Fréttablaðið - 18.03.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 18.03.2007, Síða 12
É g lít á starf mitt sem listrænt uppeldisstarf,“ segir Þorgerð- ur. „Kennararstarf þar sem maður tekur á móti ómótuðum unglingum. Það að ná góðum ár- angri í tónlistinni er auðvitað takmarkið og oft tekst með prýði að ná list- rænum hæðum í starfinu. En hlutverk mitt byggist líka mikið á því að vera til staðar, sýna væntumþykju gagnvart einstaklingn- um sem þú ert að vinna með og manneskju- legan skilning. Stundum finnst mér eins og ég hafi hreinlega verið auka mamma fyrir suma af nemendum mínum. Leyndardómur- inn er að stilla hljóðfærið sitt, kórinn, svo vel að það snerti við sálinni,“ svarar Þor- gerður þegar hún er spurð um hvað starf hennar snúist. Þeir fjölmörgu sem hlýtt hafa á söng kóranna hennar Þorgerðar hafa upp- lifað þann leyndardóm og margir þeir hörð- ustu staðið sjálfa sig að því að ganga voteyg- ir út af tónleikum. Vinnan sem liggur að baki nokkurra mín- útna lagi eða stuttri tónsmíð er þó meiri en nokkur gerir sér grein fyrir, þar sem Þor- gerður hvetur fólkið sitt áfram, dag eftir dag, kvöld eftir kvöld í vikur og mánuði. Í hraða og lífsgæðakapphlaupi eiga margir eflaust erfitt með að skilja hvaða elja liggur þar að baki, að vinna svo óeigingjarnt starf sem gefur lítið í aðra hönd. Þorgerður segir verðmætin ekki liggja í peningum, það sé mikill misskilningur að lífsgæðin séu bíll eins og segir í auglýsingunni. „Ég hef alltaf litið á mig sem þjón tónlistarinnar. Og það sem mér finnst svo sorglegt er að samfara því að við nýtum okkur meir og meir alla þá þjónustu sem í boði er, virðumst við Vestur- landabúar vera að missa gleðina yfir því að þjóna og verða öðrum að liði. Of oft er hugs- unarhátturinn sá að vinnan sé leiðinlegt fyrirbæri og allt líf eftir að vinnu lýkur sé skemmtunin sem við bíðum eftir. En hver er þessi skemmtun? Hér áður var kennt á laug- ardögum og í þá daga þekktist það vart að óska náunganum góðrar helgi. Það er vissu- lega falleg kveðja, að óska einhverjum góðs, en afhverju ekki bara að óska honum góðs mánudags eða þriðjudags alveg eins? Við þurfum að læra aftur að njóta vinnunnar og hversdagsins.“ Þegar Þorgerður kom til starfa sem kór- stjóri hjá Menntaskólanum við Hamrahlíð var hún aðeins litlu eldri en nemendurnir sjálfir, eða um 23 ára gömul. Engu að síður vann hún þar frumkvöðlastarf í kórastarfi á Íslandi því í þá daga var engin hefð fyrir því að í framhaldsskólum landsins væru kórar nemenda starfandi. „Þetta var mjög nýstár- legt og framandi í byrjun. Ég var ung, skildi ekki alveg hættuna sem var þarna fyrir hendi og gekk bara inn í þetta á „fjaðra- skóm“, léttum skrefum. Þetta brautryðj- endastarf í kórstarfi í menntaskóla sam- ræmdist vel hugmyndum þessa nýstofnaða skóla sem var opinn fyrir nýjungum í skóla- málum og hálfgerður tilraunaskóli á sínum tíma. Krakkarnir voru sjálfir spenntir fyrir kórnum enda var þetta eitthvað nýtt um leið og fyrirbærið kór var líka svolítið gam- aldags en það var varla til að ungir strákar syngju í kór. Það hjálpaði mér líka eflaust að vera nálægt krökkunum í aldri. Ung kona í stuttu pilsi, nýkomin úr námi í Ameríku sem þá var svo langt í burtu, að stjórna kór. Þetta vakti forvitni nemendanna, þeir voru að velta því fyrir sér hver væri kærastinn minn og svona hitt og þetta,“ segir Þorgerð- ur og skellir upp úr. „Þá var ég ekki gamla, stranga Þorgerður,“ bætir hún við. Þorgerður segist líka hafa átt góða að. Fjöl- skyldu og tónlistarkennarana sína. Og í sínu langa starfi hefur hún alltaf búið að því að vera treyst. „Mér var treyst fyrir þessu starfi sem ungri og brothættri manneskju og það hefur verið mér leiðarljós í mínu starfi: Að treysta ungu fólki. Og það er ekki síður mikið þakkarefni að þetta unga fólk skuli treysta mér í sinni vinnu og verkefn- um.