Fréttablaðið - 18.03.2007, Blaðsíða 2
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Heildarkostnað-
ur vegna starfa sérstaks ríkis-
saksóknara í
Baugsmálinu,
þar með talinn
kostnaður við
aðstoðarmenn
og aðkeypta
sérfræðiþjón-
ustu, hljóðar
upp á 34,5 millj-
ónir króna.
Þetta kemur
fram í svari
dómsmálaráðherra við fyrirspurn
fjögurra þingmanna.
Einnig kemur fram að sam-
kvæmt áætlun hafi um 20 prósent
af starfsemi efnahagsbrotadeild-
ar farið í Baugsmálið á tímabilinu
ágúst 2002 til ársloka 2006.
Þá er þess getið að fram til
þessa hefur ríkið verið dæmt
til að greiða rúmar 43 milljón-
ir króna vegna málskostnaðar
ákærðu í málinu.
Sérstakur sak-
sóknari kostar
34,5 milljónir
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla vegna þingkosn-
inganna 12. maí hófst í gær, átta
vikum fyrir kosningar.
Kosið er í öllum sendiráðum Ís-
lands í útlöndum og hjá öðrum
fulltrúum ríkisins á erlendri
grund.
Kjósendum ber að kynna sér
sjálfir hverjir eru í framboði og
hvaða listabókstafir eru notaðir.
Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á
að póstleggja atkvæði sín.
Framboðsfrestur rennur út
27. apríl, rúmum tveimur vikum
fyrir kjördag.
Byrjað að kjósa
utan kjörfundar
Íslenska ríkið ætlar ekki að áfrýja niður-
stöðu héraðsdóms í máli Guðjóns S. Marteinsson-
ar dómara gegn íslenska ríkinu. Þetta hefur verið
staðfest með bréfi sem sent var öllum dómurum á
fimmtudaginn var. Undir bréfið rita Guðmundur H.
Guðmundsson og Björn Rögnvaldsson fyrir hönd
Árna M. Mathiesen ráðherra. Þar kemur fram að
laun verði greidd til dómara samkvæmt niðurstöð-
unni um næstu mánaðamót.
Hinn 19. desember síðastliðinn komst héraðsdóm-
ur að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri að
greiða Guðjóni rúmar 60 þúsund krónur, auk dráttar-
vaxta, frá 1. febrúar til 1. mars í fyrra.
Ákvörðun Kjaradóms frá því í desember 2005 um
að laun æðstu embættismanna ættu að hækka um
átta prósent vöktu hörð viðbrögð meðal almenn-
ings í landinu og ákvað ríkisstjórnin að leggja fram
frumvarp í kjölfarið sem fól í sér 2,5 prósenta launa-
hækkun í stað átta.
Guðjón höfðaði mál á þeim forsendum að hann
teldi ekki vera hægt að fella ákvörðun Kjaradóms
úr gildi með lagasetningu þar sem það gengi gegn
ákvæðum stjórnarskrár um sjálfstæði dómstóla.
Niðurstaða dómsins var sú að löggjafinn hafi með
lagasetningunni brotið gegn sjálfstæði dómstóla, og
þar með tilgreindum ákvæðum stjórnarskrárinnar,
með lagasetningu 20. janúar í fyrra sem felldi jafn-
framt úr gildi ákvörðun Kjaradóms um launahækkun
til þjóðkjörinna fulltrúa, svo og dómara. Niðurstaða
héraðsdóms náði einungis til dómara vegna sérstakr-
ar stöðu þeirra samkvæmt stjórnarskránni. Var með
niðurstöðunni fallist með öllu á kröfu Guðjóns.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, segir ástæður þess að ríkið áfrýi vera
sérstakt eðli málsins. „Um er að ræða afmarkað-
an hóp í afmarkaðan tíma þar sem lagaumhverfi
hefur breyst með tilkomu Kjararáðs, í stað Kjara-
dóms áður, á vormánuðum síðasta árs. Þá er ljóst,
frá okkar bæjardyrum séð, að dómur Hæstaréttar
myndi hafa minna fordæmisgildi heldur en ella þar
sem dómarar væru sérstaklega skipaðir í málinu þar
sem dómari á í hlut.“
Ekki náðist í Eggert Óskarsson, formann Dómara-
félags Íslands, í gær.
Dómarar í héraðsdómi voru Þórður S. Gunnars-
son, Ragnhildur Helgadóttir og Róbert Ragnar
Spanó, en eðli málsins samkvæmt voru dómarar í
málinu sérstaklega skipaðir utan dómsins.
Ríkið áfrýjar ekki
dómi héraðsdóms
Íslenska ríkið hefur ákveðið að áfrýja ekki niðurstöðu héraðsdóms í máli Guðjóns
S. Marteinssonar dómara gegn íslenska ríkinu. Bréf þess efnis var sent dómurum í
vikunni. Dómsmálið snýst aðeins um laun eins dómara, segir Baldur Guðlaugsson.
Gunnlaug, öskraði leikstjórinn
„kött!“?
Stúlka um tvítugt slasaðist al-
varlega í árekstri fólksbíls og pall-
bíls við gatnamót Suðurlandsveg-
ar og Þrengslavegar um hádegis-
bil í gær. Kalla þurfti til tækjabíl
slökkviliðsins til að losa stúlk-
una úr bílnum og var hún flutt
með þyrlu Landhelgisgæslunnar á
slysadeild Landspítalans.
Að sögn læknis á slysadeild
brotnaði stúlkan víða, bæði á
höndum og fótum, en er ekki í
lífshættu. Ökumaður pallbílsins
meiddist ekki alvarlega, en bæði
voru ein í bílunum. Á þriðja tug
lögreglu- og slökkviliðsmanna
voru kallaðir út og loka þurfti veg-
inum um Þrengslin um stund.
