Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 8

Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 8
greinar@frettabladid.is Um daginn flutti ég ásamt félögum mínum í þriðja sinn frumvarp til laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Málið er róttæk en mikilvæg breyting á sjóðn- um til að efla félagslegt jöfnunarhlutverk hans. Og standa vörð um það. Sú breyting að 30% tekinna námslána breytist í styrk að námi loknu er gífurleg kjarabót fyrir ungt barnafólk sem er að byrja að hasla sér völl í lífinu að námi loknu. En það er ein af breyt- ingunum sem við leggjum til að gerðar verði. Við viljum að hluti lána, 30%, breytist í styrk að loknu námi, afnumin verði krafa um ábyrgðarmenn og að lánin verði greidd út fyrirfram. Þá þarf að endurskoða viðmiðunargrunn lánanna reglubundið. Vitað er um mörg dæmi þess að ungt og efnilegt fólk hefur orðið að hverfa frá áætlunum um frek- ara nám vegna þess að það hefur ekki getað fram- vísað ábyrgðarmönnum sem lánasjóðurinn tekur gilda. Hver námsmaður á sjálfur að vera ábyrg- ur fyrir endurgreiðslu síns námsláns og á að undir- rita skuldabréf þess efnis. Stjórn sjóðsins ákveður hvaða skilyrðum lántakandi þarf að fullnægja. Aðrar breytingar eru þær helstar að þegar náms- maður hefur skilað af sér lokaprófum breyt- ast 30% af upphæðinni sem hann hefur tekið að láni í óendurkræfan styrk. Styrkur- inn yrði hvorki tekjutengdur né skattlagð- ur. Breytingar þær sem hér eru lagðar til taka mið af reglum annars staðar á Norður- löndum. Nokkur dæmi um fyrirkomulagið í öðrum löndum eru að í Svíþjóð eru 34,5% af þeirri upphæð sem námsmaður fær til ráðstöfunar á námstíma hreinn styrkur sé miðað við fullt nám. Annars staðar á Norðurlöndum eru náms- styrkir ekki bundnir við að námsmaður ljúki form- legu námi en hér er lagt til að það verði skilyrði fyrir styrkveitingu. Það virkar einnig sem öflugur hvati að námslokum á tilskildum tíma. Brýnt er að málið nái fram að ganga og er það hluti að þeirri menntasókn og því fjárfestingarátaki á öllum skólastigum sem við jafnaðarmenn vilj- um ráðast í á næstu misserum. Ný menntasókn á að vera eitt stærsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar jafn- aðarmanna næsta vor og sem hluti af henni leggj- um við einnig til að námsbækur í framhaldsskólum verði nemendum að kostnaðarlausu. Ásamt auknu framboði námsefnis á netinu. Það yrði mikil kjara- bót fyrir nemendur og foreldra þeirra. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. 30% námslána breytist í styrk S télfjaðrir stjórnmálamanna eru vel sperrtar um þess- ar mundir. Fengitíminn er hafinn og öllum ráðum beitt við atkvæðaveiðar. Þeir biðla til þjóðarinnar til að halda stöðu sinni og beita til þess öllum ráðum. Mikilvægast er að sannfæra kjósendur um að ekki sé tjaldað til einnar nætur eins og oft vill brenna við. En hvað vilja kjósendur samtímans? Ríkisstjórnarflokkarnir töldu sig hafa hitt naglann á höfð- uðið þegar þeir lögðu til breytingar á stjórnarskrá með því að setja inn nýtt ákvæði sem kveður á um að náttúruauð- lindir séu þjóðareign. Hitamál sem brennur á mörgum og þarf vissulega að takast á við en bar ekki þann árangur sem skyldi. Í Svíþjóð, Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar keppast menn