Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 94
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Leonardo DiCaprio lenti á Reykja-
víkurflugvelli í skjóli nætur að-
faranótt föstudags en hann kom
frá New York. Til stendur að
taka af honum forsíðumynd fyrir
bandaríska glanstímaritið Vanity
Fair hér á landi. DiCaprio dreif
sig strax á 101 hótel í miðborg
Reykjavíkur þar sem leikarinn
svaf úr sér ferðaþreytuna. Hróð-
ur hótelsins hefur augljóslega
borist víða enda krefjast stór-
stjörnurnar þess að hafa þar næt-
urstað og er skemmst að minnast
þess að Jude Law tók fjölskyldu-
svítuna á leigu þegar hann var
hér fyrir nokkrum vikum. Heim-
ildir Fréttablaðsins herma að
DiCaprio hafi ekki getað verið
minni maður en breski sjarmör-
inn og bókað hina glæsilegu svítu
fyrir sig og sína en nóttin kostar
litlar 70 þúsund krónur.
DiCaprio var þó ekki lengi
innan borgarmarkanna. Starfs-
fólk True North var komið fyrir
utan hótelið áður en sól tók að
rísa og hélt leikarinn strax aust-
ur þar sem ferðinni var heitið í
Jökulsárlón. Þar var ekki slegið
slöku við. Við tóku stífar tökur
hjá ljósmyndaranum Annie Lei-
bovitz og var starfsfólk True
North vel tækjum búið, allar
skipanir fóru fram í gegnum tal-
stöðvar og bátar ferjuðu leikar-
ann á milli ísjaka á lóninu. Einar
Björn Einarsson, staðarhaldari
við Jökulsárlón, frábað sér að tjá
sig um málið þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann um morg-
uninn og sagðist ekki geta sagt
eitt eða neitt. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að þrjátíu manns
hafi komið að myndatökunni með
einum eða öðrum hætti og því
ljóst að Vanity Fair bindur mikl-
ar vonir við hið ósnortna lands-
lag Suðurlands. Sem fyrr er
starfsfólk True North þögult sem
gröfin um komu stórleikarans.
„Ég get ekkert sagt og vil ekkert
segja. Er ekki bara hægt að leyfa
honum að koma í friði?“ voru
svörin sem fengust hjá Helgu
Margréti Reykdal, framkvæmda-
stjóra True North.
Komu DiCaprios hefur verið
beðið með nokkuri óþreyju. Upp-
haflega stóð til að leikarinn myndi
dveljast hér í nokkra daga og var
hann væntanlegur á þriðjudag
samkvæmt fyrstu fréttum. Ferða-
tilhögun leikarans breyttist þó
dag frá degi og mikillar spennu
tók að gæta meðal aðstandenda
True North. Beðið var eftir stað-
festingum í vikunni frá fjölmiðla-
fulltrúa leikarans enda er það
regla í þessum bransa að ekkert
er öruggt fyrr en fólkið er lent.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins verður leikarinn ekki
lengi á landinu heldur verður far-
inn áður en helgin er á enda.
Guðbjörg Hildur Kolbeins
Íslenski kaupsýslumaðurinn Björg-
ólfur Thor Björgólfsson hækkar sig
um 101 sæti og kemst í 249. sæti yfir
ríkustu menn heims á lista tímarits-
ins Forbes. Eignir Björgólfs Thors
eru metnar á 3,5 milljarða banda-
ríkjadala, eða um 235 milljarða
króna. Í fyrra voru eignir Björ-
gólfs metnar á 2,2 milljarða dala
og þá sat hann í 350. sæti yfir
auðugustu menn veraldar.
Björgólfur er nú orðinn rík-
ari en margir heimsþekkt-
ir einstaklingar úr við-
skiptalífinu og skemmt-
anaiðnaðinum. Þannig er
kvikmyndaleikstjórinn
Steven Spielberg í sæti 287, metinn á
þrjá milljarða dala, og fasteignamóg-
úllinn og sjónvarpsstjarnan Donald
Trump enn neðar, í sæti 314. Í sæti
númer 488 eru svo Malcolm Glazer og
synir hans sem keyptu Manchester
United fyrir háa upphæð fyrir
skemmstu. Þeir eru varla
hálfdrættingar á við
Björgólf. Sjónvarpskon-
an Oprah Winfrey er
metin á 1,5 milljarða dala
í sæti 664 og Björgólfur
Guðmundsson kemst
í fyrsta sinn á list-
ann, situr í sæti
799 metinn á 1,2
milljarða dala.
