaðið en hann
hefur fjöldamörg vitni. Guðmund-
ur gerir þetta trekk í trekk og hann
kallar menn ávallt lygara þegar
eitthvað er hermt upp á hann. Ég
stend á því föstum fótum,“ sagði
Aðalsteinn.
Aðalsteinn Eyjólfsson segir meinta framkomu formanns dómaranefndar HSÍ, Guðmundar Erlendssonar,
við þjálfara ÍBV ekki koma sér á óvart. Hann segir það vera taktík Guðmundar að kalla aðra lygara þegar
að honum sé sótt. Framkvæmdastjóri HSÍ segir málið sérstakt og ekki liggi fyrir hvort það sé kæruhæft.
Dregið var í fjórðungsúr-
slit Meistaradeildar Evrópu í
Aþenu í gær en úrslitaleikurinn
fer fram á Ólympíuleikvanginu
þar í borg 23. maí.
Þrjú ensk lið voru með í drætt-
inum og drógust þau ekki hvert
gegn öðru. Liverpool mætir PSV,
Manchester United leikur gegn
Roma og Chelsea við Valencia. Þá
mætast einnig AC Milan og Bay-
ern München.
Þá var einnig dregið hvaða lið
mætast í undanúrslitum. Ef mið er
tekið af því að öll ensku liðin kom-
ast áfram munu Chelsea og Liver-
pool mætast í öðrum undanúrslita-
leiknum. Manchester United
myndi þá mæta annað hvort AC
Milan eða Bayern München.
Liverpool og PSV voru saman í
riðlakeppninni og þar vann fyrr-
nefnda liðið á heimavelli, 2-0, en
liðin gerðu markalaust jafntefli í
Hollandi.
Alex Ferguson sagði í gær að
hann bæri mikla virðingu fyrir
Roma sem vann Lyon í 16-liða úr-
slitum. „Við hlökkum til að takast
á við þetta verkefni. Við höfum
aldrei mætt Roma og er þetta það
skemmtilega við Evrópukeppnir,
að mæta liðum í fyrsta sinn.“
Ensku liðin mætast ekki innbyrðis
Uppselt varð á leik Dan-
merkur og Svíþjóðar á Parken í
Kaupmannahöfn aðeins 24 mín-
útum eftir að miðasala hófst í
gærmorgun. Er það nýtt met hjá
danska knattspyrnusambandinu.
Leikurinn er liður í undankeppni
EM 2008 en liðin eru með Íslandi í
riðli. Hann fer fram 2. júní nk.
Seldist upp
á 24 mínútum
Þeir Freyr Bjarnason,
Davíð Þór Viðarsson, Daði Lárus-
son og Tryggvi Guðmundsson
framlengdu allir samninga sína
við FH í gær. Þeir tveir fyrst-
nefndu til 2009 en Daði og
Tryggvi til 2010.
Einnig var samið við fjölda
ungra leikmanna sem munu
væntanlega koma við sögu hjá að-
alliði FH næstu árin.
Fjórmenningar
framlengja