við að bjarga jörðinni sem stendur ógn af gróðurhúsaáhrif- um. Allt annað verður smátt í samanburðinum. Fylgisaukn- ing vinstri grænna og ein öflugustu mótmæli Íslandssögunn- ar gegn virkjanaáætlunum ríkisstjórnarinnar hljóta að senda skýr skilaboð um hvað kjósendur samtímans vilja. Þeir eru hin nýju blómabörn sem kalla á siðferðislega ábyrgð í um- hverfismálum og ætlast til þess að þeim verði sinnt af alvöru og hugrekki. Fylgisaukning vinstri grænna og ein öflugustu mót- mæli Íslandssögunnar gegn virkjanaáætlunum ríkis- stjórnarinnar hljóta að senda skýr skilaboð um hvað kjósendur samtímans vilja. Kjósendur hafa setið undir óteljandi hátíðarræðum leið- toganna þar sem þeir hafa talið náttúru Íslands okkar helstu auðlind. Hún þykir órjúfanlegur hluti sjálfsmyndar okkar en spurningin er hvort við getum gert þá kröfu til hennar? Nátt- úran er ekki mannanna verk. Hún er stórfengleg upp á eigin spýtur en það er á mannanna ábyrgð að varðveita hana. Ef okkur tekst að leysa það verk vel úr hendi þá fyrst getum við verið stolt. Þetta er einfalt verkefni sem auðvelt er að takast á við. Rétt hugarfar er allt sem þarf. Af þessum ástæðum höfða grænar fjaðrir Steingríms J. og félaga sífellt til fleiri kjósenda þótt þær hafi kannski sprott- ið upp úr aldargömlum kommúnískum grunni, eins og marg- ir vilja meina. Kannski þessi kommúníski blær blómabarna fyrri tíma standi í vegi fyrir að stjórnarflokkarnir setji upp grænar fjaðrir fyrir alvöru? En blómabörn nútímans eru ekki blómabörn fortíðar. Þau sækjast eftir dýrum lífsstíl með góðri samvisku, þar sem siðferðislegum leikreglum er fylgt alla leið en ekki einblínt á lokamarkmiðið. Þeir stjórnmála- menn sem fá flest atkvæði í þessum kosningum verða eflaust þeir sem leggja áherslu á umhverfismálin. Sjálfsmynd þjóðar DV tók nýverið viðtal við Ingi-björgu Sólrúnu Gísladótt- ur og birti það á föstudaginn var. Í viðtalinu kenndi margra grasa eins og vænta má þegar rætt er við forystumann eins af stærri flokkum þjóðarinnar. Fátt nýtt kom þó fram en vissuleg var ým- islegt sem vakti athygli. Und- anfarið hafa skríbentar Sam- fylkingarinnar farið hamförum á síðum blaðanna og á blogg- inu vegna meintra ofsókna gegn Ingibjörgu Sólrúnu. Hefur mátt skilja af þeim skrifum að það flokkist undir skort á almennum mannasiðum að gagnrýna mál- flutning og orð Ingibjargar. Orð eins og einelti eru notuð þannig að þau hafa glatað merkingu sinni, spunameistarar hafa orð- talið Staksteina og Bragi bóksali er týndur til sem sérstaklega ill- gjarn ofsóknari Ingibjargar. Það er ekki í mínum verkahring að leggja mat á hversu snjallt það var hjá Samfylkingunni að leggj- ast í þessi skrif um formann- inn sinn, um það eiga aðrir að véla. Mér segir þó svo hugur um, að hluti þeirra skrifa eigi rætur sínar í innanflokksdeilum, verið sé að skammast opinberlega yfir orðum sem fallið hafa prívat á milli Samfylkingarmanna sem ekki eru sáttir við aflabrögðin þessa dagana. Í viðtalinu er Ingibjörg spurð hvort hún komist upp með minna en aðrir stjórnmálamenn. Svar Ingibjargar vekur vissulega nokkra athygli: „Fólk gerir meiri kröfur til mín, en margra ann- arra.