Þótt Björgólf-
ur hafi hækk-
að talsvert á listanum á hann enn eftir
að taka fram úr ófáum stórlöxunum á
leið sinni á toppinn. Fyrir ofan
Björgólf má finna George Lucas og
Bernie Ecclestone (243. sæti), Giorg-
io Armani (177), Ralph Lauren (158),
Steve Jobs (132), Rubert Murdoch
(73), Silvio Berlusconi og fjöl-
skyldu (51) og Roman Abramov-
ich, eiganda Chelsea (16). Rík-
asti maður heims samkvæmt
Forbes er sem fyrr Bill Gates.
Eignir hans eru metnar á 56
milljarða Bandaríkjadala.
Björgólfur ríkari en Trump og Spielberg
„Þetta var frábær ferð og ég naut
þeirra forréttinda að vera með
stórum og skemmtilegum hópi
kvenna,“ segir Margrét Sverris-
dóttir stjórnmálamaður á heima-
síðu sinni um eftirminnilega ferð
til London í vikunni. Margrét var
þar í hópi hundrað þekktra kvenna
sem allar eiga það sameiginlegt að
teljast áhrifakonur í atvinnulífinu.
Konurnar voru á vegum Exedra
sem er skilgreint sem vettvangur
umræðna þessara áhrifakvenna
sem koma meðal annars úr við-
skiptum, stjórnmálum, mennta-
málum, fjölmiðlum og listum.
Það var á þriðjudagsmorgun
sem lagt var upp í ferðina en ein-
hverjar bættust við úti í Lond-
on. Í hópnum voru meðal
annarra sjónvarpskonurn-
ar Eva María Jónsdóttir,
Jóhanna Vilhjálmsdóttir
og Sigríður Arnardótt-
ir, Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráð-
herra, Guðfinna
Bjarnadóttir, fyrrum
rektor HR, og arftaki
hennar Svafa Grön-
feldt. Auk þess var
lögfræðingurinn
Kristrún Heimisdótt-
ir með í för og at-
hafnakonurnar Krist-
ín Ólafsdóttir og Unnur
Sigurðardóttir. Heiðurs-
gesturinn var svo sjálf
Dorrit Moussaieff for-
setafrú.
Hópurinn gisti á glæsi-
hóteli í London eina nótt
og stíf dagskrá var á meðan dvöl-
inni stóð. Við komuna var haldið í
hádegisverð þar sem framámenn
úr íslensku útrásinni héldu fyrir-
lestra um starf fyrirtækja sinna á
erlendri grundu. Þarna voru full-
trúar frá Bakkavör, Glitni, Kaup-
þing, Landsbankanum og FL
Group, en það var sjálfur forstjór-
inn, Hannes Smárason, sem mætti
á svæðið. Mjög góður rómur var
gerður að máli Hannesar og því
hvernig hann kom fyrir, enda tal-
aði hann blaðalaust og var mjög
alúðlegur. Hafði ein viðstaddra
á orði að þarna hefði Hannes
breytt áliti um 100 kvenna
á sér á svipstundu. Sjálfur
lét Hannes þau um-
mæli falla í ræð-
unni að þegar
hann stæði fyrir
framan hóp
allra þessara kvenna skildi hann
vel hvernig konum liði í viðskipta-
lífinu.
Að vel heppnuðum hádegisverði
og umræðum loknum var hópur-
inn í heild sinni fluttur í tísku-
verslunina Karen Millen. Verslun-
inni var sérstaklega lokað fyrir ís-
lensku konurnar og allar fengu
þær 50 prósenta afslátt. Óhætt er
að segja að það hafi mælst ágæt-
lega fyrir.
Klukkan 17 var móttaka hjá
sendiherranum en kvöldverður
var svo snæddur í Natural His-
tory Museum. Þar var sungið
og dansað fram á nótt en
meðal skemmtikrafta var
Garðar Thór Cortes. Ís-
lensku konurnar 100
sneru svo til síns heima
seinnipartinn á mið-
vikudag.
Dorrit heiðursgestur í London
Hugh Grant
hefur aldrei
verið betri.
Gildir ekki í lúxus VIP og ekki á önnur tilboð
Gildir til og með 16. mars
sem fær þig til að grenja úr hlátri.
Rómantísk gamanmynd