Fréttablaðið - 18.03.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 18.03.2007, Síða 4
Útgjöld Jóns Ger- alds Sullenberger og fyr- irtækja hans vegna báts- ins Thee Viking voru að minnsta kosti jafn há og greiðslur sem bárust mánaðarlega frá Baugi. Þetta kom fram í máli Aldísar Hilm- arsdóttur lögreglufulltrúa sem bar vitni í Baugsmálinu á föstudaginn. Nokkuð hefur verið rætt um það í hvað peningarnir sem Baugur greiddi Nordica mánaðarlega í tvö og hálft ár fóru í raun. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar, hefur bent á að lögregla hafi ekki rannsakað nákvæmlega í hvað þeir fjár- munir sem Nordica, félag Jóns Geralds, eða New Viking, annað félag á hans vegum, fóru. PricewaterhouseCoopers hafi hins vegar rannsakað það fyrir verjendur og peningarn- ir hafi að miklu leyti farið í dagleg útgjöld Jóns Geralds. Jón Gerald hefur hins vegar haldið því fram að peningarnir hafi allir verið til greiðslu á kostnaði vegna bátsins, og eru þeir Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson ákærðir fyrir að hafa dregið fé úr Baugi til að greiða hlut í bátnum. Aldís upplýsti að gerð hafi verið ítarleg út- tekt á því hver kostnaður Jóns Geralds af rekstri bátsins hafi verið á hverjum mánuði. Niðurstaða þeirrar rannsóknar hafi verið að kostnaðurinn hafi verið að minnsta kosti jafn hár mánaðarlegum greiðslum sem bárust frá Baugi. Til að byrja með voru greiðslurnar 8 þús- und dollarar, en fljótlega voru þær hækkaðar upp í 12 þúsund dollara á mánuði, sem jafn- gilti um 1-1,3 milljónum króna, breytilegu eftir gengi. Svipaðar upphæðir í skemmtibátinn „Ég ákvað fyrir átta árum að hætta annað hvort eftir fjögur eða átta ár svo þetta hefur átt sér langan aðdraganda. Nú hlakka ég til að gefa mig að öðrum málum, vera með fjölskyldunni og sinna ýmsu öðru,“ segir Halldór Blöndal Sjálfstæðisflokki sem sat á þingi frá 1979 – í sjö kjörtímabil – og var varaþingmaður tvö kjör- tímabil þar á undan. Hann kvað gærdaginn ekki öðru- vísi en aðra lokadaga þingsins og fann hvorki til trega né spennu. „Ég er fullkomlega ánægður, þetta hefur gengið upp og niður, stundum hefur maður verið í stuði og stund- um átt á brattann að sækja. En á heildina litið er ég mjög ánægður og hef náð þeim árangri sem ég gat vænst.“ Jón Kristjánsson Framsóknar- flokki er sömuleiðis eldri en tvæ- vetur í pólitíkinni; sat í 22 ár á þingi og var varamaður í sex ár. „Ég er sáttur og lít með mik- illi ánægju til baka. Ég hef fengið tækifæri til að upplifa gríðarlegar breytingar, bæði í störfum þings- ins og í þjóðfélaginu almennt og er þakklátur fyrir það.“ Jón segist sjá mest eftir því góða fólki sem hann hefur starfað með í þinginu, mestu viðbrigðin verði að hætta að umgangast það. „Þó við deilum um margt þá er hér mjög sérkennilegur andi. Menn gera greinarmun á persónulegum sam- skiptum og pólitískum deilum.“ Öfugt við Halldór og Jón ákvað Guðrún Ögmundsdóttir Samfylk- ingunni ekki að hætta. Hún tók þátt í prófkjöri flokks síns en náði ekki þeim árangri sem hún stefndi að. „Auðvitað vildi ég vera áfram en maður vinnur sig bara út úr því. Það er minnsta mál í heimi,“ segir Guðrún sem fékk fiðrildi í magann í gær þegar hún í raun uppgötvaði að það var hennar síðasti þingdag- ur. Hún fann þó ekki til eftirsjár. „Þetta er bara eins og þegar maður skiptir um vinnu en það er óljóst hvað bíður,“ segir Guðrún sem sat tvö kjörtímabil. Dagný Jónsdóttir Framsóknar- flokki afréð að sækjast ekki eftir endurkjöri en hún sat eitt kjör- tímabil á þingi. Henni fannst and- rúmsloftið í þinginu í gær skrít- ið; ekki síst hjá þeim sem eru að hætta. „Og auðvitað líka hjá þeim sem vita ekki hvort þeir verða áfram,“ segir hún og hlær. „En það er skrítin tilfinning að vera að fara í atkvæðagreiðslu í síðasta sinn og svolítill tregi líka,“ segir Dagný og bætir við að árin fjögur á Alþingi hafi verið lærdómsrík. Um frekari afskipti af stjórnmálum einhvern tíma í framtíðinni kveðst Dagný fátt geta sagt. „Ég veit ekki hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór.