Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 96

Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 96
© In te r I KE A Sy ste m s B .V .2 00 7 www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18.00 12.00 - 18.00 Morgunmatur 195,- IKEA Restaurant & CaféIKEA Restaurant & Café með kartöflum, týtuberjasultu og rjómasósu (10 stk.) frá kl. 9:00 - 11:00 mánudaga - laugardaga Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun Sænskar kjötbollur 1.690,- ETHEL rúmfatasett 150x200 cm rautt/marglitt SMYCKA gerviblóm orkídea H85 cm 695,-/stk. ALVINE VÄXT púði 35x35 cm grænn/marglitur 1.690,- MYLONIT lampi H31 cm ýmsir litir 695,- LISBET motta 80x250 cm marglit NYTTJA rammar 2 stk. 13x18 cm ýmsir litir 250,- NORESUND borð H50 cm svarbrúnt 1.990,- KVINTETT veggljós B24xH26 cm 1.590,- KILAN rúmteppi 180x280 cm dökkrautt 3.990,- RINGUM motta Ø70 cm dökkgræn JONDAL spegill 140x60 cm svarbrúnt 3.990,- ALVINE FLORA púði 50x60 cm marglitaður 2.490,- SALONG blómavasi H9 cm grænn GENIAL kerti 10 stk. H4 cm blandaðir litatónar 250,- MYSA VATTEN sæng 150x200 cm 1.890,- GOSA VILA koddi 65x65 cm 795,- MELDAL rúmgrind 90x200 cm svarbrún 9.950,- án dýnu 1.990,- 495,- 1.290,- 490,- Bjart og ferskt Ég er farinn að hallast að því að Íslendingar, þó ekki nánd- ar nærri allir, eigi það til að vera fram úr hófi dramatískir. Ákveð- inna histerískra tilhneiginga gætir í þjóðarsálinni. Fólk er til dæmis farið að sjá soraklám út úr sak- leysislegum forsíðum verslunar- bæklinga, heill stjórnmálaflokkur nötrar og skelfur út af útlending- um á Íslandi, internetið er í augum sumra orðið stórvarasamt, ráð- stefnugestir utan úr heimi fá ekki gistingu hjá bændum. Yfirlýs- ingar um rétt líferni og góða siði dynja á þjóðinni í bland við hávær hróp um að allt sé að fara norður og niður í alls konar óskilgreind- um væðingum og váum. hef ég alltaf verið ginkeypt- ur fyrir rökum þess efnis að allt sé að fara til andskotans. Ég hef satt að segja í gegnum tíðina haft fyrir slíkum málflutningi allnokkurn húmor. Fátt er hressilegra en vel orðuð bölsýni í anda Bólu-Hjálm- ars og Kristjáns Fjallaskálds. Oft hef ég sveimað sem Íslend- ingur í mínum vangaveltum einn yfir kaldan eyðisand, í yfirfærðri merkingu skáldsins, fjarlægst Norðurland og átt hvergi heima. Alltaf hefur það verið hressandi að núllstilla sálartetrið með þess- um alíslenska fylleríssöng á góðri stundu. Bölsýnin er þannig órjúf- anlegur hluti af Íslendingseðlinu á ákveðinn hátt. Við syngjum bein- línis vísur í þeim anda þegar við lyftum okkur upp. í pólitískri bölsýni að mínu mati átti einn tiltekinn for- setaframbjóðandi í síðustu forseta- kosningum. Sá kvaðst þess full- viss að ef ekkert yrði að gert, og hann næði ekki kjöri, myndi verða kjarnorkustríð í heiminum að nokkrum árum liðnum. Hið merki- lega er að frambjóðandi þessi náði ekki kjöri þrátt fyrir þessa afar- kosti. Segja má, að við málflutn- ingnum „mig eða kjarnorkustríð“ hafi þjóðin valið hið síðarnefnda. Það felur auðvitað í sér átakanleg skilaboð, á vissan hátt, til framjóð- andans um að hann hafi ekki átt erindi sem erfiði. þetta var líka öfgafullt dæmi. Það er gamalt minni úr þjóðmála- umræðu að menn veki upp ótta og böl. Því er til dæmis ítrekað haldið fram að tilteknir stjórnmálaflokk- ar ætli sér að útrýma öllum bænd- um, aðrir byggðum, sumir sjó- mönnum. Auðvitað vita samt allir að engum stjórnmálaflokki geng- ur svo til, en svona hljómar samt áróðurinn. Að vekja upp óskil- greindan ótta er fyrir mörgum ódýr leið til þess að brýna raustina í eigin þágu. rætt er um aðsteðjandi vanda, sem vissulega er fyrir hendi á mörgum sviðum, er alltaf full- komið lykilatriði, að mínu mati, að vera skýr, notast við skýr hugtök og rökstyðja vel hvað átt er við. Pólit- ískum dramadrottningum hættir til að hrópa hátt um alls kyns yfirvof- andi syndaflóð og hörmungar, en mér finnst alltaf betra ef spyrjum frekar eins og góðir foreldrar gera, af yfirvegun og ró, þegar barninu líður illa, en veit ekki sjálft hvern- ig það á að koma verkjum sínum í orð: „Hvar, nákvæmlega, finnurðu til, krúttið mitt?“ Bölið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.