“ Nú fer auðvitað nokkuð eftir því við hverja Ingibjörg er að miða, en það fer ekki hjá því að manni finnist svarið nokkuð hrokafullt. Hvernig kemst Ingi- björg að þeirri niðurstöðu að fólk geri meiri kröfur til hennar en annarra? Telur hún að gerðar séu meiri kröfur til hennar held- ur en til Geirs Haarde, Jóns Sig- urðssonar, Þorgerðar Katrínar, Valgerðar Sverrisdóttur, Stein- gríms J. Sigfússonar eða Katrín- ar Jakobsdóttur, svo einhverjir stjórnmálaleiðtogar séu nefndir. Hvaðan kemur þessi vissa for- manns Samfylkingarinnar? Skoð- anakannanir sem mæla traust al- mennings á stjórnmálamönnum benda alla vega ekki til þess að ástæða sé til að gera því skóna að Ingibjörg sé á hærri stalli en gengur og gerist um stjórnmála- menn almennt. Ég hef reyndar enga sérstaka sannfæringu fyrir því að Ingi- björg Sólrún og frammistaða hennar sé aðalástæða þess að Samfylkingin hefur misst svo mikið fylgi sem raun ber vitni. Málið er flóknara en svo að allt verði hengt á einn einstakling eða á þingflokk Samfylkingarinnar ef því er að skipta. Tilvistarvandi Samfylkingarinnar hefur orðið ljósari samhliða því að vinstri græn hafa eflst. Samfylkingin hefur átt erfitt með að skilgreina sig sem stjórnmálaafl og kjós- endur finna það. Heilmikil vinna hefur verið lögð í að koma saman stefnu í sem flestum málum, en vandinn er sá að það er enginn grunnur, engin hugmyndafræði eða sannfæring sem tengir saman úrlausnirnar og því verður til ein- hver allsherjar hrærigrautur sem er langt frá því að vera trúverð- ugur. Greinilegt er að vinstri armin- um í Samfylkingunni var farið að leiðast þetta stefnuleysi og þóf. Gamla Alþýðubandalagsfylgið virðist hafa klofið sig endanlega út úr Samfylkingunni og gengið í flokk Steingríms, Ragnars Arn- alds, Hjörleifs og félaga. Eftir sitja kratarnir, sem komust í 22% fylgi árið 1978 en enduðu í 11% árið 1995, stuðningsmenn Ingi- bjargar úr Ráðhúsinu í Reykjavík ásamt nokkrum núverandi þing- mönnum Samfylkingarinnar sem eiga sér sögu úr Alþýðubandalag- inu. Varla hefði nokkrum manni dottið það í hug að íslenskir jafn- aðarmenn myndu sækja leiðtoga sinn í raðir gamla Kvennalistans en bjóða ekki Jóni Baldvini heið- urssæti á lista. Yfir þessu öllu er einhver klaufadómur og margir hljóta að velta því fyrir sér hvort saman fari stjórnmálaskoðanir krata annars vegar og Ingibjarg- ar Sólrúnar hins vegar. Jafn- framt væri áhugavert að heyra frá Samfylkingunni hvort menn þar á bæ líti enn svo á að samein- ing vinstri manna hafi heppnast undir merkjum þess flokks. Undir lok viðtals DV við Ingi- björgu féllu ummæli sem ástæða er til að gefa sérstakan gaum. Þar farast formanni Samfylkingarinn- ar svo orð: „Sú staða sem flokk- urinn er í núna hefur gefið mér ákveðið frelsi. Við erum í þeirri stöðu að þeir eru búnir að ná að tala okkur niður. Ég hef því engu að tapa, en allt að vinna. Það er fullkomið frelsi sem felst í þeirri stöðu.“ Þessir þeir eru sennilega Staksteinar og Bragi bóksali. En frelsishugmyndin er áhugaverð. Frelsi undan hverju? Hvað var það sem Samfylkingunni var ekki frjálst að gera þegar fylgi flokks- ins var yfir 30% og Össur Skarp- héðinsson formaður? Hefur Sam- fylkingin nú öðlast frelsi til að breyta um stefnu, breyta um áherslur eða breyta um auglýs- ingastofu? Hvert var helsið sem fylginu fylgdi? Fullkomið frelsi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.