“ Hlakkar til að vera með fjölskyldunni Nokkrir þingmenn sátu sinn síðasta þingfund í gær. Halldór Blöndal segist hafa náð þeim árangri sem hann gat vænst. Guðrún Ögmundsdóttir segir minnsta mál í heimi að láta af þingmennsku. Jón Kristjánsson er þakklátur fyrir tækifærið. BAUGS M Á L I Ð Tvær skurðað- gerðir til leiðréttingar á kyni hafa verið gerðar á Íslandi. Önnur á konu sem breytt var í karl og hin á karli sem breytt var í konu. Þetta kemur fram í svari for- sætisráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur Sam- fylkingunni. Í svarinu kemur fram að til að geta fengið kyn sitt leiðrétt með skurðaðgerð þarf fólk meðal ann- ars að hafa sýnt mjög ákveðin einkenni þess að hafa lengi liðið illa í eigin líkama og fundist það hafa fæðst með rangt kyn. Tveir fengið kynleiðréttingu Danska lög- reglan viðurkenndi í gær að hafa notað hættulega sterkt táragas í baráttu sinni við mótmælend- ur við Ungdómshúsið á Norður- brú í Kaupmannahöfn fyrr í mán- uðinum. Gasið sem notað var er gert til að skjóta upp að veggjum eða lok- uðum dyrum. Það berst síðan í gegnum allar þær rifur og öll op og til þeirra sem kunna að vera fyrir innan. Gasið er margfalt öflugra en það sem nota á til að dreifa fólki í óeirðum. Talsmaður lögreglu baðst af- sökunar í sjónvarpsviðtali í gær, sagði notkun gassins hafa verið mistök sem einungis hentu einu sinni. Ástæðan fyrir mistökunum liggur ekki fyrir. Hættulegu gasi beitt í óeirðum Lögreglan leitar nú manns sem nauðgaði ungri konu á kvennasalerni í kjallara Hótels Sögu skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Hinn grunaði er á milli tvítugs og þrítugs, um 165 sentimetrar á hæð, krúnurakaður með dökk- an hársvörð, dökkar augabrúnir og dökk augu. Hann var klæddur í grænleitan jakka og bar grænleita derhúfu. Að sögn lögreglu er talið að maðurinn sé frá Austur-Evrópu. Starfsfólk reyndi að halda manninum á meðan beðið var eftir lögreglu en hann komst á brott ásamt öðrum manni og hvarf sjón- um við Birkimel. Talið er að þriðji maðurinn hafi verið með þeim fyrir atburðinn. Nauðgaði konu á kvennasalerni Bókhald I Sérlega hagnýtt námskeið fyrir þá sem þurfa að ná tökum á bókhaldinu. Hentar einnig þeim sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði með góðri undirstöðu, þekkingu og grunnþjálfun í bókhaldsvinnu. Kennsla byggir að mestu leyti á verklegum æfingum með raunveruleg fylgiskjöl. Námið er metið til eininga. Helstu kennslugreinar: Verslunarreikningur, VSK reglur og skýrslur, bókhaldsgrunnur og tölvubókhald. Kennsla hefst 20. mars og lýkur 17. maí. Morgunnámskeið: Kennt er þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl 8.30 - 12. Kvöld- og helgarnámskeið: Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl 18-21.30 og laugardaga kl 9 - 12.30. Lengd: 100 kennslustundir. Verð: 94.000,- Allt kennsluefni innifalið. FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW .TSK . IS SKOLI@TSK . IS SÍMI : 544 2210
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.