“ Þorgerður rifjar upp í tilefni þess- ara umræðna stutt atvik af æfingu nýverið þegar Atli Heimir Sveinsson kom á æfingu hjá kórnum. „Þetta mikla tónskáld okkar tal- aði svo fallega til þeirra sem jafningja að ég var hreinlega hrærð. Það hefur verið mér mikil gæfa í þessu starfi að kynnast góðu, skemmtilegu og heilsteyptu fólki og fá að upplifa hluti með þeim í þeirra lífi. Auðvitað þekki ég ekki alla persónulega og náið. En á fyrstu árum kórsins, kynntist ég öllum mjög náið og margir kórfélagar eru meðal minna bestu og nánustu vina. Saman höfum við deilt sorg og gleði og það er ótrúleg upplif- un að sjá hve þétt krakkarnir standa saman í gleði og velgengni en líka í erfiðleikum og þegar einhver á bágt. Sömuleiðis er gleði mín mikil að sjá ljós kvikna í augum nem- enda minna í söngnum, sem hafa ekki haft það of gott.“ Á hverju hausti gengur Kór Menntaskól- ans við Hamrahlíð í endurnýjun lífdaga þar sem nýir og nýir einstaklingar bætast í hóp- inn og aðrir detta úr. Endurnýjunin er allt- af mikil í Hamrahlíðarkórnum. Engu að síður tekst Þorgerði, ár eftir ár, að mynda sterka heild sem tekst að vera meðal þeirra fremstu í sínu fagi og eftirsótt er af tón- skáldum að fá kórinn til að frumflytja verk sín. Hver er galdurinn? „Góð samvinna, mikið úthald, þolinmæði, jákvæður agi og vilji til góðra verka. Ég vil sjálf meina að krakkarnir geri oft miklu betur en þau hafa efni á. Það sem einkennir þennan kór er fyrst og fremst þetta æskuþor, dirfska og einlægni unga fólksins. Þegar við eldumst verðum við oft svo hrædd við okkur sjálf en þetta þekkja þau ekki heldur láta þau kjark- inn ráða för og gefa svo bara í,“ svarar Þor- gerður og bætir við að hún hafi lært mikið af því að horfa sífellt á heiminn með þeirra ungu augum. Ferðalög, tónleikar sem opnir eru öllum að kostnaðarlausu og annað í kringum starf- ið kostar peninga en þá kemur að sjálfs- bjargarviðleitninni segir Þorgerður. Það þýðir lítið að sitja og bíða eftir styrkjum og slíku. Kórfélagar safna dósum, selja klós- ettpappír og annað og reyna þannig að ná saman einhverjum peningum upp í kostnað. „Þjóðfélagið í dag gerir ekki mikið í því að ala upp í fólki sjálfsbjargarviðleitnina sem er svo mikilvæg. Hversdagsleikinn er ein- hvern veginn að gufa upp og allir dagar eru orðnir hálfspari. Ef til vill fáum við á Íslandi of mikið upp í hendurnar fyrirhafnarlaust. Þetta eyðileggur viljastyrkinn og úthaldið sem manneskjan þarf á að halda til að tak- ast á við allt það sem lífinu fylgir . Úthald er ekki bara eitthvað sem er mælt í líkams- ræktarstöðvum heldur líka í lífinu sjálfu,” segir Þorgerður. „Listiðkun er að mestu leyti mikil vinna, þrotlaus ástundun og agi og það á líka við um lífið. Þorgerður segist enn eiga nóg inni og hún upplifir sig enn unga og þróttmikla og hún horfir björtum augum á framtíðina. „Ég vona að ég beri gæfu til að fá að starfa áfram og þegar minn tími kemur að þetta starf deyi ekki með mér heldur fái að vaxa og dafna um ókomna framtíð” segir Þorgerður. Góð tilfinning að þjóna Stór hluti þeirra íslensku tónlistarmanna sem notið hafa farsældar sem listamenn í fagi sínu hafa hlotið eldskírn sína undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Í nærri 40 ár hefur hún leiðbeint fríðum hópi ungmenna í gegnum söng sem snert hefur hug og hjörtu landsmanna og fyrir það merka starf var Þorgerður á dögunum útnefnd heiðursverð- launahafi Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Júlía Margrét Alexandersdóttir fékk innsýn í lífsstarf kórstjórans.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.