Margbrotnaði í
alvarlegu slysi
Ráðherrar nýrrar
ríkisstjórnar Hamas og Fatah
sóru í gær embættiseið og tóku
formlega við völdum í Palestínu.
Fyrr um daginn hafði palestínska
þingið samþykkt traustsyfirlýs-
ingu við stjórnina með yfirgnæf-
andi meirihluta, eða 83 atkvæðum
gegn þremur.
Norðmenn voru í hópi fyrstu
þjóða til að viðurkenna nýju stjórn-
ina og hyggjast norsk stjórnvöld
taka upp full stjórnmálatengsl við
Palestínumenn á ný og jafnframt
hvetja þá til að hafna ofbeldi og
viðurkenna Ísraelsríki.
Ísraelsmenn hafa hafnað nýju
stjórninni og segjast ekki munu
semja við hana. Ísraelar gera þá
kröfu til stjórnarinnar að hún við-
urkenni tilverurétt Ísraels, hafni
allri valdbeitingu og virði þá
friðarsamninga sem gerðir hafa
verið.
Mahmoud Abbas, forseti Pal-
estínu sagði að markmið stjórn-
arinnar væri að binda enda á her-
nám Ísraelsmanna, þar á meðal í
Austur-Jerúsalem. Þá sagði Ismail
Haniyeh, forsætisráðherra heima-
stjórnarinnar, að nýja stjórn-
in teldi það rétt palestínsku þjóð-
arinnar að veita andspyrnu gegn
árásum Ísraela.
Þingfundurinn var haldinn sam-
tímis á Vesturbakkanum og Gaza,
en aðeins 86 þingmenn af 132
greiddu atkvæði, þar sem 41 þing-
maður er í haldi Ísraela.
„Skýringin á
þessu er sú að ekki var spurt með
sama hætti í bæði skiptin,“ segir
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra um ósamræmi í svörum
við fyrirspurnum um framlög úr
Framkvæmdasjóði aldraðra.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram
að í nýju svari ráðherra væri
ekki getið framlaga sem þó var
greint frá í hliðstæðu svari frá
síðasta ári.
Siv segir styrk upp á hálfa millj-
ón króna til Lionsklúbbs Búðar-
dals, Reykhóladeildar vegna
lóðaframkvæmda við hjúkrun-
ar- og dvalarheimilið Silfurtún í
Búðardal hafa staðið út af, sem
og tveggja milljóna framlag til
Sólvalla, dvalarheimilis á Eyrar-
bakka.
Styrkirnir voru veittir á grund-
velli sérstaks liðar í lögum um
sjóðinn en hann tekur til fjárveit-
inga til „ann-
arra verkefna
sem stuðla að
uppbyggingu
öldrunarþjón-
ustu“. Nú er
unnið að nánari
skilgreiningu á
liðnum.
Óperukór-
inn í Reykja-
vík hlaut hálfa
milljón króna í styrk úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra árið 2004.
Í Fréttablaðinu í gær sagðist kór-
stjórinn ekki hafa vitað að styrk-
urinn hefði borist úr sjóðnum og
hefði hann vitað það hefði styrk-
urinn ekki verið þeginn.
Siv segir aðila sem sinnt hafa
menningarstarfi á öldrunarstofn-
unum hafa hlotið styrki en kann
ekki sérstaka skýringu á framlag-
inu til Óperukórsins. „Samráðs-
nefndin [stjórn Framkvæmda-
sjóðsins] lagði þetta til og ráð-
herra á þeim tíma greiddi úr
sjóðnum. En ég veit ekki hvern-
ig það bar að.“
Árlega hefur á milli tíu og
tuttugu milljónum verið veitt
til verkefna á grundvelli áður-
nefnds liðar laganna en það eru
1-2 prósent af heildarframlögum
sjóðsins.
Undanfarin fimmtán ár hefur
rúmur helmingur útgjalda Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra farið í
stofnkostnað, viðhald og aðrar
framkvæmdir en tæpur helming-
ur til rekstrar hjúkrunarheimila.
Því ráðslagi hefur verið breytt
og frá og með næsta ári fer ekk-
ert í rekstur. „Við það eykst ráð-
stöfunarfé til stofnkostnaðar og
viðhalds um 230 milljónir á ári,“
segir Siv.
Enginn meiddist alvarlega
þegar bíl var ekið á ljósastaur á
Álftanesvegi síðdegis í gær. Bíll-
inn skemmdist þó það mikið að
kalla þurfti á kranabifreið til að
draga hann á brott.
Alls var 21 umferðaróhapp til-
kynnt til lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu frá morgni og þar
til síðdegis í gær. Rekja má flest
óhöppin til hálku.
Slapp ómeiddur
úr árekstri
Til stóð að vikublað-
ið Króníkan yrði lagt niður og
DV tæki yfir skuldir þess. Upp
úr viðræðum slitnaði síðdegis í
gær, skömmu áður en ganga átti
til samninga. Þetta fullyrðir Sig-
urjón M. Egilsson, ritstjóri DV.
Pétur Gunnarsson sagði fyrst frá
þessu á bloggsíðu sinni, hux.blog.
is, í gær.
„Útgefendur Króníkunnar leit-
uðu til DV um það hvort DV vildi
taka yfir skuldir Króníkunnar og
samninga starfsfólks ef blaðið
yrði lagt niður,“ segir Sigurjón.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir,
ritstjóri Króníkunnar, segir rangt
að leitað hafi verið til DV að
fyrra bragði, rekstur Króníkunn-
ar gangi vel og hún muni halda
áfram að koma út, en vill ekki
tjá sig frekar um málið að svo
stöddu.
Boðin yfirtaka
á Króníkunni